Frumbyggjar og frumkvöðlar í jarðhita Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Jónas Guðnason skrifa 29. apríl 2026 13:02 Eins og margir aðrir Hvergerðingar þá erum við uppalin í og við gróðurhúsin í Hveragerði og eigum þaðan margar kærar minningar. Hér markaðist æskan af návígi við kraftinn í hverunum og jarðskjálftana með ylinn undir fótum okkar og í hjörtum okkar. Hveragerði byggist upp einmitt á þessum forsendum, frumbyggjar bæjarins sáu tækifæri í jarðhitanum og byggðu upp sitt lífsviðurværi á þeim grunni. Hitann nýttu þeir með fjölbreyttum hætti í krafti nýsköpunar og hugvits, hvort sem er við ræktun matvæla, blóma, næringu á líkama og sál eða ferðaþjónustu. Við viljum byggja á þessari sérstöðu bæjarins inn í framtíðina og leggja kapp á að nýta auðlindina sem við höfum í jarðhitanum, bæði til nýsköpunar og uppbyggingar fjölbreyttra atvinnuvega. Það er einstakt að keyra niður Kambana og sjá jarðhitann í og við bæinn. Þar er sóknarfæri. Umfangsmiklar fjárfestingar í orkugeiranum eru fyrirhugaðar í nágrenni Hveragerðis á næstu árum og þar getum við sótt fram og nýtt ýmis tækifæri til uppbyggingar atvinnu innan Hveragerðisbæjar. Setjum áfram markið hátt, höldum á lofti sérstöðunni og ýtum undir þá stoð sem jarðhitinn er í Hveragerði og eflum samfélagið okkar á þeim sterka grunni. Við viljum laða að bænum fyrirtæki sem sjá þessi tækifæri með okkur og skapa fjölbreyttan grundvöll atvinnu í Hveragerði. Slíkt samtal er þegar hafið og við sjáum strax að það er mikill áhugi til staðar og raunverulegir möguleikar til jákvæðra umbreytinga í bæjarfélaginu að þessu leyti. Slík uppbyggingarverkefni hafa verið hluti af miklum viðsnúningi í rekstri bæjarins á kjörtímabilinu með auknum tekjumöguleikum. Viðsnúningi sem treystir grundvöll bæjarins til uppbyggingar innviða og þjónustu öllum íbúum til heilla. Við slíka uppbyggingu þurfa gæði að vera í forgrunni og vanda þarf til verka, rétt eins og hefur verið leiðarstefið á kjörtímabilinu. Yfirstandandi uppbygging Á kjörtímabilinu skrifuðu Hveragerðisbær og Reykjadalsfélagið undir samning um uppbyggingu umfangsmikillar ferðaþjónustu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði, við rætur Reykjadals. Sú fjárfesting mun skila bænum hátt í milljarði króna. Uppbyggingin byggir á jarðhitanum og náttúrufegurðinni í Hveragerði og umhverfi þess. Fyrsti áfangi þessa metnaðarfulla verkefnis er kominn vel á veg og sjá má á svæðinu fallegar nýjar byggingar í gróðurhúsastíl. Á næstu mánuðum er fyrirhuguð opnun á glæsilegu baðlóni á svæðinu sem nýtir jarðhita á svæðinu. Auk baðanna á að byggja upp miðstöð fyrir vinnustofur, ráðstefnusali, veitingastað og gistirými. Framkvæmdirnar eru full fjármagnaðar og skapa m.a. möguleika á aðstöðu til starfs og náms án staðsetningar. Með þessu er sköpuð fjölbreytt þjónusta fyrir bæði íbúa og ferðamenn með heildrænni nálgun með sjálfbærni að leiðarljósi. Við upphaf framkvæmda komu um 400.000 ferðamenn árlega í Reykjadal og reiknað er með aukningu í 700.000 ferðamenn að teknu tilliti til uppbyggingarinnar. Þetta verkefni er til fyrirmyndar um hvernig sveitarfélagið og einkaaðilar geta komið saman og unnið og þróað slíkt verkefni með þeim hætti að allir geti unað vel við. Uppbygging Hveragarðsins Á kjörtímabilinu hefur verið unnið að mögulegum útfærslum á uppbyggingu Hveragarðsins i miðju bæjarins. Heimamenn gera sér mögulega ekki grein fyrir því hve mikil hveravirkni er þar í raun, en þar má finna eldri ummerki jarðhita í hverahrúðri, leirhveri, og svo gýs þar reglulega vatn fjölda metra í loft upp. Að slíkar náttúruperlur séu staðsettar með þessum hætti, þekkist ekki víða og felur í sér stórkostleg tækifæri. Straumur ferðamanna inn á svæðið telur í hundruðum þúsunda og fer stigvaxandi á ári hverju. Þrátt fyrir að svæðinu hafi ekki verið búin sæmandi umgjörð um lengri tíma. Tækifæri felast í sérstöðu hverasvæðisins og þeim möguleikum sem hún veitir t.d. í samstarfi bæjar og einkaaðila til sóknar í alþjóðlega sjóði sem veita styrki til uppbyggingar slíkra verkefna. Þar vinna saman mannlíf, náttúra og frumkvæði. Hægt væri í slíku verkefni að stíla inn á gróðurhúsa- og jarðhitaarfleiðina, bæði í byggingarstíl og öðru. Hægt væri að skapa aðstöðu til rannsókna og nýsköpunar samhliða áherslu á upplifun gesta og heimamanna af hverasvæðinu - sannkallaðaðri perlu í miðri byggð bæjarins með gríðarmikið aðdráttarafl. Áríðandi er í þessu tilliti að gámasvæðið sem blasir við af Hverasvæðinu og önnur slík starfsemi verði færð af svæðinu og tryggð farsæl umgjörð á nýjum stað í samræmi við aðalskipulag. Gerum tækifærin að veruleika Framboðalisti Okkar Hveragerðis vorið 2026 samanstendur af fjölbreyttri flóru fólks sem hefur umfangsmikla reynslu og menntun í þessu tilliti og hefur m.a. lagt jarðfræðina og rannsóknir því tengdu fyrir sig sem ævistarf. Þetta sjónarhorn gefur okkur aukna innsýn í þau tækifæri sem felast í jarðhitanum og náttúrunni í Hveragerði. Við viljum marka leiðina í samvinnu við íbúa og atvinnurekendur á svæðinu og fá að borðinu aðila með ríka þekkingu á þessu sviði. Við viljum setja þessi mál með skýrum hætti á dagskrá og sýna viljann til framtaks og þróunar út á við. Gerum tækifærum til uppbyggingar nýsköpunar-, rannsóknar- og fræðistarfa hátt undir höfði, leitum samstarfs og samvinnu við öfluga aðila og eflum samhliða gróðurhúsa- og grænu ásýndina og heilsueflandi áherslurnar í bænum okkar. Tökum saman markviss og hugrökk skref í átt að öflugri og fjölbreyttri uppbyggingu í Hveragerði með lífsgæðin í forgrunni. Hefjum samtalið, komum á samstarfi og gerum tækifærin að veruleika. Saman getum við gert ótrúlega hluti. Gerum þetta saman fyrir Hveragerði. Höfundar skipa 2. og 3. sæti á lista Okkar Hveragerðis 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun