Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar 1. maí 2026 10:17 Spurningin hér að ofan er brýnasta spurningin sem íslensk stjórnmál þurfa að svara nú. Takist núverandi utanríkisráðherra (með stuðningi ESB) að gera Ísland að aðildarríki Evrópusambandsins, þá verður ekki lengur hægt að tala um að Íslendingar hafi sjálfstjórn í sínum málum. Þversögnin í málflutningi utanríkisráðherra er sú að Íslendingar eigi að nota sjálfsákvörðunarrétt sinn nú til að fara inn í ríkjabandalag ESB sem fyrirsjáanlega mun veikja og – í mikilvægum atriðum -afnema sjálfsákvörðunarrétt okkar um framtíð Íslands. En þetta er ekki eina dæmið. Fyrir tilstilli RÚV og annarra ríkisstofnanna er athygli Íslendinga föst við smáatriði á meðan netið þrengist smám saman um tilveru okkar. Löngu er orðið tímabært að Íslendingar vakni af Þyrnirósasvefninum og opni augun fyrir því hvernig smám saman er verið að skerða yfirráð okkar yfir eigin orðum, athöfnum, eignum, ferðamáta o.fl. Ég rita þessa grein til að vekja athygli á að enn má stöðva þessa lest og koma í veg fyrir að allt fari á versta veg. Kæru Íslendingar, við berum öll ábyrgð á framtíð landsins okkar og viljum að afkomendur okkar, Íslendingar framtíðarinnar, fái að fæðast frjáls og lifa frjáls. Við viljum geta sagt að við höfum gert allt sem í okkar valdi stóð til að standa vörð um frelsi Íslendinga og sjálfstæði landsins. Alþjóðlegar (og yfirþjóðlegar) stofnanir eins og WHO, SÞ, ESB o.fl. seilast til sífellt meiri áhrifa með stefnumörkun, reglugerðum og áætlunum sem aðildarríkjum er ætlað að framfylgja. Með þessu er dregið úr möguleikum þjóðríkja (og borgara) til að stýra eigin málum með skynsamlegum hætti út frá aðstæðum á hverjum stað. Stöðugt vaxandi stafrænt eftirlit og gervigreindar-vöktun: Ríki og tæknifyrirtæki hafa sett upp net sem verður stöðugt þéttara og myndar nú þegar víðtækt eftirlitskerfi með myndavélum, andlitsgreiningu og gervigreind til að spá fyrir um og stjórna hegðun. Beint og óbeint hefur þetta áhrif á hegðun fólks og takmarkar frelsið með kælingaráhrifum þegar jafnvel einkalífið er orðið vaktað. Rafræn auðkenni og líftækni: Innleiðing stafrænna leiða til auðkenningar og uppsetning á slíkum kerfum tengir alls kyns þjónustu, m.a. ferðaþjónustu, bankaþjónustu og heilbrigðisþjónustu saman á margvíslegan hátt og getur hæglega þróast í miðstýrt stjórnkerfi. Miðstýrðir stafrænir gjaldmiðlar (CBDC) og forritanlegir peningar gera ríkjum kleift að fylgjast með, frysta eða stýra peninganotkun hvern einasta einstaklings (og fyrirtækis). Þetta opnar möguleika á að stýra því hvar menn nota peningana sína og í hvað þeim er ráðstafað. Ritskoðun og takmarkanir á tjáningarfrelsi: Löggjöf um „hatursorðræðu“, „rangar upplýsingar“ og netöryggi (sem allt eru sérstök áhugamál ónauðsynlegustu ríkisstofnunar Íslands, Fjölmiðlanefndar) mun í vaxandi mæli gera ríkisvaldinu kleift að loka á, sekta eða saksækja fólk fyrir skoðanir sem samræmast ekki boðun ríkjandi rétttrúnaðar. Skerðing á líkamlegu og læknisfræðilegu sjálfræði: Með nýjum sóttvarnalögum er opnuð leið inn í framtíð sem Aldous Huxley og Orwell skrifuðu um: Faraldursvottorð, bóluefnaskírteini og þvinguð læknisfræðileg inngrip. Mannréttindi verða afnumin með stjórnvaldsákvörðunum. Loftslags- og umhverfisstefna sem takmarkar valfrelsi fólks: Net-zero reglur, 15 mínútna borgir, hærri gjöld á kjötneyslu, borgarlína, þrengt að einkabílnum, rafbílaþvinganir og kolefnisgjöld til að takmarka ferðalög, miðstýring á notkun rafmagns og hita í húsnæði. Veiking eignarréttar: Aukin eignaupptaka, stífari skipulagsreglur, auðlegðarskattar og frysting bankareikninga hjá þeim sem voga sér að mótmæla. Allt skerðir þetta grundvallarrétt manna til að ráða yfir eigin eignum. Veiking foreldraréttar: Ríkið gert að æðsta yfirvaldi í málefnum sem varða uppeldi og ákvörðunarvald í málefnum barna. Stjórn á menntun og námskrá: Skyldubundin kennsla innan ríkisrekins skólakerfis í alls kyns hugmyndafræði, svo sem kynja- og loftslagsfræðum, sem takmarkar rétt foreldra til að ákvarða hvað börn læra og hvað gildi eru kennd. Innflytjendamál og landamærastjórn: Þjóðir missa stjórn á því hverjum er leyft að koma inn í landið vegna alþjóðlegra samninga og þrýstings frá alþjóðastofnunum. Þetta hefur áhrif á menningu, hagkerfi og öryggi íbúa landsins. Háir skattar og skerðing athafnafrelsis: Háir skattar og þungt regluverk sem hamla frumkvöðlastarfsemi, hefta sjálfstæðan atvinnurekstur og skerða möguleika á fjárhagslegu sjálfstæði. Allt virðist þetta vera réttlætt með vísan til „hagræðingar“, „skilvirkni“ „öryggis“, „sjálfbærni“ eða „réttlætis“, en saman myndar þetta stöðugt þéttriðnara net sem dregur verulega úr möguleikum okkar sem einstaklinga - og sem þjóðar - til að stjórna okkar eigin málum. Eftir að hafa „kíkt“ í alla ofangreinda „pakka“ tel ég að farsælast væri að Íslendingar eigi áfram gott samstarf og frjáls viðskipti við aðrar þjóðir – og að við komum þar fram sem sjálfstæð, frjáls og friðelskandi þjóð, sem stjórnar sínum eigin málum. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Þór Jónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun