Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingin Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 28. apríl 2026 09:50 Ísland á alltaf að tala fyrir friði, ekki fara í bandalög með þjóðum sem eru að vígbúast. Því miður erum við í hernaðarbandalagi (NATÓ) við þurfum ekki að ganga til liðs við þjóðir sem eru að hervæðast og eru tilbúnar í stríð, þó ESB sé stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu, hefur Evrópusambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma. Umræða um ESB hér á landi þarf að taka mið af þessari þróun. Ég vil útrýma kjarnavopnum ekki vera undir „fælingarhlíf“ kjarnorkuvopna Emmanuels Macron. Ég vil ekki íslenskan her eða nokkurn annan her á Íslandi, ég vil ekki að ungt fólk verði að drepa hvort annað út af málstað sem þau eru ekki sammála og skilja ekki, ég vil að peningum sé frekar varið í heilbrigðis og menntamál en stríðstól, stríð bitnar alltaf verst á börnum, það eru alveg nógu margar flóttamannabúðir í heiminum. Við þurfum frið, fáum frekar aðrar þjóðir með okkur að tala fyrir friði, ekki taka undir stríðsóp ESB, BNA eða NATÓ Friðarrödd Íslands má ekki þagna, ef við göngum í ESB þá tökum við upp utanríkisstefnu ESB hún er ekki friðsöm og talar ekki fyrir friði Höldum röddinni og tölum hátt og stolt um frið, frið handa öllum Einhver spurði „við hvað eruð þið hrædd“ ég er hrædd við það sem þeir kalla „hernaðarlegt Schengen“ (e. ‘Military Schengen.'), þið ættuð að vera það líka. Ég hvet ykkur til að skoða þetta vel á síðu eu.com opinbera síðu Evrópusambandsins „Í nóvember 2025 kynntu framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og æðsti fulltrúi utanríkismála og öryggismála hernaðarlegan flutningspakka (e. ‘Military Schengen.'), sem miðar að því að tryggja óaðfinnanlega flutninga hermanna, búnaðar og hergagna innan ESB. Reglugerðartillögu sem býður upp á alhliða ráðstafanir til að tryggja hraða, samhæfða og örugga flutninga hermanna og búnaðar innan Evrópusambandsins, styrkir varnarstöðu Evrópu, taka á hindrunum í hernaðarlegum flutningum á öllum sviðum - reglugerðar, innviða og getu - sem nú hægja á herflutningum yfir landamæri.“ Þó þetta hafi verið gert út af ógninni af Rússum þá kemur þetta til með að gilda fyrir öll ríki um hvaða stríðsógn sem ESB telur sig þurfa að verjast. Talsmaður NATÓ staðfestir að innan bandalagsins væru í gangi virkar umræður um leiðir til að auka öryggi á Norðurslóðum, þetta hafa Fulltrúar ESB sem hingað hafa komið segja líka að Ísland sé mikilvægt í vörnum á Norðurslóðum. Carsten Breuer, æðsti yfirmaður þýska heraflans kom til Íslands í fullum herklæðum, staða Þýskalands í Evrópu hefur breyst, sjáið Litháens, þar sem Þýskaland hefur nú fasta hernaðarviðveru í fyrsta skipti síðan nasistar hertóku landið, Þjóðverjar eyða mörgum milljörðum í stríðstól og hernað og þeir eru ekki eina landið í Evrópu sem hefur aukið útgjöld og herstyrk sinn, viljum við taka þátt í þessu? ég mæli með að þið lesið viðtal við hann sem Allan Little hjá BBC news tók þann 27 Mars 2026 Það er Bandarísk herstöð á Miðnesheiði, þó að NATÓ fái að nota hana þá gætu komið upp aðstæður þar sem ESB vildi nota hana en Bandaríkin vildu ekki leyfa það, hvar værum við þá stödd við erum með „samninga“ við báða aðila, hvort á að hlýða pabba eða mömmu? Yrði Ísland hernumið aftur, værum við ófrjáls í okkar eigin landi vegna rangra ákvarðana í afneitun og blindni vegna loforða um betri tíma og lámarksvexti? Hvað ef Frakkar vildu hafa kjarnavopn hér!. Ef við gengum í ESB gæti þessi staða komið upp og við gætum ekkert sagt því í grunnin ráðum við ekki yfir okkur og landinu okkar að fullu lengur. Þetta snýst ekki um varnir Íslands það ætti öllum að vera ljóst, það hefur verið vitað í mörg ár, að halda annað er barnaskapur. „Að nafninu til er bandarískur her í landinu til að verja þjóðina. Flestum er þó ljóst, að þetta er löngu orðið fáránlegt öfugmæli, því að her og herstöðvar geta litla sem enga vörn veitt í nútímastyrjöld, en þvert á móti kalla mikinn háska yfir landsmenn. Herstöðvarnar eru byggðar upp sem liður i vígbúnaðarkerfi Bandaríkjamanna og koma Íslendingum að engu gagni“ Ragnar Arnalds, Jónas Árnason, Jón Sn. Þorleifsson, Lúðvík Jósefsson, Geir Gunnarsson. 1968 Ég enda þetta á ræðu Eysteins Jónssonar (f.1906, d.1993) við stjórnarráðshúsið 18. júní 1944, eins og Ögmundur Jónasson gerir svo oft því "Aldrei er góð vísa of oft kveðin" „En nú kynni einhver að spyrja: Fáum vér starfsfrið og tækifæri til þess að sýna hverju lítil frjáls þjóð fær áorkað? Getur 125 þús. manna þjóð stofnað raunverulega frjálst lýðveldi á þessum tímum, þegar margfalt stærri þjóðir hafa verið lagðar undir okið og er haldið í áþján? Vér svörum þessu þannig: Stofnun þessa fámenna lýðveldis verður prófsteinn á það, sem koma skal eftir þá heljaröld, sem nú er. Það er stofnað í trausti á sigur frelsisins. Það er fætt í von um ósigur ofbeldis og yfirgangs. Það er stofnað í trausti þess, að sambúð þjóða verði sett það markmið, að engin verði annari undirgefin, en allar vinni saman. Vér Íslendingar munum kappkosta að koma þannig fram við aðrar þjóðir, að vér öðlumst vináttu þeirra og traust. Vér munum unna öðrum réttar og sannmælis, en halda á rétti vorum. Slíkar verða landvarnir þjóðarinnar og aðrar eigi“ https://timarit.is/page/1001729?iabr=on#page/n0/mode/2up/ Höfundur er í stjórn Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB, og í Samtökum Hernaðarandstæðinga og langamma Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun