Kópavogsmódelið er lausn sem virkar Karen Rúnarsdóttir skrifar 21. apríl 2026 11:31 Það er ekki alltaf auðvelt að skipta um skoðun, en stundum er það einfaldlega það eina rétta í stöðunni. Það sem skiptir mig mestu máli er fjölskyldan og að lifa í jafnvægi við samfélagið mitt. Ég hef, bæði sem foreldri og einstaklingur, tekið virkan þátt í skólasamfélaginu og setið í skólaráði grunnskóla barnanna minna, tekið virkan þátt í foreldrafélaginu og gegnt hlutverki bekkjarfulltrúa. Þessi þátttaka hefur gefið mér tækifæri til að sitja í leikskólanefnd og menntaráði sem fulltrúi foreldra fyrir hönd SAMLEIK og SAMKÓP. Þar hef ég öðlast mikilvæga innsýn í áskoranir og tækifæri innan kerfisins og finn jafnframt á eigin skinni áhrif breytinga sem vinnandi foreldri. Þegar ég sat í leikskólanefnd glímdu leikskólar í Kópavogi við verulega manneklu sem leiddi til lokana og ófyrirsjáanleika. Ástandið var erfitt fyrir alla hlutaðeigandi og kallaði á skýrar aðgerðir. Viðbrögð Sjálfstæðisflokksins var Kópavogsmódelið. Ég hafði verulegar efasemdir og lét þær í ljós innan leikskólanefndar, í foreldra samfélaginu og opinberlega. En breytingarnar skiluðu árangri sem var ekki hægt að líta framhjá. Kostnaður vegna fulls leikskóladags jókst en lokunardögum var útrýmt, börn komust nú yngst 12 mánaða inn í leikskóla og meira jafnvægi skapaðist. Í ljósi þeirra jákvæðu breytinga sem Kópavogsmódelið hafði í för með sér gat ég ekki annað en endurmetið afstöðu mína og skipti um skoðun. Ég býð mig fram í 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Það er mín sannfæring að við eigum að velja lausnir sem virka og byggja sterkara samfélag fyrir fjölskyldur í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira
Það er ekki alltaf auðvelt að skipta um skoðun, en stundum er það einfaldlega það eina rétta í stöðunni. Það sem skiptir mig mestu máli er fjölskyldan og að lifa í jafnvægi við samfélagið mitt. Ég hef, bæði sem foreldri og einstaklingur, tekið virkan þátt í skólasamfélaginu og setið í skólaráði grunnskóla barnanna minna, tekið virkan þátt í foreldrafélaginu og gegnt hlutverki bekkjarfulltrúa. Þessi þátttaka hefur gefið mér tækifæri til að sitja í leikskólanefnd og menntaráði sem fulltrúi foreldra fyrir hönd SAMLEIK og SAMKÓP. Þar hef ég öðlast mikilvæga innsýn í áskoranir og tækifæri innan kerfisins og finn jafnframt á eigin skinni áhrif breytinga sem vinnandi foreldri. Þegar ég sat í leikskólanefnd glímdu leikskólar í Kópavogi við verulega manneklu sem leiddi til lokana og ófyrirsjáanleika. Ástandið var erfitt fyrir alla hlutaðeigandi og kallaði á skýrar aðgerðir. Viðbrögð Sjálfstæðisflokksins var Kópavogsmódelið. Ég hafði verulegar efasemdir og lét þær í ljós innan leikskólanefndar, í foreldra samfélaginu og opinberlega. En breytingarnar skiluðu árangri sem var ekki hægt að líta framhjá. Kostnaður vegna fulls leikskóladags jókst en lokunardögum var útrýmt, börn komust nú yngst 12 mánaða inn í leikskóla og meira jafnvægi skapaðist. Í ljósi þeirra jákvæðu breytinga sem Kópavogsmódelið hafði í för með sér gat ég ekki annað en endurmetið afstöðu mína og skipti um skoðun. Ég býð mig fram í 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Það er mín sannfæring að við eigum að velja lausnir sem virka og byggja sterkara samfélag fyrir fjölskyldur í Kópavogi.