Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar 17. apríl 2026 13:03 Staðan í samgöngumálum Vestmannaeyja er ekki lengur bara áhyggjuefni heldur er hún orðin óásættanleg. Það er ekki lengur hægt að tala um þetta sem tímabundið ástand eða óheppni. Þetta er staðfestur kerfisbrestur. Á sama tíma og ferðaþjónustan, ein mikilvægasta atvinnugrein landsins, ætti að vera að fara af stað af fullum krafti, eru afbókanir byrjaðar að hrannast upp, tekjur að hverfa og traust ferðamanna að brotna niður. Vorið er komið og veðrið hefur verið með besta móti síðustu daga, eins og innviðaráðherra kallaði eftir. Samt bólar ekkert á Landeyjahöfn. Dýpkunarskipið Álfsnes ræður einfaldlega ekki við verkefnið. Ef við eigum að tala mannamál þá er þetta eins og að setja snjóplóg á Toyota Yaris og ætlast til að hann haldi Hellisheiði opinni miðað við afkastagetuna. Erum við farin að gefa mætingaverðlaun fyrir dýpkunarskip líka? Staðan heldur áfram að versna. Álfsnes nær ekki að sinna dýpkun. Herjólfur siglir á annarri skrúfu. Ferðir lengjast og óvissan eykst. Engar raunverulegar úrbætur í flugi. Og nú á jafnvel að endurskoða flugbrúna. Á sama tíma hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu og Vestmannaeyjabær fjárfest fyrir milljónir króna í markaðssetningu. Til hvers? Svo ferðamenn komi að lokuðum dyrum? Þetta er ekki nýtt vandamál. Á Alþingi hefur komið fram (þökk sé Karli Gauta hjá Miðflokknum) að Landeyjahöfn hefur aldrei verið fullkláruð, að vandinn með sandburð var þekktur frá upphafi og að tillögur um úrbætur voru samþykktar árið 2019. Ekkert af þessu hefur verið leyst. Nokkrar staðreyndir um stöðuna í dag: Ekki einn heill áætlunardagur í Landeyjahöfn síðan 16. janúar Engin ferð í Landeyjahöfn frá 20. febrúar til dagsins í dag Aðeins 8 heilir dagar frá Landeyjahöfn frá áramótum Dýpkun mistekist ítrekað þrátt fyrir glugga Herjólfur siglir á annarri skrúfunni. Baldur kemur á meðan viðgerð stendur sem þýðir færri bílar á bíladekki og það er biðlisti í allar ferðir. Ríkisstjórnin er að bregðast Eyjum Án þess að vera dramatískur þá erum við að tala um daga/vikur þar til farið verður að slökkva ljós í fyrirtækjum í bænum. Samfélag með um 5000 íbúa situr eftir í óvissu Útgerðarfyrirtæki fá minna fyrir afurðina sína Rekstur Herjólfs þyngri Við erum farin að missa sumarið í apríl. Ef fólk kemst ekki til og frá Eyjum þá stoppar ferðaþjónustan, atvinnulífið veikist og traust tapast sem tekur ár að byggja upp aftur. Spurningin er einföld. Hvað ætlið þið að gera NÚNA!? Höfundur er oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar