Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar 2. maí 2026 07:03 Loftslags- og umhverfismál eru eitt allra stærsta viðfangsefni okkar tíma og það er sýn Samfylkingarinnar að taka þurfi mið af þeim við alla ákvarðanatöku borgarinnar. Loftslagsmál eru í grunninn spurning um jöfnuð. Jöfnuð milli hópa og jöfnuð milli kynslóða. Við þurfum að standa vörð um hagsmuni komandi kynslóða þegar kemur að náttúruvernd og gæta vandlega að sjálfbærni þegar kemur að nýtingu og umgengni um auðlindir náttúrunnar Reykjavík hefur undir forystu Samfylkingarinnar verið leiðandi í innleiðingu Græna plansins með áherslu á vistvæna samgöngumáta, hjólastíga, gönguvæna borg, eflingu almenningssamgangna og þéttingu byggðar þar sem það á við - til að draga úr þörf fyrir samgöngur borgarhluta á milli. Það er skýrt markmið loftslagsstefnu borgarinnar að stefna skuli að kolefnishlutleysi 2030 og að heildarlosun borgarinnar dragist saman frá ári til árs, með aðgerðum sem draga úr kolefnislosun, með aukinni grænni fjárfestingu o.s.frv. Græn bylting – aukin lífsgæði Samfylkingin vill fjölga grænum svæðum og auka gróður í borgarlandinu, fjölga borgargörðum með fjölbreyttum leiktækjum, bekkjum og hreystiaðstöðu fyrir borgarbúa á öllum aldri. Í því samhengi munu samgöngubætur eins og Sæbrautarstokkur og Miklubrautargöng auka lífsgæði fyrir íbúa í nærliggjandi hverfum m.a. í Laugardal og Hlíðum, þar sem umferðarþungi, loftmengun og ónæði af umferð mun minnka til mikilla muna. Umferðinni verður beint neðanjarðar sem skapar gullið tækifæri sem við viljum nýta til að skapa grænt og mannvænt umhverfi ofanjarðar og auka tækifæri íbúanna til heilnæmrar útivistar og fjölbreyttra samvista fjölskyldna og nágranna. Augljóst er að Borgarlínuverkefnið mun draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum með því að fjölga þeim sem nýta almenningssamgöngur þar sem vagnarnir verði knúnir innlendum umhverfisvænum orkugjöfum. Þar hafa jákvæðar breytingar á þjónustu Strætó sl. haust þegar haft þau áhrif að farþegafjöldi hefur aukist til muna, í kjölfar þess að ríkið kemur nú í fyrsta sinn með verulegt fjármagn til reksturs Strætó í tengslum við innleiðingu samgöngusáttmálans. Það hefur leitt til fjölgunar ferða, styttri biðtíma og þar með betri þjónustu við borgarbúa. Minnkum svifryk og bætum loftgæði Við viljum minnka svifryk í borginni og draga úr áhrifum þess á heilsu borgarbúa með því að draga úr óþarfa notkun nagladekkja í umferðinni, í samvinnu við ríkið. Auðvitað þurfa sumir að nota nagladekk en ég hef persónulega reynslu af því að komast alla minna ferða án nagladekkja undanfarin rúm 20 ár með því að aka í samræmi við aðstæður á hverjum tíma. Við getum bætt loftgæðin í borginni með ýmsum hætti þar með talið að halda áfram með raftengingar skipa í Sundahöfn sem Faxaflóahafnir hafa haft forgöngu um undanfarin ár. Samfylkingin var leiðandi í að koma á samstarfi við umhverfisráðuneytið um raftenging fraktskipta í Sundahöfn og næsta skref er að tengja skemmtiferðarskipin við rafmagn. Það mun bæta loftgæði í borginni til muna yfir sumartímann. Það getur orðið að veruleika innan tveggja ára ef áform Faxaflóahafna ná fram að ganga með aðkomu borgaryfirvalda og ríkisins. Annað spennandi verkefni sem mun hafa jákvæð umhverfisáhrif er hátækni sorpbrennsla á höfuðborgarsvæðinu sem Sorpa hefur undirbúið m.a. í samvinnu við Orkuveituna og fleiri. Slíkt verkefni hefði þann ávinning í för með sér að draga verulega úr flutningum sorps úr landi til brennslu með tilheyrandi kolefnislosun en samhliða skapast tækifæri til föngunar og niðurdælingar kolefnis sem sömuleiðis hefði veruleg jákvæð umhverfisáhrif borið saman við núverandi meðhöndlun sorps til urðunar eða útflutnings í brennslu. Enn má nefna tímamóta djúpnýtingarverkefni Orkuveitunnar sem felur í sér að bora dýpra eftir jarðvarma í þeim borholum sem þegar eru nýttar. Það felur í sér að koma í veg fyrir rask á nýjum svæðum en fá meiri orku úr hverri borholu sem nýtt er í dag. Loks hefur Samfylkingin markað sér skýra stefnu um að vilja minnka óþarfa flugumferð um Reykjavíkurflugvöll með því að færa flug einkaþotna, útsýnisflug, kennslu- og æfingaflug annað samhliða því sem vörður verði staðinn um innanlandsflug og sjúkraflug þar til ný staðsetning flugvallar liggur fyrir. Það myndi minnka verulega ónæði, mengun og auka öryggi íbúa sem búa í nágrenni við flugvöllinn. Mikið í húfi Samfylkingin í borginni leggur í Græna planinu áherslu á sjálfbærni og umhverfisvernd, orkuskipti og nýtingu grænna tæknilausna sem draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfi og miða að kolefnishlutleysi. Við leggjum ríka áherslu á að Orkuveitan verði áfram í eigu borgarinnar, þar með talið dótturfyrirtæki hennar Ljósleiðarinn og Carbfix sem er mikilvægt framlag Orkuveitunnar til kolefnishlutleysis. Sjálfstæðisflokkurinn vill hins vegar selja þau til einkaaðila rétt eins og hlut borgarinnar í Landsvirkjun á sínum tíma sem hefur kostað borgina tugi milljarða í arðgreiðslur sem hefði mátt nota til að byggja upp innviði. Við höfum metnað til að ganga vel um auðlindir náttúrunnar og það verður áfram okkar leiðarljós við stjórn borgarinnar ef við fáum til þess stuðnings í kosningunum 16. maí. Áfram Samfylking fyrir jöfnuð í borginni: X-S! Höfundur er borgarfulltrúi í 4. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Helgason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun