Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar 8. maí 2026 09:41 Jú – auðvitað snúast kosningarnar í Reykjavík um fólkið í borginni. Þær snúast um traust og við kjósum þá sem við teljum að nái að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum verkefnum. Því skiptir miklu máli að hver og einn kjósandi kynni sér vel fyrir hvað hver flokkur stendur. Hjá okkur í Framsókn snúast kosningarnar um líf fjölskyldnanna í borginni; foreldra og börn, öruggt umhverfi, góða skóla sem hafa forsendur til að mæta ólíkum nemendum, bættar samgöngur, stuðning við eldra fólk og svo margt fleira. Við viljum einfalda daginn með því að leysa ólýsanleg flækjustig hjá foreldrum barna sem bíða eftir leikskólaplássum, draga úr óþarfa töfum í umferðinni og að íbúar upplifa að á þá sé hlustað. Við viljum öruggt umhverfi og við viljum leita allra leiða til að gera líf fólks einfaldara. Það eru t.d. mikil gæði fólgin í því ef foreldrar komast á milli staða á skemmri tíma– þá skapast dýrmætur tími sem foreldrar geta nýtt með börnum sínum. En hvernig ætlar Framsókn að auðvelda líf fjölskyldufólks? Framsókn hefur sett fram ýmsar leiðir sem hægt er að kynna sér betur á síðunni framsoknrvk.is. Sem dæmi má nefna: Framsókn vill horfa til fjölbreyttra leiða við að leysa óviðunandi stöðu foreldra sem eiga börn á biðlistum eftir leikskólaplássum. Framsókn vill bættar almenningssamgöngur, fjölga forgangsakgreinum, auka tíðni og þétta leiðanet strætó. Framsókn vill beita ljósastýringum en með þeim aðgerðum ætti að vera hægt að bæta flæði umferðarinnar á helstu umferðaræðum borgarinnar og spara þannig fólki ómældan tíma. Framsókn vill að öll börn hafi tök á að stunda íþróttir- eða annað tómstundastarf. Því á að tryggja öllum börnum eina fría tómstund. Framsókn vill auðvelda tekjulágu eldra fólki að taka þátt í frístundastarfi með því að bjóða upp á frístundastyrk. Framsókn vill fegra borgina, efla úthverfin, laga róluvelli, stíga og gangstéttir. Framsókn vill einfalda regluverkið í kringum fyrirtækin í borginni. Framsókn vill reka borgina af ábyrgð. En er hægt að treysta því að Framsókn standi við gefin loforð? Ef við rifjum upp hverju Framsókn lofaði fyrir síðustu kosningar sjáum við að talað var fyrir nauðsynlegum breytingum. Flestir þekkja söguna og hvernig kjörtímabilið gekk fyrir sig, en munum að Viðreisn gaf það ekki út fyrr en eftir kosningar að þau vildu vinna með Samfylkingu og þar með ekki Sjálfstæðisflokki en þá þrengdist um möguleikana. Þegar síðan borgarstjórnarflokkur Framsóknar sá að ekki náðust fram nauðsynlegar breytingar í þá verandi meirihluta var þeirra mat að heiðarlegast væri að standa upp úr stólunum. Hefði það verið heiðarlegt að sitja bara áfram, hugsanlega þægilegra, en alls ekki heiðarlegt að mínu mati. Einar Þorsteinsson og hans fólk fylgdi sannfæringu sinni enda voru þau kosin út á boðaðar breytingar. Ýmislegt breyttist og borgarstjórnarhópurinn reynslunni ríkari Fyrst ber að nefna góðan árangur við fjármálastjórn borgarinnar. Þegar Einar tók við sem borgarstjóri var umtalsverður halli á borgarsjóði en eftir breytingar á forgangsröðun fjármuna og aðhaldsaðgerðir í Ráðhúsinu varð kúvending í rekstrinum. En munum að það tók ekki núverandi meirihluta nema ár að snúa dæminu aftur við. Fleira má nefna sem breyttist með tilkomu Framsóknar að borðinu. Auknu fjármagni var varið til til viðhalds skólabygginga og skorið var á nokkra harða hnúta á milli borgarinnar og íþróttafélaga, snjómokstur var endurmetinn og fl. mætti nefna. Það er rétt að hafa það í huga að stjórnun og góður rekstur á borginni er ekki hristur fram úr erminni. Munum að það eru hinir pólitísk kjörnu fulltrúar sem fara með valdið, leggja línur og marka stefnuna. Embættismenn taka svo við og sjá til þess að hrinda verkefnunum í framkvæmd eftir forskrift kjörinna fulltrúa. Það tók fulltrúa Framsóknar ákveðin tíma að „læra leikreglurnar“ og átta sig á gangverki borgarinnar. Þau eru því nú reynslunni ríkari og oddvitinn Einar Þorsteinsson eini oddvitinn sem nú er í framboði sem gegnt hefur embætti borgarstjóra. Það eru aðeins tveir aðrir oddvitað sem setið hafa í borgarstjórn og þar af aðeins annar þeirra í meirihluta. Því má með réttu segja að sá annars ágæti hópur sem nú býður sig fram er reynslulítill eða reynslulaus. Er það ekki slæm staða og uggvænleg? Munum því að Framsókn leggur fram yfirgripsmikil stefnumál og í efstu sætum situr fólk með fjögurra ára reynslu af því að sitja bæði í meirihluta og minnihluta í borginni. Höfundur skipar 15.sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar