Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar 8. maí 2026 19:03 Á því kjörtímabili sem nú er að ljúka hefur velferðarsvið Kópavogs gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar sem hafa styrkt þjónustu við íbúa bæjarins til muna. Sem formaður velferðar- og mannréttindaráðs er ég stolt af því að hafa tekið þátt í þessari vegferð með öflugu starfsfólki sem hefur sýnt fagmennsku, seiglu og metnað á krefjandi tímum. Jafnframt hefur verið sett aukið fjármagn í málaflokkinn svo um munar til að mæta vaxandi þörfum og bæta þjónustuna enn frekar. Árið 2023 voru samþykktar róttækar skipulagsbreytingar á velferðarsviði með einróma stuðningi bæjarstjórnar. Horfið var frá hefðbundnu deildarskipulagi yfir í nútímalegt fyrirkomulag fagskrifstofa þar sem meiri áhersla er lögð á samþætta þjónustu, skýrari ábyrgð og aukið samstarf þvert á málaflokka. Þrátt fyrir áskoranir, meðal annars þegar skrifstofur sviðsins í Fannborg lokuðu vegna rakaskemmda árið 2023, tókst starfsfólki að tryggja að þjónusta við íbúa félli aldrei niður. Nú starfar sviðið í Vallakór 4 þar sem aðstaða fyrir starfsfólk og notendur þjónustunnar hefur tekið stakkaskiptum. Nútímaleg og aðgengileg þjónusta Mikil áhersla hefur verið lögð á stafræna þróun og umbætur í þjónustu. Verkferlar hafa verið endurskoðaðir, reglur uppfærðar og innleiddar nýjar rafrænar lausnir sem auðvelda íbúum að sækja þjónustu, meðal annars við umsóknir um fjárhagsaðstoð og bókun viðtala. Við höfum jafnframt lagt áherslu á ábyrga nýtingu nýrrar tækni, minna skrifræði og þjónustu sem mætir fólki þar sem það er statt í lífinu. Farsæld barna í forgrunni Eitt stærsta framfaraskref kjörtímabilsins hefur verið innleiðing samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna. Nýtt barna- og fjölskylduteymi hefur náð góðum árangri og Kópavogur varmeðal fremstu sveitarfélaga landsins í innleiðingu farsældarlaganna. Með auknu samstarfi skóla, félagsþjónustu og barnaverndar höfum við styrkt stuðning við börn og fjölskyldur á mikilvægum tímum og gripið fyrr inn þegar þörf er á. Betri þjónusta við fatlað og eldra fólk Við höfum einnig lagt ríka áherslu á þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk. Eldri herbergjasambýlum hefur verið lokað og íbúar fengið tækifæri til að flytja í sjálfstæðari búsetu eða nýja búsetukjarna, meðal annars í Fossvogsbrún og Kleifakór. Slíkar breytingar bæta lífsgæði og endurspegla nútímalega sýn á rétt einstaklinga til sjálfstæðs lífs og virkrar þátttöku ísamfélaginu. Þjónusta við eldra fólk hefur sömuleiðis verið efld með aukinni virkni og félagsstarfi. Kópavogur varð fyrsta sveitarfélagið til að bjóða reglulegar helgaropnanir í félagsmiðstöðvum eldra fólks, sem hefur reynst mikilvæg aðgerð gegn einmanaleika og félagslegri einangrun. Á kjörtímabilinu varð velferðarráð einnig að velferðar- og mannréttindaráði sem undirstrikar þá sýn að velferð og mannréttindi fari saman. Verkefnin fram undan Fram undan eru áfram stór verkefni og við í Framsókn alls ekki búin. Ég vil halda áfram að byggja upp öfluga, mannlega og framsækna velferðarþjónustu í Kópavogi þar sem fagmennska, virðing og mannréttindi eru leiðarljós í öllum ákvörðunum. Reynslan síðustu ára sýnir að með skýrri sýn, góðu samstarfi, ábyrgri fjármálastjórn og öflugu starfsfólki er hægt að ná raunverulegum árangri fyrir fólk. Ég trúi því að sterkt samfélag verði byggt með öflugri velferð, raunverulegu samtali við íbúa og hugrekki til að þróa þjónustuna í takt við þarfir fólks. Ég óska eftir stuðningi kjósenda til að halda þessari mikilvægu vegferð áfram og tryggja að Kópavogur standi áfram sterkur með fólkinu sínu á öllum stigum lífsins. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogs og situr í 2. sæti á lista Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar