„Ég sé engin rök fyrir því“ Eiður Þór Árnason skrifar 19. apríl 2026 16:03 Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur. Aðsend/EPA „Við erum ekki að afsala okkur einhverri ákvarðanatöku í gegnum aðlögunina. Það er að einhverju leyti erfitt að átta sig á af hverju þetta er svona rosalega mikið í umræðunni, nema þá út frá því að það sé eins og okkur steðji einhver ógn af þessu og við séum að gera einhverjar breytingar sem sé ekki hægt að draga til baka. En ég sé engin rök fyrir því.“
Þetta segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi verkefnastjóri Evrópuvefs HÍ. Deilt hefur verið um það hvort Ísland myndi eiga í aðildarviðræðum eða aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið ef meirihluti kýs að ganga til viðræðna í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það má í rauninni segja almennt að þá eru þessar viðræður bæði aðildarviðræður og aðlögunarviðræður,“ sagði Vilborg við Kristján Kristjánsson í Sprengisandi á Bylgjunni. Á sama tíma hafi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fengið það í gegn að fresta aðlögunarhlutanum þangað til að innganga í ESB væri samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Klippa: Viðræður við ESB í senn aðildar- og aðlögunarviðræður Það sem skeri Ísland úr frá öðrum umsóknarríkjum sé að það er hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og hefur verið það í þrjátíu ár. „Þannig að við erum í allt annarri stöðu heldur en umsóknarríki almennt hafa verið síðustu tuttugu árin. Þar liggur munurinn. Við erum þegar búin að vera að aðlagast regluverki ESB síðastliðin þrjátíu ár.“ Vissulega eigi annað við á sviðum sem falli ekki undir EES-samninginn á borð við sjávarútveg, landbúnað og myntmál. „Þá byrjum við að breyta og aðlagast regluverki Evrópusambandsins á þessum sviðum meðan á viðræðunum stendur, áður en þjóðin hefur ákveðið hvort hún vilji gerast aðili að Evrópusambandinu eða ekki. Þetta er það sem er gagnrýnt. Í aðildarviðræðunum á kjörtímabilinu 2009 til 2013 þá komust stjórnvöld hjá þess konar aðlögun. Í rauninni sömdum við við Evrópusambandið um að breyta ekki reglum á Íslandi meðan á ferlinu stæði en vinna annars konar undirbúning. Þetta snýst sem sagt um að aðildarríki séu klár ef það verður samþykkt að ganga í sambandið.“ Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009 og hófust viðræður um ári síðar.Getty Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi komist hjá þessum reglubreytingum á sínum tíma með því að gera nákvæmar áætlanir um hvernig það yrði gert ef aðild yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. „En það reyndi kannski ekki almennilega á það vegna þess að erfiðustu málaflokkarnir og stærstu voru náttúrulega eftir þegar viðræðum var slitið,“ segir Vilborg. Hún á von á því að ef einhverjar breytingar yrðu gerðar í aðildarviðræðuferlinu og inngöngu síðar hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu þá væri hægt að bakka með þær ef vilji væri til þess. „Ég sé ekki hvernig við getum ekki tekið til baka breytingar sem við gerum á lögum í gegnum þingið.“ Ekki eitthvað óafturkræft Vilborg leggur aftur áherslu á að staða Íslands sé óhefðbundin. „Við erum ekki eins og umsóknarríkin hafa verið síðustu áratugi sem raunverulega vilja mjög ákveðið fara inn og hafa ekkert á móti því að aðlaga sig smám saman að regluverkinu því auðvitað markmiðið er innganga. Við erum svona frekar í þessari „kíki í pakkann“ nálgun svolítið. Nú eru andstæðingar að setja það fram eins og það geti verið í rauninni eitthvað óafturkræft og eitthvað hættulegt en ég þarf bara miklu frekari rök fyrir því. Ég sé ekki að það geti verið raunin.“ Hún telur það aukaatriði hvort talað sé um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið eða halda þeim fyrri áfram. „Við sjáum að það er ekki meirihluti fyrir því meðal þjóðarinnar og ekki heldur í þinginu að ganga inn. En ég held að margir séu forvitnir um hvað myndi felast í því.“ Sjávarútvegskaflinn var ekki opnaður í aðildarviðræðum við ESB sem hófust árið 2010.Vísir/SIgurjón Fólk vilji mögulega fá svör við því hvað Ísland myndi græða á því að ganga inn í sambandið. „Það einhvern veginn ber meira á umræðunni á móti og þá er það kannski komið frekar út í ákveðinn hræðsluáróður. Við stöndum vel efnahagslega, fólk hefur það nokkuð gott. Ég held að í mörgum ríkjunum auðvitað er það ekki raunin og fólk bara þráir að fá betri efnahag, betri umgjörð og svo framvegis. Við erum öðruvísi hvað það varðar. En það er þar með ekki sagt að það sé ekki hægt að semja um ákveðnar lausnir og það er ekki þar með sagt að Evrópusambandið skilji ekki að við erum öðruvísi. Þau átta sig alveg á því. Við erum ríkt ríki, þetta er annars eðlis. Þannig að það er ekki alveg hægt að bera það heldur saman við ríki sem hafa sótt um áður úr Austur-Evrópu til dæmis og á Balkanskaga. Þetta er annað.“ Sjávarútvegurinn spili stórt hlutverk Vilborg telur að stór hluti Íslendinga sé óákveðinn þegar kemur að inngöngu í ESB og sjávarútvegurinn spili þar stórt hlutverk. Aðlögunin snúist að hluta til að því að stjórnsýslukerfið sé tilbúið að uppfylla skuldbindingar aðildar ef af henni verður. Það varði til að mynda stofnanastrúktúr og að ákveðin kerfi séu til staðar sem séu virk sem fyrst eftir að aðildarsamningur gengur í gegn. Gagnlegt væri ef ríkisstjórnin gæfi út að hún myndi nálgast hugsanlegar viðræður líkt og fyrri stjórnvöld, að sögn Vilborgar, þar sem því var lýst yfir að aðlögun yrði frestað. Vilborg á von á því að viðræðurnar um sjávarútvegsmál verði flóknastar en sá kafli var ekki opnaður í síðustu aðildarviðræðum. Hún á von á því að heildartími viðræðna verði lengri en ríkisstjórnin hafi gert ráð fyrir. Liggi ekki fyrir hvort samþykkja þurfi aðildarumsókn aftur Vilborgu finnst óljóst hvort aðildarríki ESB muni aftur þurfa að samþykkja að hefja aðildarviðræður við Ísland ef sú niðurstaða verður ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni. „Þetta er ákveðið frumkvöðlastarf hjá okkur Íslendingum að vera með tvær þjóðaratkvæðagreiðslur. Það hefur ekki verið gert áður þannig að það er ekki fordæmi fyrir því.“ Ursula Von Der Leyen er forseti framkvæmdastjórnar ESB.Vísir/EPA Almennt sé nálgunin hjá Evrópusambandinu sú að næsta skref feli í sér aðildar- og aðlögunarviðræður en Ísland sé frekar sérstakt tilfelli líkt og áður segir. „Það er þessi spurning, getum við samið af okkur þessa aðlögun, það er að segja með því að gera nákvæmar áætlanir, innleiðingaráætlanir og annað um hvernig við munum taka upp löggjöfina ef við segjum já í síðari atkvæðagreiðslu.“ Vilborg bendir á að mikið af gagnlegu efni sé að finna á Evrópuvefnum. Unnið sé að því að uppfæra efni á vefnum en mikið af svörum frá tíma síðustu aðildarviðræðna eigi enn við. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Sprengisandur Utanríkismál Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira