Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar 16. apríl 2026 06:15 Á tímum þar sem sífellt meira er krafist af starfsfólki, aukinna afkasta og stöðugrar einbeitingar, er athyglisvert að við höfum að mörgu leyti fjarlægst eitt það einfaldasta sem styður við árangur: hvíldina. Ég hef sjálf upplifað mismunandi vinnuumhverfi. Á einum vinnustað var sérstakt hvíldarherbergi og starfsfólk hvatt til að nýta það. Á öðrum hafði ég sófa inni á skrifstofunni minni. Þar gat ég teygt úr mér og svarað tölvupósti í símanum í annarri líkamsstöðu. Þessi einföldu úrræði skiptu meira máli en margur myndi halda. Að breyta um stellingu eða taka stutt hlé gefur aukinn kraft, bætta einbeitingu og meiri afköst. Slík aðstaða getur verið sérstaklega mikilvæg fyrir þá sem finna fyrir líkamlegu álagi í starfi, til dæmis bakverkjum. En hún skiptir ekki síður máli fyrir andlega orku. Sú vitneskja að hægt sé að taka 15 mínútna hvíld getur jafnvel haft áhrif á mætingu starfsfólks, fólk mætir frekar til vinnu þótt það sé ekki í fullu formi, ef það veit að það getur náð sér á strik yfir daginn og gæti því dregið úr veikindafjarvistum. Sumir vinnuveitendur óttast ef til vill að slík aðstaða leiði til leti eða misnotkunar. Raunin er líklega þveröfug. Starfsfólk sem upplifir traust og sveigjanleika sýnir meiri ábyrgð og tengsl við vinnustaðinn sem skilar sér í aukinni framleiðni. Benedikt Jóhannsson sálfræðingur skrifaði áhugaverða grein á Vísi þann 26. mars sl. “Hádegisblundur og pásur – Með viti fremur en striti“ Þar rekur hann að þessi hugsun er í raun ekki ný. Í sveitum landsins tíðkaðist lengi að fólk legði sig stuttlega eftir hádegismat, jafnvel á annatíma við heyskap. Það var ekki merki um leti, heldur skynsemi. Með því að safna kröftum gat fólk unnið betur það sem eftir lifði dags. Benedikt segir einnig í grein sinni að nútíma rannsóknir styðji þetta. Líffræðilegar vökulotur okkar ganga í um 90–120 mínútna sveiflum, þar sem hámarks einbeiting fylgir lágorkustigi sem kallar á hvíld í 15–20 mínútur. Ef við hunsum þessi merki eykst streita, einbeiting minnkar og hætta á kulnun vex. Ef við hlustum hins vegar á líkamann og tökum stutt hlé, aukast afköst á ný. Þrátt fyrir þetta virðist vinnumenning víða ganga í gagnstæða átt. Kaffihlé hafa jafnvel verið skert og sífellt meiri áhersla lögð á samfellda framleiðni. En spurningin er hvort við séum í raun að tapa meira en við græðum. Kannski er kominn tími til að endurhugsa vinnuumhverfið. Ekki með stórkostlegum breytingum, heldur einföldum lausnum: rólegum rýmum, sófum, stuttum hléum og skilningi á því að starfsfólk þurfi að endurhlaða batteríin til þess að auka afköst. Ég hvet atvinnurekendur til að huga að þessum þáttum í þágu starfsfólks en ekki síst framleiðni. Höfundur er í framboði til stjórnar Visku stéttarfélags en félagar í Visku geta kosið í rafrænum kosningum á heimasíðu Visku til kl. 12 fimmtudaginn 16. apríl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Ellen Jacqueline Calmon Mest lesið Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar