Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 13:43 Alexander Manninger er látinn. Alexander Hassenstein/Bongarts/Getty Images Alexander Manninger, fyrrum landsliðsmarksmaður Austurríkis og félagsliða á við Arsenal og Juventes, lést í bílslysi 48 ára að aldri.
Manninger ók Volkswagen bifreið sinni í Austurríki í morgun og lenti í árekstri við lest þegar hann keyrði yfir lestarteina án öryggishliðs. Farþegarnir um borð í lestinni og ökumaður hennar sluppu óslasaðir en Manninger lést í slysinu. Manninger á langan feril að baki sem atvinnumaður í fótbolta frá 1995-2017. Á ferlinum var hann á mála hjá liðum á Ítalíu, Englandi, Þýskalandi og Austurríki. Hann var leikmaður Arsenal frá 1997-2002 og varð bæði Englands- og bikarmeistari. Í marsmánuði 1998 var Manninger valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Manninger og Marc Overmars fagna FA bikar sigri árið 1998. John Marsh/EMPICS via Getty Images Síðar átti hann eftir að spila fyrir Juventus og verða Ítalíumeistari árið 2012. Ferlinum lauk svo hjá Liverpool árið 2017 en hann spilaði ekki leik fyrir félagið. Eftir að fótboltaferlinum lauk starfaði Manninger sem smiður í heimalandinu, sem er sama starf og hann sinnti áður en fótboltaferillinn fór af stað. La Gazzetta dello Sport tók viðtal við Manninger nýlega, skömmu áður en hann lést. Þar minnist hann fótboltaferilsins af mikilli hlýju og talar af innlifun um tímana hjá stórliðum Evrópu. Fyrstu samskiptin við Wenger hjá Arsenal, árin sem varaskeifa Buffon hjá Juventus og frammistöðuna sem leiddi til þess að Jurgen Klopp fékk hann til Liverpool. Viðtalið má lesa hér.
Andlát Ítalski boltinn Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Sjá meira