Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar 30. apríl 2026 13:01 Það var vor í lofti og sólin heilsaði snemma þennan morguninn. Bjart yfir öllu í nálægð við Akranes (eins og við sem búum hér þekkjum) og ég hlakkaði til að koma aftur heim eftir stutta ferð fram og til baka í gegnum göngin til að sinna vinnu á höfuðborgarsvæðinu. 15 gráðu hiti á celsiuskvarða og logn tók á móti mér hérna megin við göngin. Já það var logn. Ég sem stoltur íbúi Akraness hlakkaði ekkert eðlilega mikið til að keyra meðfram tignarlegum trjágarðinum sem umvefur veginn beggja megin við hann í átt að aðalinngangi kaupstaðarins. Hægra megin við veginn, nokkur hundruð metrum áður en ég kem að aðalhringtorginu sem vísar mér tvær leiðir inn í bæinn (nema ég vilji keyra út úr hringtorginu í fyrstu beygju til hægri til að kaupa plöntur í ræktunarstöðinni, fara á hundatúnið eða kíkja á hestana), bíður mín steinhlaðinn veggur með merki Akraneskaupstaðar þar sem ég er sannarlega látinn vita að ég sé mættur á Skagann! Þetta er svo góð tilfinning og ég er svo stoltur af því að sjá merki kaupstaðarins birtast mér í hvert einasta sinn sem mér dettur í hug að fara úr bæjarfélaginu. Stundum keyri ég þessa nokkur hundruð metra út úr bænum einungis til að geta snúið við og séð skjaldarmerki okkar Skagamanna birtast mér aftur og aftur með þessum fagra hætti! Það sem er samt líklega best við að keyra inn í bæinn, líkt og þegar ég kom að hringtorginu þennan fallega vordag, er skúlptúrinn á hringtorginu. Vá! Þvílíkt listaverk. Þvílík aðkoma. Þvílík auglýsing. Þessi skúlptúr ber öll merki sköpunarkrafts, sögu og stolts Akurnesinga frá örófi alda til nútímans. Skúlptúrinn er það fyrsta og síðasta sem gestir, ferðamenn og íbúar sjá þegar farið er þessa leið inn og út úr bænum. Þessi skúlptúr er ekki bara einhver stálklumpur heldur er hann hannaður af listafólki frá Akranesi og framleiddur og framreiddur af fyrirtæki héðan úr kaupstaðnum. Algjört win – win dæmi (í. Sigur fyrir alla aðila). Frábær auglýsing fyrir bæinn hvort sem ég horfi á skúlptúrinn sem myndræna framsetningu á barnvænu skólasamfélagi, kröftugu mannlífi, öflugu atvinnulífi eða framúrstefnulegu íþrótta – og menningarlífi. Ég hugsa alltaf bara vá! Hér vil ég alltaf vera og þetta er bær sem ég vil auglýsa út á við – kassann út og sokkana upp! Mér leið svo vel þennan fallega vordag eftir að hafa valið vinstri útgönguleiðina úr hringtorginu, sem er í raun vinstra megin við Bónus en ég sá verslunarkjarnann ekki fyrr en eftir að ég var kominn hálfa leið inni í hringtorgskeyrsluna, þar sem skúlptúrinn er svo myndarlegur og auðvelt að laðast að honum, en já, höldum fókus í sögunni, eftir að ég keyrði vinstra megin framhjá Bónus, með sólgleraugun að vopni og langaði ekkert meira en að vera á blæjubíl, því þetta var bara þannig augnablik – þá kom höggið:ÉG VAKNAÐI!NEI! Ég trúi þessu ekki. Ég var að upplifa Gumma Ben augnablik:Aldrei vekja mig! Þetta var allt svo raunverulegt og í rauninni af þannig toga að mér fannst ekkert eðlilegra en að þessi einföldu atriði væru til staðar og ég bara trúði ekki að þetta væri of gott til að vera satt. En væri ekki í alvörunni gaman ef þetta gæti verið og væri sannarlega raunin? Væri ekki gaman ef aðkoman að bænum væri falleg með tignarlegum trjágarði? Væri ekki gaman ef fólk vissi hvenær það væri komið á Akranes með því að setja upp fallegan steinhlaðinn vegg með skjaldarmerki kaupstaðarins? Væri ekki gaman ef fólk vissi hreinlega að það sé að keyra á Akranes, svona ef það missti af litla gula skiltinu við hringtorgið eftir göngin sem segir Akranes 10? Væri ekki gaman ef við værum það stolt af Akranesi að við stuðluðum fyrir alvöru að því að nýta og auglýsa fyrirtæki bæjarins sem geta unnið með stálskúlptúr sem listafólkið okkar getur hannað og stendur á besta stað bæjarins? Væri ekki gaman að setja loksins kassann út og toga sokkana upp? Verum stolt af bænum okkar og sýnum það í verki. Mig langar í það minnsta frekar að búa í samfélagi sem lifir í draumi heldur en að loka augum og eyrum fyrir tilverunni og spila aldrei lagið eða hlusta aldrei á textann. Ég lifi í draumi,dreg hvergi mörkin dags og nætur,sveiflast aðeins ósjálfrátt.Í hægum gangi,á fullt í fangi með að finna þaðsem oftast reynist öfug átt.Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum,lentur hringsólandi á vegi miðjum. Væri ekki gaman að setja X við C laugardaginn 16.maí næstkomandi og leyfa okkur öllum að dreyma um enn betra samfélag? Höfundur situr í 3.sæti á lista Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar