Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar 18. apríl 2026 08:00 Við getum ekki lengur rætt þróun verðbólgu eins og hún sé tímabundið leiðindamál sem leysist af sjálfu sér. Ný hagspá Landsbankans er í því ljósi alvarleg viðvörun. Þar er gert ráð fyrir miklum verðbólguþrýstingi út árið, 4,8 prósenta meðalverðbólgu á árinu og jafnvel 8,25 prósenta stýrivöxtum. Jafnframt minnir bankinn á (eins og flestir raunar telja) að það standi tæpt með forsendur kjarasamninga síðar á árinu. Áhyggjur Landsbankans eru bein áminning um að staða margra heimila getur versnað verulega á næstu mánuðum ef ekkert verður að gert. Nýkynntar aðgerðir duga ekki Um leið blasir við að nýkynntar aðgerðir ríkisstjórnarinnar duga ekki til. Það segir Landsbankinn nú með skýrum hætti þegar hann bendir á að tímabundin lækkun bensínverðs ein og sér í fjóra mánuði (1. maí – 31. ágúst) muni ekki duga til að draga úr verðbólgu. Niðurstaðan af því er þó ekki að hætta beri við aðgerðina. Aðgerðin er í sjálfu sér ágæt. Staðreyndin er einfaldlega sú að grípa þarf til fleiri, markvissari og trúverðugri aðgerða strax. Hugmyndir Framsóknar Í núverandi stöðu er glapræði að halda að stjórnvöld geti haldið óbreyttu striki. Fyrir mörg heimili snúast næstu mánuðir ekki um torskildar kenningar um hagstjórn. Þeir munu snúast um afborganir, matarkaup, húsaleigu, bensínkostnað og það hvort ráðstöfunartekjurnar dugi út mánuðinn. Síðastliðinn fimmtudag kynnti Framsókn því sex hugmyndir í efnahagsmálum. Tvær þeirra snúa beint að veski almennings og daglegum útgjöldum heimilanna. Þessar hugmyndir varða annars vegar lækkun matarverðs og lækkun bifreiðakostnaðar. Þar er hugsunin einföld en mikilvæg: þegar þrýstingur eykst á heimilin þarf að létta undir þar sem fólk finnur mest fyrir því. Samhliða aðgerðum sem styðja við heimilin og fyrirtæki þarf að breyta sjálfu verklaginu í opinberum fjármálum svo ríkið sé ekki sjálft að auka verðbólguþrýstinginn með eigin ákvörðunum. Lækkun matarskatts er bæði sanngjörn og skynsamleg Ein mikilvægasta tillaga Framsóknar er að virðisaukaskattur á matvæli lækki úr 11 prósentum í 7 prósent frá 1. maí til 1. október 2026. Í dag bera matvæli lægra virðisaukaskattsþrep á Íslandi, 11 prósent, á meðan almenna þrepið er 24 prósent. Lækkun í 7 prósent myndi því skila sér beint inn í dagleg útgjöld heimilanna ef hún færi út í verðlag. Ríkisstjórnin hefur kynnt svipaða aðgerð en hún nær aðeins til 1. september 2026, og engar aðrar aðgerðir hafa verið boðaðar. Lækkun matarverðs er bæði réttlætis- og efnahagsmál. Matur og óáfengir drykkir vega þungt í vísitölu neysluverðs, og Hagstofan hefur staðfest að verðhækkun í þeim lið einum hafði haft merkjanleg áhrif á vísitöluna undanfarna mánuði. Þess vegna er eðlilegt að gera ráð fyrir að lækkun matarskatts geti haft raunveruleg áhrif á verðbólgu, jafnvel um allt að hálft prósentustig ef lækkunin skilar sér að fullu út í verð til neytenda. Þegar matur hækkar í verði finna öll heimili fyrir því strax. Þess vegna er lækkun matarskatts bein velferðaraðgerð og skýr verðbólguaðgerð. Ríkið verður að hætta að auka vandann Framsókn lagði ekki fram eina staka tillögu um lækkun matarskatts og lét þar við sitja. Flokkurinn kynnti sex hugmyndir sem mynda heild. Þar á meðal eru tillögur um verðbólgusíu og samræmdari gjaldastefnu hins opinbera (sem gera á gjaldahækkanir fyrirsjáanlegri), auk aðgerða sem ætlað er að draga úr framfærslukostnaði heimilanna, þar á meðal lægra matarverð, lægri bifreiðakostnað og vernd fyrir leigjendur. Kjarni málsins er sá að kostnaður aðgerðaleysis getur orðið meiri en kostnaður skynsamra tímabundinna aðgerða. Við megum ekki leyfa okkur að vona einfaldlega að vandinn gangi yfir. Of mikið er í húfi. Nú er tíminn til að bregðast við af festu. Ef fram fer sem horfir mun hluti heimila og fyrirtækja lenda í verulegum þrengingum á næstu mánuðum. Þá ber ríkisstjórninni einfaldlega skylda til að gera meira og gera það strax. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Efnahagsmál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar