Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar 16. apríl 2026 12:01 Í Hafnarfirði er fjöldi uppbyggingasvæða – en þar er of oft lítið að gerast. Vandinn er ekki skortur á landi, heldur skortur á framvindu. Það sem skortir er skilvirkara kerfi og skýrari forgangsröðun. Við erum með land, fjármagn og aðila sem vilja byggja – en íbúðirnar skila sér ekki nógu hratt. Vissulega geta ný byggingarsvæði í jaðri byggðar styrkt ákveðin hverfi.En það leysir ekki kjarna vandans. Of lítið gerist.Það sem gerist tekur of langan tíma – og það verður of dýrt að bíða. Afleiðingin er sú að ungt fólk kemst seinna inn á markaðinn – eða situr lengur fast á leigumarkaði. Þetta er ekki skortsvandi.Þetta er kerfisvandi. Byggjum þar sem fólk vill búa Þar sem þjónusta, skólar, samgöngur og líf er til staðar - og byggjum það sem fólki vantar, til dæmis smærri íbúðir. Flest heimili eru í dag 1–2 einstaklingar – en framboðið endurspeglar það illa. Ef við gerum það ekki hækkar verð – og vandinn eykst. Hlutverk bæjarins er skýrt Bærinn á ekki að handstýra hverju smáatriði. Hlutverk hans er einfalt: að láta kerfið virka. Það þýðir: Skýrari og hraðari ferli Fyrirsjáanlegt framboð lóða Ábyrgar ákvarðanir um hvar á að byggja Þegar kerfið virkar, koma íbúðir á markað á viðráðanlegu verði. Þrjár leiðir þurfa að vinna saman: húsnæðisfélög, stór verkefni og smá. Húsnæðisfélög – halda kerfinu gangandi Þegar Seðlabankinn hækkar vexti stoppar uppbygging. Það höfum við séð aftur og aftur. Þá skipta húsnæðisfélög máli. Þau halda áfram að byggja þegar aðrir bremsa. Og þau gera það ekki ein – verktakar byggja fyrir þau. Þannig helst þekking, geta og framleiðsla inni í kerfinu í stað þess að detta niður á milli verkefna. Stór verkefni – skila mörgum íbúðum á stuttum tíma Við þurfum að koma stórverkefnum sem skila mörgum íbúðum hratt í gang. Það krefst skýrra útboða með raunverulegri samkeppni – eða samninga við aðila með bindandi tímalínum. Við þurfum ekki fleiri áætlanir – við þurfum að koma verkefnum af stað núna. Það dugir ekki að byggja meira. Það þarf að byggja rétt Bestu hverfin hafa heilbrigða blöndu: tvíbýli, fjórbýli og raðhús. Ef þessi miðja vantar verður markaðurinn skakkur: færri hagkvæmir valkostir, minni fjölbreytni og færri tækifæri fyrir smærri verktaka. Smáhýsi – vanmetnasta lausnin Smáhýsi eru vanmetin lausn í húsnæðismálum í dag. Þau bæta við íbúðum hratt, nýta land sem er þegar til staðar og krefjast minni fjárfestingar. Þau bregðast líka hratt við sveiflum: fjölga þegar eftirspurn eykst og hægja á sér þegar markaðurinn kólnar. Þau opna markaðinn. Ekki bara fyrir stóru aðilana – heldur líka fyrir smærri verktaka og einstaklinga. Niðurstaða Þetta er ekki skortsvandi. Þetta er kerfisvandi. Við þurfum ekki fleiri áætlanir – við þurfum að koma verkefnum af stað. Byggja þar sem fólk vill búa. Tryggja að kerfið virki. Og nýta fleiri leiðir en eina. Ef við gerum það eykst framboð og verð nær jafnvægi. Ef kerfið virkar ekki, koma íbúðirnar ekki. Höfundur er sérfræðingur í atvinnu- og borgarþróun og skipar 4. sætið á framboðslista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar