Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar 8. maí 2026 08:12 Nennir þú að hlusta á mig, því ég hef reynslu af því að detta og meiða mig... Ef þú ert 12–17 ára eða ert foreldri orkumikils einstaklings á þessum aldri þá er spurningin ekki hvort heldur hvenær. Það hefur verið mikil aukning á göngu- og hjólaleiðastígum á undanförnum árum og með þessum frábæru ferðaleiðum skapast ný vandamál sem lítið er talað um. Umferðarreglur – því jú, þetta er svo sannarlega umferð. Hvað er ég nú að skipta mér af þessu? Jú, það eru nefnilega rafhjól, rafhlaupahjól, vespur, SurRon, Talaria, fleira og jafnvel krosshjól með rafmagni sem ekkert heyrist í. Það er orðið mikið af þessum tækjum á göngustígum. Það er vissulega eitthvað af þessum tækjum sem ná bara 25 km hraða og kannski aðeins meira niður brekku og með vind í bakið, og á þeim hraða er yfirleitt hægt að bregðast við. Ég er alls ekki hér til að skamma ykkur, ég vil bara ná athygli ykkar í smá stund áður en það verður of seint. Ég er sjálfur búinn að vera á þessum aldri og á tvo stráka sem hafa verið og annar er ennþá á þessum stað. Það sem ég er að sjá núna eru ungir einstaklingar með ótrúlega hæfileika á þessum hjólum í að prjóna, stökkva og taka „stoppie wheelie“, en það sem ég er líka að sjá er að verið er að fara heldur ógætilega yfir hóla, blindar hæðir og krossgötur á stígum, þvert yfir götur og jafnvel yfir gatnamót. Það sem ég hef áhyggjur af núna eru líka aðrir vegfarendur á stígunum, því það þarf ekki að spyrja sig hvað verður um 6–7 ára barn sem hefur verið brýnt fyrir að það sé algjörlega óhult á þessum stígum. Það myndi aldrei þola högg á 60–80 km hraða með plús 120 kg höggþunga, algjörlega óvarið, og ég er nokkuð viss um að fýlhraustir einstaklingar myndu ekki heldur koma vel út eftir svoleiðis kveðju á skrokkinn. Það er núna í erlendum miðlum um eldri forfallakennara sem var keyrður niður af 14 ára nemanda sem endaði með dauðsfalli kennarans, og nú ber móðir barnsins ábyrgð vegna þess að strákurinn mátti bara vera á göngustígum þar sem hann var ekki með próf og hún hafði svo miklar áhyggjur af honum í umferðinni. Að sjálfsögðu er þetta með ljótari dæmunum, en þetta hefur þó samt gerst hér á Íslandi með sömu ljótu niðurstöðunni þegar hjól og rafskutla fóru saman. Ég vil því benda ykkur öllum á að vera ekki á göngustígum eða á öðrum svæðum þar sem einstaklingar eiga að vera án umferðar á miklum hraða. Ég er að sjálfsögðu ekki að tala um fullorðið fólk á hjólunum sem nær þó mjög oft miklum hraða og kann að lesa í aðstæður mun fyrr. Ég er að tala um orkumikla einstaklinga á þessum aldri, 12–17 ára ca., sem eru jafnvel að æfa listir sínar sem þeir að sjálfsögðu þurfa. Allir sem eru búnir að ná 15 ára aldri geta tekið próf á létt bifhjól og við það öðlast þeir mikinn þroska og ábyrgð. Öll hjól sem ná meira en 25 km hraða eiga að vera skráð og tryggð, annars er forráðamaður þess einstaklings algjörlega ábyrgur, og ef þú ert á hjóli sem á að vera skráð þá er ekki nóg að taka númerið af og gefa leyfi á stígana – það er lögbrot, og þar eru líka hin börnin og aðrir sem nota stígana. Ég bendi ykkur á slóða utanvega sem eru merktir sem slíkir og nóg er af, og lokuð stór svæði sem eru víða ef leitast er eftir. Ég er langt frá því að vera fullkominn í þessum fræðum, en ég er gott dæmi um afleiðingar. Ég datt á mótorhjóli fyrir mörgum árum og er að verða fimmtugur bráðlega og hef ekki getað hreyft neitt fyrir neðan brjóst í næstum helmingi ævi minnar, en þakka oft fyrir það að það var þó bara ég en ekki einhver annar sem ég slasaði því þá hefði kannski ekki verið eins auðvelt að halda áfram með lífið. Nóg er að vera hreyfihamlaður og notast við hjólastól það sem eftir er af lífinu. Ungt fólk verður alltaf ungt fólk og verður að fá útrás fyrir ástríðu, en við sem eldri erum verðum að leiðbeina þeim á eins skynsaman hátt og hægt er. Öryggisbúnaður, eins og hjálmur, er lágmarkskrafa – sama hversu hratt farið er. Höfundur er einyrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun