Að byggja fyrir fólk eða… Magnús Jónsson skrifar 4. maí 2026 21:30 Í Morgunblaðinu 2. maí er stórmerkilegt viðtal við spænskan arkitekt, Rafael Campos de Pinho sem búið hefur hér á landi í 20 ár og fylgst með þeirri skipulags- og húsbyggingarstefnu sem ríkt hefur á höfuðborgarsvæðinu, einkum í Reykjavík á þessu tímabili. Álíka viðhorf og hjá honum hafa að vísu komið nýlega fram hjá þeim Magnúsi Skúlasyni og Pétri Ármannssyni arkitektum og Páli Líndal umhverfissálfræðingi gagnvart þeirri ómanneskjulegu og græðgisvæddu skipulags- og húsbyggingarstefnu sem hér hefur ráðið ríkjum það sem af er þessari öld. Fjárhagslegur töflureiknir - hrapaleg mistök Í þessu viðtali segir arkitektinn m.a.: „Þróun síðustu ára hefur mótast af ákveðinni aðferðafræði og kennisetningum sem taka mið af tæknilegum takmörkunum. Stríð gegn bílum, hjól handa öllum, götur mótaðar af beygjuradíusum fyrir stærri slökkviliðsbíla vegna þess að hærri og þéttari byggingar krefjast stærri bíla fyrir slökkviliðið. Úthliðar húsanna eru klæddar flötum álplötum, vegna þess að sérfræðingarnir segja að það sé tilvalið á Íslandi, endingargott og lítið viðhald, en leiðinlegt frá fyrsta degi. Hver ákvörðun virðist skynsamleg ein og sér en samanlagt mynda þær sálarlausa blöndu af byggingarstöðlum sem passa fullkomlega inn í fjárhagslegan töflureikni. Niðurstaðan blasir við um allt höfuðborgarsvæðið. Byggingar sem uppfylla hvert einasta viðmið á gátlistanum en mistakast hrapallega við staðarmyndun.” Þrjátíu ára gagnrýni Meira en þrír áratugir eru liðnir síðan ég hóf að vekja athygli á að víða væri verið að byggja íbúðarhúsnæði sem ekki tæki tillit til veðurfars og landfræðilegrar legu þar sem í slíkum hverfum væri vindur magnaður upp og skuggavörp sköpuðu myrkvaðar íbúðir og óvistleg útivistarsvæði auk þess sem þökin væru eins og safnþrær á vatn, snjó og óhreinindi. Þá væri verið á hækka íbúðarhús umfram vellíðunarmörk hjá mörgu fólki, einkum börnum. Loks væri ekkert tillit tekið til þess hvernig hin eldri íbúðarbyggð hefði þróast hér mestan hluta 20. aldarinnar. En í reynd hefur ekkert tillit verið tekið til þeirra þátta, raunar þvert á móti. Er nú svo komið að stór hluti þeirra íbúða sem byggðar hafa verið á síðustu 10 árum seljast ekki, þrátt fyrir viðvarandi skort á húsnæði og fjölgun fólks. Meira og minna allar íbúðir sem byggðar hafa verið á svokölluðum þéttingarreitum eru í sálarlausum, einsleitum gámastíl og á forsendum græðgisvæðingar lóða og húsbygginga. Hvar búa þeir sem ábyrgð bera? Ein spurning öðrum fremur hefur oft leitað á mig: Hvar búa þeir sem ábyrgð bera þeim skipulagslega hryllingi sem blasir víða við og Rafel Campos lýsir svo vel? Í hvaða hverfum og húsum búa þeir stjórnmálamenn, skipulagsfræðingar, arkitektar, lóðakaupendur, húsnæðisbraskarar o. fl, sem ábyrgð bera á þessari uppbyggingu húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu síðasta aldarfjórðunginn? Eru þeir búandi í þessum forljótu, “þaklausu” og hálfmyrkviðu “maurabúum” sem þeir hafa ætlað öðru fólki að búa í? Mig grunar að svo sé almennt ekki. Og hefur einhvern tíma verið spurt um álit væntanlegra íbúa í þeim andlausu risablokkum sem verið er að hrúga upp nálægt eða í kringum væntanlega Borgarlínu? Hvet ég til þess að könnun verði gerð á hvernig þessum málum er háttað, annaðhvort af stofnunum, fjölmiðlum eða íbúasamtökum. Lokaorð Stutt er í kosninga til sveitarstjórna og fróðlegt er að vita hvort nýir fulltrúar ætla að halda áfram á sömu braut og hingað til á þeim svæðum sem nú er verið að skipuleggja íbúðabyggð á. Fyrir hálfri öld bjó ég í Uppsala í Svíþjóð í nýlegu hverfi sem var byggt upp með 3-4 hæða tiltölulega ódýrum blokkum, þar sem sólar gat gætt bæði úti og inni og öryggi og vellíðan var í fyrirrúmi. Og enn er byggt í svipuðum stíl í þessari fallegu 180 þúsund manna borg, sjá https://www.bonava.se/om-oss/press/2025/6/bonava-startar-produktion-av-47-bostader-i-centrala-uppsala. Höfundur er veðurfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar