Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar 15. apríl 2026 12:48 Það er yndislegt að ala upp börn í Árborg. Börnin fara út að leika sér, hjóla út um allar koppagrundir, þekkja alltaf einhvern allstaðar svona eins og þegar maður sjálfur ólst upp í litlu bæjarfélagi. Það er hinsvegar langt í frá ódýrt að eiga börn í Árborg. Undanfarin ár hafa komið fram allskonar sparnaðarleiðir hjá sveitarfélaginu sem hafa helst bitnað á fólkinu sem við viljum styðja við og hlúa að í samfélaginu okkar, barnafólkinu. Til dæmis höfum við sem eigum börn á leikskólaaldri orðið fyrir miklum hækkunum á sama tíma og þjónusta hefur minnkað sbr. svokallaða skráningardaga og skráningu viðveru eftir kl. 14 á föstudögum. Sláandi samanburður Ég ákvað að bera saman leikskólagjöld í Svf. Árborg við nágrannasveitarfélögin ásamt Reykjavík. Niðurstöðurnar eru sláandi. Hér er tekið dæmi um leikskólagjöld fyrir hjón með eitt barn í vistun 40 klst. á viku (frá kl. 8-16), með tekjur upp á 14 milljónir króna á ári og fékk þannig samanburð á milli Árborgar og þriggja annarra sveitarfélaga. Í Svf. Ölfusi eru 36 klst. á viku er gjaldfrjálsar. Þar greiða foreldrar einungis fyrir tvær klukkustundir á dag. Fyrir 40 klukkutíma vistun á viku greiða foreldrar því 8.820 krónur auk 12.815 krónur fyrir fæði. Það gera 21.635 kr. á mánuði eða 259.620 kr á ári. Þar eru engir sérstakir skráningardagar en hægt er að skrá börnin í leikskóla milli jóla og nýárs og í dymbilviku en fyrir það greiða foreldrar ekki aukalega. Ef börn eru skráð í fríi þessa daga þá falla niður fæðisgjöld. Systkinaafsláttur nær yfir öll skólastig (dagforeldra, leikskóla og frístund) eins og á hinum stöðunum sem kannað var. Í Svf. Ölfusi er systkinaafsláttur 30 % með barni númer 2 og 50 % af barni númer 3. Í Hveragerði er sama saga en þar eru gjaldfrjálsir 36 klst á viku eða 6 klukkutímar á dag. Fyrir 8 tíma greiða því foreldrar 8.800 kr. auk 12.300 kr. í fæðisgjald. Það gera 21.100 krónur á mánuði eða 253.200 kr á ári. Þar eru einnig engir sérstakir skráningardagar. Í Hveragerðir er systkinaafsláttur á þann veg að 30 % afsláttur er fyrir barn númer tvö og 100 % afsláttur fyrir barn númer þrjú og fleiri. Í Reykjavík er komið nýtt kerfi þar sem leikskólagjöld eru tekjutengd og því er hér gert ráð fyrir 14 milljónum í árstekjur foreldra til þess að auðvelda samanburð. Fyrir 40 klukkustunda vistun á viku greiða foreldrar því 14.400 kr auk 15.290 kr í fæðisgjald. Foreldrar greiða því 29.690 kr á mánuði eða 356.280 kr á ári. Teknir voru upp skráningardagar sem eru vetrar- og haustfrí sem fylgja fríum grunnskólanna, í Dymbilviku og milli jóla og nýárs en fyrir það greiða foreldrar 5000 kr á dag. Systkinaafsláttur er þannig að 100 % afsláttur er gefinn fyrir hvert barn umfram eitt. Í Árborg samkvæmt ,,nýju“ leiðinni greiða foreldrar fyrir 40 klukkustunda vistun 47.586 kr. auk 12.884 kr. í fæði. Foreldrar greiða því 60.470 krónur á mánuði eða 725.640 kr á ári fyrir vistunina. Þar eru einnig skráningardagar sem fylgja grunnskólum sveitarfélagsins og þarf að greiða 3000 kr á dag fyrir þá. Í Árborg er systkinaafsláttur 50 % fyrir barn númer tvö, 75% fyrir barn númer þrjú og 100 % fyrir barn númer 4. Það blasir því við að mun dýrara er að hafa börn í vistun á leikskólum í sveitarfélaginu okkar, en það munar um 179,5 % á Leikskólagjöldum í Svf. Ölfusi og Árborg á ári. Milli Árborgar og Hveragerðis munar 186,6% á leikskólagjöldum og á hvorugu tilfelli er um að ræða svokallaða skráningardaga svo foreldrar geta nýtt sér 40 klukkustunda vistun. Í Árborg og Reykjavík eru skráningardagar en það munar þó 103,7 % á leikskólagjöldum. Við sem samfélag hljótum að hafa metnað fyrir því að barnafólk vilji setjast að sveitarfélaginu okkar en með þennan gríðarlega mun á leikskólagjöldum þá er nokkuð víst að barnafólk horfi til þess að flytja í nágrannasveitarfélögunum. Við þurfum að breyta þessu og vera samkeppnishæf! Setjum þak á leikskólagjöld Samfylkingin leggur til að þak verði sett á leikskólagjöld og 100% systkinaafsláttur tekinn upp. Auk þess verði réttur til leikskólavistar lögfestur frá því að fæðingarorlofi lýkur. Það þarf að gerast í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og er löngu tímabært. Tillögurnar flokksins gera ráð fyrir að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir 40 tíma leikskólaviku, en að tekjulægri greiði minna. Þannig hlífum við barnafjölskyldum við allt að 450 þúsund króna kostnaði á ári. Því til viðbótar er lagt til að haldið verði áfram að efla frístundastyrki við barnafjölskyldur til að ýta undir virka þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi um land allt. Höfundur er frambjóðandi á Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Sjá meira
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar