Vinna með foreldrum barna í vanda Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar 10. maí 2026 09:33 Í umræðu um þjónustu við börn sem glíma við fjölþættan vanda, fíkn, geðrænan vanda, líkamleg veikindi eða félagslega erfiðleika, er megináhersla oft lögð á barnið sjálft. Árangursrík meðferð og stuðningur við börn verður hins vegar sjaldnast sjálfbær nema horft sé til fjölskyldunnar í heild og þá sérstaklega til stöðu og styrks foreldra. Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf eru því ekki aukaatriði heldur lykilþáttur í farsælli vinnu með börnum. Foreldrar eru mikilvægasta stoð barnsins. Þegar barn fer í meðferð eða fær sérhæfða þjónustu er meðferðin yfirleitt aðeins hluti af ferlinu. Barnið snýr aftur inn í sitt daglega umhverfi, heimilið, þar sem foreldrar þurfa að takast á við áskoranir, styðja við breytingar og viðhalda þeim árangri sem náðst hefur. Ef foreldrar eru óöruggir, örmagna eða skortir verkfæri til að takast á við aðstæður, eykst hættan á bakslagi og endurkomu. Mikilvægi foreldrafræðslu og uppeldisráðgjafar er því augljós. Með markvissum stuðningi fá foreldrar tækifæri til að efla færni sína, auka sjálfstraust og öðlast betri skilning á þörfum barnsins. Foreldrar læra að setja skýr mörk, bregðast við erfiðri hegðun á uppbyggilegan hátt og byggja upp jákvæð samskipti. Vinna sem þessi styrkir ekki aðeins foreldra heldur einnig tengsl þeirra við barnið, sem er ein sterkasta verndin í lífi barna. Foreldrar barna í vanda standa flestir frammi fyrir miklu álagi. Upplifa gjarnan kvíða, sektarkennd, vanmátt eða félagslega einangrun. Það felast því forvarnir í að veita þeim stuðning. Sterkir foreldrar sem njóta stuðning eru betur í stakk búnir til að mæta þörfum barna sinna, taka upplýstar ákvarðanir og vinna með fagfólki að sameiginlegum markmiðum. Þegar þjónusta tekur mið af allri fjölskyldunni næst meiri árangur til lengri tíma. Úrræði sem samþætta meðferð barns og stuðning við foreldra eru sérstaklega mikilvæg fyrir fjölskyldur þar sem vandinn er flókinn og margþættur. Slík úrræði þurfa að vera aðgengileg, samfelld og byggð á faglegri þekkingu. Dæmi um slíka nálgun eru sérhæfð fjölskylduúrræði sem vinna bæði með barninu og foreldrum þess. Heildstæð þjónusta þar sem áhersla er lögð á samstarf, fræðslu og styrkingu fjölskyldunnar. Það er mikilvægt að slík úrræði séu ekki bundin við ákveðin svæði heldur standi öllum fjölskyldum til boða, óháð búsetu. Aðgengi að þjónustu á landsvísu er grundvallaratriði þegar kemur að jöfnum tækifærum barna og fjölskyldna. Í störfum mínum með börnum og foreldrum hef ég kynnst því að eigin raun hversu mikil áhrif markviss vinna með foreldrum getur haft. Hún getur verið vendipunktur, ekki aðeins fyrir barnið heldur alla fjölskylduna. Með stuðningi við forelda fjárfestum við í langtímavelferð barna. Reynslan sýnir að ef við viljum ná raunverulegum og varanlegum árangri í vinnu með börnum í vanda verðum við að styðja foreldra þeirra af krafti. Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf ættu að vera sjálfsagður og samþættur hluti af allri þjónustu við þessi börn. Það er ekki aðeins skynsamlegt, það er nauðsynlegt. Höfundur skipar 3. sæti fyrir Flokk fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar