Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. apríl 2026 23:41 Byssumaðurinn var tekinn fastur eftir stuttan skotbardaga í anddyri hótelsins. Truth social/Donald Trump Byssumaðurinn meinti sem er grunaður um tilræði við Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta embættismenn á kvöldverðarviðburði í nótt skrifaði bréf til fjölskyldunnar sinnar og vina þar sem hann bað þau afsökunar.
Í bréfinu sem New York Post hefur undir höndum útlistar hinn grunaði, sem heitir Cole Allen og er í haldi, ástæðurnar fyrir því að hann hafi ætlað að ráða Donald Trump og ráðherra hans af dögum. Í bréfinu var sömuleiðis listi skotmarka í forgangsröð. Sérstaklega var tekið fram að yfirmaður alríkislögreglunnar Kash Patel væri ekki skotmark en engin ástæða fyrir því gefin. „Ég get ekki leyft barnaníðingi, nauðgara og landráðamann að ata hendur mínar út í glæpum sínum,“ skrifaði Allen og vísaði væntanlega til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Í bréfinu útlistaði hann það einnig hvernig hann hygðist koma í veg fyrir að of margir dæju fyrir hans hendi að ósekju: nefnilega með því að skjóta höglum í stað kúla vegna þess að höglin brjóta sér ekki eins auðveldlega leið í gegnum veggi. „Ég myndi samt klára flesta hér til að komast að skotmörkunum ef það yrði bráðnauðsynlegt (á þeim forsendum að flestir völdu að hlusta á ræðu barnaníðings, nauðgara og svikara og eru því samsekir) en ég vona svo sannarlega að til þess komi ekki,“ skrifaði hann hins vegar svo. Einnig sagði hann öryggisgæslunni á Hilton-hótelinu sem viðburðurinn fór fram á ábótavant. Allen skrifaði undir bréfið og kallaði sig „vinalega alríkislaunmorðingjann“. Bréfið barst fjölskyldu hans um tíu mínútum áður en hann lét til skarar skríða sem afhenti það um leið lögreglu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira