Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Rakel Sveinsdóttir skrifar 24. apríl 2026 07:04 Mögulega er stóra apa-sjálfumálið að dragast aftur fram í dagsljósið. Því ef öll verk sköpuð af öðrum en manneskju teljast almenningseign, hvað þýðir það þá varðandi verk sem gervigreindin fær fyrirmæli um að búa til? Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum.
Deilan snerist um það hver ætti myndina. Því hér erum við að tala um sjálfu sem api tók en ekki manneskja! Ljósmyndarinn sem átti myndavélina, taldi sig eiga að fá tekjur fyrir myndina og enn meira flæktust málin þegar dýraverndunarsamtökin PETA lögsóttu ljósmyndarann: Fyrir hönd apans! En er apa-sjálfan kannski besta dæmið sem við eigum til að vekja upp enn fleiri spurningar. Því svo sannarlega stöndum við frammi fyrir nýrri áskorun í dag og það eru myndir og alls kyns annað efni sem gervigreindin býr til. Og þá er spurt: Hver er höfundurinn að því efni? Stóra apamálið rifjað upp Apa-sjálfan fræga var tekin í frumskógi í Indónesíu. Þar sem ljósmyndarinn David Slater var að reyna að mynda hóp af sjaldgæfum makaköpum (e. macaca nigra). Aparnir voru tortryggnir og erfitt að nálgast þá. Slater brá því á það ráð að stilla myndavélinni upp á statíf með sjálfvirkum fókus og flassi. Þetta vakti áhuga apanna. Sem fóru að fikta og skoða: Hvaða fyrirbæri var nú þetta? Fór svo að einn apinn ýtti á takkann, horfandi beint í linsuna, og tók þannig æðislega sjálfu. Og það sem enn betra er: Apinn er eins og skælbrosandi á sjálfunni. Apasjálfan er því eins og sjálfurnar gerast hvað bestar. Að sjálfsögðu fór apasjálfan víðs vegar um netið. Sló í gegn. Enda ekki nema von, þetta er svo sannarlega sjálfa sem bræðir hjörtu. Hún er einfaldlega æðisleg! Fljótlega vaknaði þó grundvallarspurningin: Hver er höfundurinn? Því almennt gildir að ljósmyndarar eiga höfundarrétt mynda og ekki er leyfilegt að nota myndir án þeirra leyfis eða gegn gjaldi um notkun. Spurt var: Átti David Slater myndina, þótt apinn sjálfur hefði tekið myndina? Árið 2011 stillir ljósmyndarinn David Slater upp myndavél á statíf í miðjum frumskógi í Indónesíu. Hvað ætli þetta sé? hugsar apinn eflaust þegar hann byrjar að fikta. Síðan þetta fína bros og TIKK: Æðisleg sjálfa. Sagan sem heldur áfram… Dýraverndunarsamtökin PETA voru samt ósátt. Þau töldu ekki rétt að David Slater ætlaði sér að eigna sér mynd sem api tók. Þau höfðuðu því líka mál. Fyrir hönd apans. Sem fulltrúar hans fóru þau í mál við David Slater. Til að gera langa sögu stutta urðu málalyktir þó að apasjálfuna á enginn. Því dómstólar og bandaríska hugverkastofan enduðu með að segja: Verk sem ekki eru sköpuð af fólki eru almenningseign. BBC veltir hins vegar upp nýrri spurningu í grein sem birtist á dögunum. Þar sem þeirri spurningu er velt upp: Hvað gerist þá nú, þegar tími gervigreindarinnar er runninn upp og alls kyns verk eru nú búin til með vélbúnaði? Myndir, lógó, alls kyns list, tónlist og fleira. Eru þessi verk þá almenningseign vegna þess að gervigreindin er ekki manneskja? Eða tilheyrir höfundarrétturinn einstaklingnum sem gefur gervigreindinni fyrirmæli? Hvernig getur það þó gilt, ef uppstilling David Slater á myndavélabúnaði í frumskógi í Indónesíu tryggði honum ekki höfundarrétt? Í samhenginu er nefnilega líka mikilvægt að horfa á tímalínuna. Því apasjálfan er tekin árið 2011, dómsmálin meira og minna í gangi tímabilið 2014-2018 eða þar um bil; sumsé.... fæstir farnir að gera sér grein fyrir því hvað gervigreindin yrði fær um að gera nokkrum árum síðar. Enn ein áskorunin snýst einmitt líka um tímalínuna. Því nú er ljóst að dómstólar og stjórnsýsla almennt, er engan veginn að ná að endurskoða reglur, dæma um mál og svo framvegis, á þeim hraða sem við erum að sjá tækniframfarir eða verk verða til með aðstoð gervigreindar.
Tækni Gervigreind Tengdar fréttir „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi. 6. maí 2024 07:01 Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Ef það er hægt að tala um eitthvað smá trend í fjölmiðlum erlendis um þessar mundir, þá tengist það tilraunum tengdum gervigreindinni og jafnvel djúpfölsunum. Þar sem fjölmiðlarnir sjálfir, eða blaðamenn og ritstjórar, eru að prófa hversu raunverulegar djúpfalsanirnar eru. 31. mars 2026 07:00 Glæpamenn í fjarvinnu Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þróun atvinnulífsins síðustu misseri þar sem tæknin er svo sannarlega að opna margar nýjar dyr. 13. febrúar 2026 07:00 Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Það er ákveðinn stjörnuljómi sem fylgir spjallinu við Soffíu Kristínu Jónsdóttur framkvæmdastjóra og eiganda Iceland Sync. Enda gefur hún okkur innsýn í heljarinnar starfsemi á bakvið tjöldin; Hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá fræga fólkinu. 16. júní 2025 07:00 „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00 Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
„Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi. 6. maí 2024 07:01
Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Ef það er hægt að tala um eitthvað smá trend í fjölmiðlum erlendis um þessar mundir, þá tengist það tilraunum tengdum gervigreindinni og jafnvel djúpfölsunum. Þar sem fjölmiðlarnir sjálfir, eða blaðamenn og ritstjórar, eru að prófa hversu raunverulegar djúpfalsanirnar eru. 31. mars 2026 07:00
Glæpamenn í fjarvinnu Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þróun atvinnulífsins síðustu misseri þar sem tæknin er svo sannarlega að opna margar nýjar dyr. 13. febrúar 2026 07:00
Bissnessinn í tónlist: „Þetta er ekki lengur eins og þetta var í gamla daga“ Það er ákveðinn stjörnuljómi sem fylgir spjallinu við Soffíu Kristínu Jónsdóttur framkvæmdastjóra og eiganda Iceland Sync. Enda gefur hún okkur innsýn í heljarinnar starfsemi á bakvið tjöldin; Hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá fræga fólkinu. 16. júní 2025 07:00
„Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Við höfum ákveðna ímynd af hökkurum úr sjónvarpinu. Sem reyndar á ekki að skrifa sem hakkari, heldur hjakkari að sögn Gyðu Bjarkardóttur hjakkara og hugbúnaðarprófara. 19. maí 2025 07:00