Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar 24. apríl 2026 13:32 Það er að koma sífellt betur í ljós að klaufagangur forseta Bandaríkjanna í Miðausturlöndum á eftir að reynast heimsbyggðinni dýrkeyptur. Skipaumferð um Hormússund er enn að mestu leyti lokuð og ein afleiðing þess (en alls ekki sú eina) er hækkun eldsneytisverðs. Þjóðir heims eru að bregðast við þessum hækkunum með ýmsum hætti. Algeng viðbrögð eru að draga úr álögum ríkisins á eldsneytissölu, og ríkisstjórn Íslands er ein þeirra sem hafa nú þegar gripið til slíkra aðgerða. Í Evrópu er að minnsta kosti ein þjóð hins vegar farin að breyta um stefnu: Frakkland. Eftir síðustu orkukreppu, þegar verð á olíu og jarðgasi rauk upp úr öllu valdi vegna stríðsins í Úkraínu, gripu frönsk yfirvöld til þessarar sömu aðferðafræði: niðurgreiðslur á orkukostnaði heimila á línuna, „hvað sem það kostar“, eins og það var orðað þá. En nú virðast franskir stjórnmálamenn hafa lært sína lexíu og tónninn er að breytast. Almennar niðurgreiðslur á innfluttu jarðefnaeldsneyti hafa reynst ríkinu gríðarlega dýrkeyptar og skuldir ríkisins eru komnar í hæstu hæðir (115% af vergri landsframleiðslu). En mikilvægast af öllu, núverandi forsætisráðherra virðist átta sig á því að orkukreppur eru ekki „tímabundið vandamál“ sem við þurfum bara að komast í gegnum svo að allt verði síðan eins og það hefur alltaf verið. Orkukreppur eru orðnar að kerfisbundnu vandamáli í heimi þar sem aðgangur að jarðefnaeldsneyti er að verða sífellt takmarkaðri, sérstaklega fyrir Evrópuþjóðir sem eru fátækar af jarðefnaeldsneyti. Pexels Í því ljósi virka skattalækkanir og aðrar almennar niðurgreiðslur í besta falli sem mjög kostnaðarsamt deyfilyf sem engan veginn leysir vandamálið. Spurningin er ekki hvort, heldur hvenær næsta orkukreppan kemur, og eina leiðin til að draga úr áhrifum slíkra atburða er að draga sem mest úr notkun jarðefnaeldsneytis á öllum sviðum hagkerfisins.Það er meðal annars gert með því að rafvæða samgöngur. Og þar hafa frönsk stjórnvöld notast við óvenjulegt verkfæri sem hefur gefið góða raun, eins og lýst er í nýlegri grein á miðlinum Euractiv. Hugmyndafræðin er þessi: frekar en að eyða peningum í dýrar skammtímalausnir skulum við frekar fjárfesta í langtímalausnum sem geta leyst vandamálið í eitt skipti fyrir öll. Og frekar en að niðurgreiða lausnina jafnt yfir alla, óháð raunverulegum þörfum og aðstæðum hvers og eins, skulum við frekar beina aðstoðinni að þeim sem þurfa virkilega á henni að halda. Þetta hafa yfirvöld í Frakklandi gert með því að setja á fót fjármögnunarleigu rafbíla á vegum ríkisins. Kerfið virkar þannig að almennir borgarar geta að uppfylltum skilyrðum fengið að taka rafbíl í niðurgreidda langtímaleigu fyrir 50 til 150 € á mánuði (frá 7.500 kr. upp í 22.000 kr.). Þegar leigusamningurinn rennur út (3 til 6 ár) getur leigjandinn valið annaðhvort um að skila bílnum eða kaupa hann endanlega en þá er sú upphæð sem hann hefur nú þegar greitt í leigu dregin frá heildarverði bílsins. Skilyrði fyrir því að hafa aðgang að slíkri „félagslegri bílaleigu“ eru tvenns konar: annars vegar þarf umsækjandinn að hafa tekjur undir ákveðnu marki (sem er um það bil meðalgildi launa í Frakklandi), og hins vegar þarf viðkomandi að búa 15 kílómetra eða lengra frá vinnustaðnum sínum eða keyra meira en 8000 kílómetra á ári vegna vinnu sinnar. Þar að auki eru aðeins í boði litlir og sparneytnir rafbílar, enda ekki ætlunin að niðurgreiða lúxusbíla. Þetta kerfi tryggir að fjármunir ríkisins nýtist sem best þar sem þörfin er mest. Það tryggir líka að landsmenn hafi jafnari aðgang að þeirri tækni sem gerir þeim kleift að komast úr hlekkjum jarðefnaeldsneytis og verjast verðsveiflum á alþjóðlegum olíumörkuðum. Þegar kerfið var sett af stað í upphafi árs 2024 gerðu yfirvöld ráð fyrir að útdeila 25.000 rafbílum, en á aðeins sex vikum eftir að opið var fyrir umsóknir höfðu 90.000 umsóknir borist. Árið eftir var ákveðið að tvöfalda fjölda samninga upp í 50.000 og nú í síðustu viku var tilkynnt að fjöldinn yrði aftur tvöfaldaður í 100.000 bíla. Miðað við nýlegar verðhækkanir á eldsneyti er erfitt að ímynda sér annað en að rafbílarnir muni seljast (eða „leigjast“) eins og heitar lummur, en 55% umsækjenda um slíka fjármögnunarleigu búa í dreifbýli. Á Íslandi hefur rafvæðing bílaflotans hingað til snúist um að veita styrki óháð tekjum, óháð raunverulegri þörf fyrir aðstoð og óháð þeirri gerð bíla sem keypt er hverju sinni. Þetta hefur verið kostnaðarsamt kerfi sem hefur leitt til þess að þeir sem helst hafa getað eignast rafbíla eru tekjuhærri heimili, sem þurfa minnst á aðstoð að halda og búa gjarnan á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2023 var fjöldi rafbíla á hvern íbúa þrisvar sinnum meiri í Garðabæ en á Höfn í Hornafirði. Með tilkomu fjármögnunarleigu að fordæmi Frakklands væri hægt að leiðrétta þessa skekkju og um leið draga úr neikvæðum áhrifum sem miklar hækkanir á olíuverði munu hafa á heimilisbókhald þeirra sem enn reiða sig á bensín- eða dísilbíla. Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður og meðlimur í loftslagshópnum París 1,5, sem beitir sér fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jean-Rémi Chareyre Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar