Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar 1. maí 2026 22:00 Eins og flestir Íslendingar vita nú er Landeyjarhöfn aðeins nothæf í 8-9 mánuði á ári, sextán árum eftir opnun. Þetta er með algjörlega óásættanlegt og skammarlegt fyrir ríkisstjórnir og samgönguráðherra síðustu 16 ára. Eru menn í alvörunni ennþá að átta sig á straumum, sandburði, öldutíðni, öldulengd, stærð á skipi og öðrum hlutum sem geta haft áhrif á Landeyjarhöfn? Ef mannkynið gat lent á tunglinu árið 1969, fyrir tæpum 60 árum, þá hlýtur íslenska ríkið að geta lokið nauðsýnlegum breytingum sem tryggja opna og örugga Landeyjahöfn allt árið. Með fullri virðingu fyrir Björgun og starfsfólkinu á dýpkunarskipinu Álfsnesi þá er ljóst að þeim hefur verið troðið í þetta verkefni sem þau ráða engan vegin við og munu aldrei gera það miðað við núverandi skipakost. Þurftu ráðuneytið og Vegagerðin í alvöru 16 ár til að átta sig á þessu? Já, í 16 ár hafa samgönguráðherra og starfsfólk Vegagerðarinnar í umboði ráðherra samið um sanddælingu í Landeyjarhöfn vitandi að hér á landi er ekki til fyrirtæki með réttu skipin til að sjá um dýpkun í Landeyjarhöfn. Hver hjá Vegagerðinni ber ábyrgð á þessu? Hver ber ábyrgð Bera yfirmenn stofnunarinnar ekki ábyrgð á að upplýsa ráðherra um stöðuna, eða að skipta út starfsfólki sem hefur ekki borið gæfu til að skila af sér sómasamlegri vinnu, eða hreinlega að skipta sjálfum sér út? Hvaða hagsmunir réðu því að samið var aftur og aftur við aðila sem höfðu ekkert í verkefnið að gera? Fyrir mér liggur þetta einfaldlega svona: Ef þessar stofnanir og starfsfólk þeirra eru ekki starfi sínu vaxið, hvort sem það er t.d. við hönnun, samningagerð um dýpkun, framkvæmdir eða skipulag við að klára Landeyjarhöfn, þá hlýtur það að vera krafa okkar að skipta því út fyrir nýtt starfsfólk sem hefur metnað til að gera hlutina almennilega. Ef við Eyjamenn hefðum fengið þetta verkefni í hendurnar, að ljúka hönnun og breytingum á Landeyjarhöfn með fjárframlagi frá ríkinu, þá værum við ekki stödd í þessum forarpitt og framkvæmdum væri lokið! Í stað þess sitja Eyjamenn eftir með sárt ennið og ríkisstjórnin hefur sett plástra á sárið sem duga skammt. Plástra sem kosta fjármuni og þá eru teknir innviði frá öðrum sveitarfélögum, samanber Baldur sem sér um mikilvægar samgöngur í Breiðafirði. Betra hefði verið að nýta þessa fjármuni í almennilega framtíðarsýn með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það þarf stundum að hugsa til framtíðar. Jarðgangna rannsóknir Nú liggur einnig fyrir að jarðgangarannsóknir milli lands og Eyja verða fjármagnaðar af fyrirtækjum, einstaklingum og tveimur sveitarfélögum. Það er átakanlegt og raunverulega skammarlegt að horfa enn og aftur upp á aðgerðarleysi íslenska ríkisins og það virðist alltaf vanta framtíðarsýn og langtímahugsun. Það er einfaldlega þannig og stundum þarf að leggja út fjármuni til að spara þá síðar. Framtíð Vestmannaeyja og Íslands Nú er einhver stærsta uppbygging á Íslandi í Vestmannaeyjum miðað við höfðatölu en Eyjarnar eru jafnframt einn mikilvægasti útgerðarbær landsins. Laxey, eins og önnur fyrirtæki í Vestmannaeyjum, hefur nú átt í miklum vandræðum þegar Landeyjarhöfn er lokuð að koma aðföngum. Laxey náði til að mynd ekki að koma sementi yfir til Vestmannaeyja í heila viku til að viðhalda uppbyggingu félagsins á áætlun. Fyrirsjáanlegt er að þetta hefur áhrif á framkvæmdahraða fyrirtækisins. Undirritaður er staddur í Afríku við byggingu heilsugæslu þar sem steypa er einnig notuð í framkvæmdum. Þar tókum við símtalið og pöntuðum sement og það liðu ekki nema tvær klst. þar til afhending fór fram. Það var reyndar flutt á kerru sem asni dró áfram. En þarna komu þeir 12 pokar af sementi, eftir þörfum og á tíma. Það eru áreiðanlegri afhendingar á sementi í Gambíu en frá Reykjavík til Vestmannaeyja þessa stundina. Mér finnst persónulega átakanlegt að segja frá því hvað við Eyjamenn erum í vonlausri stöðu varðandi þjónustu frá hinu opinbera. Nú er komið að því að ríkið standi undir ábyrgð við að styrkja grunninn og byggja undir áframhaldandi uppbyggingu í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og landeldi hér í Vestmannaeyjum. Ljúka þarf framkvæmdum við Landeyjahöfn án tafar og tryggja flutninga sem styðja við íbúafjölgun og atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum. Jafnframt er mikilvægt að ríkið styðji við uppbyggingu stórskipahafnar í Vestmannaeyjum til að mæta nýjum iðnaði sem mun verða ein af burðarstoðum íslensks atvinnulífs til framtíðar. Alþingismenn og ráðherrar Íslands Áhyggjur mínar sem framkvæmdastjóri Laxey snúa ekki eingöngu að uppbyggingu Laxey í Vestmannaeyjum þó að þetta sé ein af stærstu einstöku framkvæmdum á Íslandi. Vandinn er dýpri, vinnumenningin á Alþingi og í ríkisstofnunum finnst mér einkennast af samskipta- og afkastaleysi sem gerir það að verkum að engin almennileg framtíðarsýn er til staðar. Íslenska þjóðin þarf fólk sem þorir að taka ákvarðanir, hefur drifkraft, tekur ábyrgð og er með framúrskarandi vinnusiðferði til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Góðar hugmyndir eiga ekki að fara á bak við tjöldin til samninga milli flokka. Ef kjörnir fulltrúar treysta sér ekki til að vinna af heilindum fyrir land og þjóð, er þeim þá stætt á að þiggja laun frá almenningi? Nú er kominn tími til að Alþingi taki sig á, hætti þessu gaspri fyrir aftan ræðupúltið, girði sig í brók, bretti upp ermarnar og vinni af ábyrgð fyrir samfélagið sem Alþingi er falið að þjóna. Ég hvet alla ráðamenn þvert á flokka að koma í heimsókn og taka spjallið um stöðu Vestmannaeyja. Ég væri þakklátur ef þið sýnduð Vestmannaeyjum jafn mikinn áhuga núna eins og þið gerið korter í kosningar. Ég bið svo almenning að skoða hverjir hafa verið samgönguráðherrar síðan 2009 til dagsins í dag, ásamt ráðuneytisstjórum þeirra frá 2017. Ég set það í hendur almennings og aðallega Eyjamanna að meta hvort þessir aðilar hafi staðið undir væntingum. Höfundur er framkvæmdastjóri Laxey í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar