Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar 9. maí 2026 06:30 Síðustu daga hefur forframað fólk í Viðreisn reynt að gera Miðflokkinn samsekan við athæfi áhorfanda á handboltaleik í Vestmannaeyjum sem handknattsleiksdeild ÍBV hefur gefið yfirlýsingu um og beðið viðkomandi leikmann afsökunar á. Það þarf ríkt ímyndunarafl að tengja saman hvað Miðflokkurinn í heild sinni stendur fyrir og hegðun eins áhorfanda á handboltaleik í Vestmannaeyjum. En svona er pólitíkin. Hún er popúlísk. Fólk sést ekki fyrir. Borgarstjórn Reykjavíkur og borgarlínan Miðflokkurinn hefur aldrei komið að stjórn Reykjavíkurborgar en það hefur til dæmis Viðreisn gert, á árunum 2018–2025. Á þessu tímabili var samið um borgarlínuverkefnið, fyrst haustið 2019 og svo endursamið haustið 2024. Forsvarsmenn Miðflokksins hafa frá upphafi talað fyrir öðrum lausnum, enda hefur þetta verkefni kostað skattgreiðendur nú þegar alltof mikið og sá kostnaður mun bara aukast á meðan ávinningurinn er í besta falli óljós. Með öðrum orðum, spilafíkill sem fer með eina milljón króna með sér í spilavítið á ekki að halda áfram að spila gegn bankanum þótt hann hafi eingöngu tapað 300 þúsund krónum. Betra er að halda eftir 700 þúsund krónum. Það sama á við um borgarlínuverkefnið. Framboð Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar Erindi Miðflokksins í borgarstjórn er brýnt, meðal annars vegna þess að menningin sem hefur þrifist innan Ráðhúss Reykjavíkur er ekki heilbrigð. Kostnaðarvitundin við stjórn borgarinnar er takmörkuð. Oddviti Miðflokksins er hæfasti frambjóðandinn í borgarstjórnarkosningunum til að breyta þessum kúltúr. Miðflokkurinn talar til margra Miðflokkurinn veitir mörgu hugrökku fólki skjól sem vill geta tjáð hug sinn um hluti sem eru erfiðir í okkar samfélagi og ganga í berhögg við trumbuslátt hinnar pólitískt rétthugsandi valdaelítu. Sem dæmi, það er nærtækt að verja landamæri landsins okkar betur en gert hefur verið. Engin ástæða er til að gefa eftir í að verja og styrkja okkar þjóðararfleifð, tungumál og menningu. Með slíku er á engan hátt dregið úr mikilvægi þess að skapa tækifæri fyrir fólk sem kemur frá öðrum menningarheimum og hefur lagalegan rétt á að búa hér á landi. Hver og einn á að geta leitað lífshamingjunnar á eigin forsendum, hvaðan svo sem viðkomandi kemur. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar