Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir, Eva Ísleifs, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Unndór Egill Jónsson skrifa 16. apríl 2026 14:02 Í ágúst 2025 vorum við, myndlistarfólkið Emma Heiðarsdóttir, Eva Ísleifs, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Unndór Egill Jónsson, ásamt Sigurði Árna Sigurðssyni, valin í opnu forvali fyrir lokaða samkeppni um listaverk í almannarými á svonefndum Orkureit í Reykjavík, á horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar. Að lokinni samkeppni kom í ljós að ekki hafði verið farið eftir settum samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna sem allir málsaðilar höfðu samþykkt. Í greininni gerum við grein fyrir helstu annmörkum og skorum á Reykjavíkurborg að bregðast við með ábyrgum og málefnalegum hætti, þannig að tryggt verði að farið sé að settum reglum og traust verði endurreist. Reykjavíkurborg hóf árið 2022 að gera uppbyggingarsamninga við lóðarhafa þar sem kveðið er á um að fjármagni skuli varið til listsköpunar í almannarými. Verklagsreglur um framkvæmd þeirra voru samþykktar í borgarráði 1. febrúar 2024 og er framkvæmd samkeppna í höndum Listasafns Reykjavíkur. Við teljum samningana metnaðarfullt og mikilvægt framtak Reykjavíkurborgar sem stuðlar að því að gera listsköpun í almannarými að órjúfanlegum þætti í þróun nýrrar byggðar, til hagsbóta fyrir bæði myndlistarfólk og samfélagið í heild. Samkeppnin um útilistaverk á Orkureitnum, sem er í eigu SAFÍR, var meðal stærstu verkefna á grundvelli uppbyggingarsamninga Reykjavíkurborgar. Heildarupphæð verkefnisins nam 40 milljónum króna, þar sem Reykjavíkurborg leggur til helming fjárhæðarinnar. Listasafn Reykjavíkur auglýsti eftir þátttöku í opnu forvali og tók skýrt fram að samkeppnin skyldi fara fram samkvæmt samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Slíkar reglur eru ekki formsatriði, heldur lykilforsenda þess að tryggja faglegt sjálfstæði, jafnræði þátttakenda og traust á niðurstöðu dómnefndar. Eftir að forvalsnefndin hafði valið okkur til þátttöku fengum við afhenta samkeppnislýsingu. Þá kom í ljós að Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) átti ekki tvo fulltrúa í dómnefnd, eins og samkeppnisreglur kveða á um, þar sem sæti annars fulltrúans hafði verið afsalað til SAFÍR að beiðni fyrrverandi safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Reglurnar höfðu hvorki verið uppfærðar á heimasíðu SÍM né þátttakendum gerð grein fyrir þessari breytingu þegar auglýst var eftir þátttöku í opnu forvali. Þegar niðurstaða dómnefndar lá fyrir kom í ljós að reglur samkeppninnar höfðu verið brotnar. Fulltrúi SAFÍR sat bæði í forvalsnefnd og dómnefnd, í beinni andstöðu við grundvallarreglu um að sami aðili sitji ekki í báðum nefndum. Allir málsaðilar hafa viðurkennt að brotið hafi verið gegn reglunum og að það sé óumdeilanlegt. Skipan dómnefndar í andstöðu við reglur dregur lögmæti niðurstöðunnar í efa Að undanskildum vinningshafa fórum við fram á að málinu yrði vísað til óháðs sáttarmanns á grundvelli 19. greinar samkeppnisreglna SÍM. Reykjavíkurborg hafnaði þeirri beiðni og taldi niðurstöðuna endanlega, en stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna hefur hins vegar lýst yfir vilja til að láta reyna á slíka sáttameðferð. Neitun Reykjavíkurborgar byggir meðal annars á því að þar sem athugasemdir bárust ekki áður en tillögum var skilað inn eigi 19. gr. samkeppnisreglna ekki við. Sú afstaða heldur ekki vatni, enda lá skipan dómnefndar ekki fyrir fyrr en eftir að niðurstöður voru tilkynntar. Framkvæmd samkeppninnar vekur einnig spurningar um gagnsæi og hæfi. Okkur var boðið á einstaklingsfundi með arkitekt á vegum SAFÍR, án aðkomu trúnaðarmanns, en sá sami aðili sat síðar í dómnefnd. Við slíkar aðstæður skapast augljós hætta á vanhæfi eða að minnsta kosti tortryggni um hlutleysi. Þá liggur ekki fyrir skýr starfslýsing fyrir verkefnastjóra Listasafns Reykjavíkur, sem bendir til óljósrar ábyrgðar innan ferlisins. Slíkt samræmist illa kröfum um góða stjórnsýsluhætti, sérstaklega þegar um er að ræða ráðstöfun opinbers fjár. Að virkja 19. gr. samkeppnisreglna er eina leiðin að réttlátri málsmeðferð Málið bendir til kerfislægs vanda. Þegar reglur eru ekki virtar, þeim breytt án gagnsæis og úrræði til úrlausnar ekki virk, veikist traust til opinberra samkeppna. Í því samhengi vakna grundvallarspurningar: Hvaða þýðingu hafa samkeppnisreglur ef ekki er hægt að byggja á þeim þegar á reynir? Hvaða verndar njóta listamenn ef ekki er tryggt að settum reglum sé fylgt? Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur hefur boðið okkur til fundar í því skyni að fara yfir málið. Þótt slíkt frumkvæði kunni að virðast uppbyggilegt, vekur það í reynd fleiri spurningar en svör um annmarka á málsmeðferð. Ekki verður talið samrýmast meginreglum um hæfi og óhlutdrægni að sami aðili fari bæði með framkvæmd samkeppninnar og mat á eigin annmörkum. Slíkar aðstæður undirstrika valdaójafnvægi og draga í efa að fullnægjandi hlutleysis sé gætt. Til að tryggja trúverðugleika og réttláta málsmeðferð er nauðsynlegt að óháður aðili fari yfir málið í heild, dragi fram helstu annmarka á ferlinu og tryggi að allir sem komu að samkeppninni fái kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Að öðrum kosti er hætta á að myndlistarfólk treysti Reykjavíkurborg ekki lengur fyrir framkvæmd þeirra fjölmörgu samkeppna sem framundan eru. Hvers virði eru samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um? Það er því miður of algengt að tími listamanna sé að engu hafður og vinna þeirra talin sjálfsögð, án þess að tryggt sé að farið sé að reglum og faglegum kröfum. Þegar slíkt á sér stað er ekki aðeins verið að bregðast listafólki, heldur einnig þeim grundvallarsjónarmiðum um jafnræði, fagmennsku og réttláta málsmeðferð sem opinberar samkeppnir eiga að byggja á. Hér snýst málið ekki um hvort niðurstaðan teljist endanleg eða hvort besta verkið hafi orðið hlutskarpast, heldur um traust á þeim kerfum sem eiga að standa vörð um fagmennsku og jafnræði. Ef reglum er ekki fylgt og ekki brugðist við af ábyrgð er hætt við að traust rofni og vilji myndlistarfólks til þátttöku fari dvínandi. List í opinberu rými er mikilvæg; hún mótar hvernig við upplifum borgina og tengjumst henni, styrkir menningarlega sjálfsmynd og stuðlar að fjölbreyttara og líflegra borgarumhverfi. Í því samhengi ber Reykjavíkurborg sérstaka ábyrgð á að virða samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um og tryggja vandaða framkvæmd slíkra verkefna. Það snýst ekki aðeins um einstök listaverk, heldur um þá heildarsýn sem mótar þróun borgarinnar og áhrif hennar á lífsgæði, búsetu og aðdráttarafl til framtíðar. Í ljósi þess skorum við á Reykjavíkurborg að hefja óháð sáttaferli og endurskoða afstöðu sína, þannig að tryggt verði að farið sé að settum reglum og traust á framkvæmd opinberra samkeppna verði endurreist til hagsbóta fyrir listafólk og samfélagið í heild. Emma Heiðarsdóttir, Eva Ísleifs, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Unndór Egill Jónsson Höfundar eru listamenn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun