Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. apríl 2026 01:46 Trump var vígreifur á blaðamannafundi í kjölfar árásarinnar og sagði hana hafa sameinað viðstadda; blaðamenn og þingmenn beggja flokkar. Þá var mynd af árásarmanninum deilt á Truth Social. Donald Trump Bandaríkjaforseti, eiginkona hans Melania Trump, varaforsetinn JD Vance og ráðherrar voru fluttir í öruggt skjól þegar hættu varð vart á galakvöldverði fjölmiðla í Washington. Fregnir hafa borist af því að skothvellir hafi heyrst og að sögn yfirvalda hefur einn verið handtekinn.
Forsetahjónin voru flutt aftur í Hvíta húsið eftir atburðinn og þar hélt Trump blaðamannafund vegna málsins. Ef marka má erlenda miðla var kvöldverðurinn rétt að hefjast þegar háir hvellir heyrðust. Liðsmenn lífvarðarsveitar Trump (e. Secret Service) þustu samstundis í gegnum salinn að forsetanum og eiginkonu hans og fylgdu þeim á brott. Aðrir gestir földu sig undir borðum og öskur og brothljóð heyrðust í salnum. Samkvæmt New York Times var ekki öryggiseftirlit við inngang Hilton hótelsins þar sem viðburðurinn stóð yfir en gestir voru látnir gangast undir leit þegar þeir fóru inn í kvöldverðarsalinn. Mikill viðbúnaður var hins vegar umhverfis hótelið og svo virðist sem árásarmaðurinn hafi gert tilraun til að hlaupa framhjá öryggisvörðum en verið stöðvaður áður en hann komst inn í salinn. Forsetinn birti þessa færslu á Truth Social um klukkan 1:30 að íslenskum tíma. Shawn McCreesh, blaðamaður New York Times, lýsir því að hafa verið á leið á salernið þegar skothvellir heyrðust í öðrum sal. Hann segir vopnaða öryggisverði hafa komið á móti honum og öskrað á hann að forða sér. Á bakvið verðina hafi fólk verið búið að hnipra sig upp við veggi, aðallega ljósmyndarar og veitingastarfsmenn. Ráðherrar og fylgdarlið hafi í kjölfarið verið fluttir á brott. Viðstaddir hafa lýst fumlausum viðbrögðum lífvarðasveitar forsetans.AP/Tom Brenner Eins og fyrr segir var tilkynnt að kvöldverðurinn héldi áfram en greint hefur verið frá því að verulega hafi fækkað í salnum. Eðli málsins samkvæmt fylgdi hópur gesta forsetanum aftur í Hvíta húsið; blaðamenn sem hafa þann starfa að fjalla um forsetann. Robert F. Kennedy Jr. var meðal þeirra sem öryggissveitir fylgdu úr salnum.AP/Tom Brenner Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sætti banatilræði af hálfu John Hinckley Jr. fyrir utan saman hótel árið 1981. Gríðarlega mikill viðbúnaður var við Hilton hótelið þegar kvöldverðurinn hófst og menn velta því nú fyrir sér hvernig meintur árásarmaður komst inn.AP/Allison Robbert Uppfært: Á blaðamannafundi sem blásið var til í kjölfar atburðarins kom fram árásarmaðurinn hafi verið vopnaður nokkrum skotvopnum. Hann hafi náð að skjóta á einn öryggisvörð en byssuvesti hafi bjargað honum. Forsetinn segir viðburðinn hafa átt að sameina þingmenn beggja flokka og fjölmiðla og að á sinn hátt hafi viðstaddir verið sameinaðir andspænis ógninni. Viðburðurinn hafi átt að snúast um tjáningarfrelsið og boðað verði tli annars kvöldverðar innan 30 daga. Þá segir hann atvikið til marks um nauðsyn þess að reisa samkomusalinn sem nú er unnið að við Hvíta húsið. Trump segir Melaniu, eiginkonu sinni, hafa verið brugðið. Kash Patel, forstjóri Alríkislögreglunnar, var kominn í símann skömmu eftir að hvellirnir heyrðust.AP/Tom Brennan Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra, segir atvikið hafa afhjúpað það versta og besta við Bandaríkin. Kash Patel, forstjóri Alríkislögreglunnar, tekur undir. Þá segir hann rannsókn málsins komna á fullt skrið og unnið að því að taka viðtöl við vitni. Hann hvetur alla sem búa yfir einhverjum upplýsingum til að hafa samband við yfirvöld. Aðspurður segir Trump alltaf áfall að lenda í árás á borð við þessa. Melania hafi áttað sig á undan honum. „Þetta er slæmt hljóð,“ hefur hann eftir henni. Lífverðir hafi komið þeim í skjól á sekúndum. Hann hefði viljað halda kvöldinu áfram en leyniþjónustan krafist þess að hann yrði fluttur í Hvíta húsið. Trump segir það hættulegt starf að vera forseti. Mynd af árásarmanninum hefur verið birt á Truth Social. New York Times hefur eftir heimildarmönnum að hann heiti Cole Tomas Allen, sé 31 árs og frá Kaliforníu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira