„Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Jakob Bjarnar skrifar 22. apríl 2026 15:20 Ólafur þakkar Guðna ábendinguna og ætlar að drífa sig í Costco til að fá sér bitann sem Guðni fúlsaði við. vísir/ívar fannar/vilhelm Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir Guðna Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, á algjörum villigötum þegar hann talar um kolefnisspor nýsjálensks lambakjöts sem hann fann í Costco.
Vísir greindi frá því að Guðna beinlínis brá þegar hann rakst á nýsjálenskt lambalæri í Costco sem hann sagði hafa verið flutt um 18 þúsund kílómetra „Þetta nýsjálenska lambalæri hefur verið flutt um 18 þúsund kílómetra og er boðið neytendum á niðursettu verði í Costco. Blóðmassinn svartur sem hel. Viðbjóðsleg vara,“ segir Guðni forviða. Hann telur þetta vart boðlegt en á næsta borði var glæsilegt vel framreitt íslenskt lamb, vel merkt og girnilegt. Munurinn íslenska lambinu í óhag „Hvaða aulum dettur þetta í hug, að setja annað eins og þetta inn í þann helgidóm sem er eitt besta lamb heimsins, framleitt með lyng- og villibráðarbragði. Hverjum er verið að þjóna og hvert er kolefnissporið? Skammist ykkar gráðugu og ósvífnu menn. Hverjir standa fyrir þessum innflutningi?“ Ólafur las fréttina af athygli og sagði að Guðni hefði spurt áður og fengið svar. Í Fréttablaðinu í ágúst 2019, í grein Þórólfs Matthíassonar. „Þórólfur notaði útreikninga Environice, sem reiknaði kolefnisspor íslenzka lambakjötsins fyrir Landssamband sauðfjárbænda. Niðurstaðan var 28,6 kg. CO₂-ígilda á kíló íslenzks lambakjöts, en 23 kg CO₂-ígilda á kíló af nýsjálenzku lambakjöti, að flutningnum (4 kg) meðtöldum. Munurinn var íslenzka lambinu í óhag,“ segir Ólafur. Samkvæmt nýrri tölum frá 2022 er kolefnisspor nýsjálensks lambakjöts 15 kg á kíló, 19 kg ef menn halda sig við að flutningurinn losi um 4 kg CO₂-ígilda á kíló. „Útreikningar Matís frá því í fyrra tóku kolefnislosun vegna landnotkunar í þágu lambakjötsframleiðslu á Íslandi með í reikninginn, sem Environice gerði ekki, og þá koma út 47,2 kg CO₂ á hvert kíló lambakjöts. Kolefnisspor íslenzka lambakjötsins er samkvæmt þessu meira en tvöfalt stærra en þess nýsjálenzka.“ „Ég sé að Guðna finnst nýsjálenzkt lambakjöt ógeðslegt“ Ólafur segir það algengan misskilning eða mýtu að ef vara sé flutt yfir hálfan heiminn hljóti það að þýða að hún hafi stærra kolefnisspor en innlend vara. „Flutningur vöru um langan veg þarf alls ekki að þýða að hún hafi stærra kolefnisspor en innlend vara – framleiðsluferlið útskýrir yfirleitt mun stærri hluta kolefnissporsins en flutningurinn. Það á klárlega við í kjötframleiðslu, en ekki í til dæmis framleiðslu grænmetis.“ Ólafur segir það algengna misskilning eða mýtu að ef vara sé flutt yfir hálfan heiminn hljóti það að þýða að hún hafi stærra kolefnisspor en innlend vara.vísir/ívar fannar Ólafur víkur að smekk Guðna sem honum finnst nógu góð ástæða. En smekkur manna sé misjafn. „Ég sé að Guðna finnst nýsjálenzkt lambakjöt ógeðslegt, sem er alveg nægileg ástæða til þess að hann ákveði að kaupa það ekki. Smekkur manna er misjafn – nýsjálenzkt lambakjöt þykir almennt vera gæðavara. En hann getur ekki notað kolefnisfótsporið sem röksemd gegn því að íslenzkir neytendur leggi sér nýsjálenzkt lamb til munns. Ég er honum þakklátur fyrir ábendinguna, fer í Costco að ná mér í bita.“
Landbúnaður Verslun Lambakjöt Félagasamtök Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira