Meira lýðræði fyrir Múlaþing Ævar Orri Eðvaldsson skrifar 10. maí 2026 07:30 Styrkjum stoðir lýðræðisins Að virkja íbúasamtök og heimastjórnir í Múlaþingi betur er mikilvægt skref í að efla lýðræði og styrkja samfélagið. Með aukinni þátttöku íbúa í ákvarðanatöku má tryggja að raddir þeirra heyrist og að þróun byggðarlaga endurspegli raunverulegar þarfir og óskir fólksins sem þar býr. Slík nálgun gæti stuðlað að auknu trausti milli íbúa og sveitarfélagsins og gerir stjórnsýsluna aðgengilegri og gagnsærri. Tökum höndum saman Ein leið til að ná þessu markmiði er að halda reglulega fundi með íbúum í hverjum byggðakjarna. Slíkir fundir gætu byggst upp sem blanda af kynningum, opnum umræðum og hugmyndavinnu í hópum. Þar gæfist íbúum tækifæri fá upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir og aðgerðir, ásamt því að vera vettvangur til að ræða hvað þeir telja mikilvægt í sínu nærumhverfi og hvernig þeir sjá fyrir sér að samfélagið geti þróast til framtíðar. Sköpum betra nærsamfélag Í slíkri stefnumótunarvinnu er áherslan lögð á að fá fram sýn íbúa á það hvernig þeirra byggðakjarni geti batnað og blómstrað. Með markvissri vinnu í litlum hópum væri hægt að safna saman fjölbreyttum hugmyndum, hvort sem þær snúa að þjónustu, innviðum, menningu eða atvinnulífi. Niðurstöður slíkra funda gætu síðan nýst sem raunhæfur grunnur fyrir ákvarðanatöku sveitarfélagsins og forgangsröðun verkefna. Hlutdeild í framtíð sveitarfélagsins Með þessum hætti myndu íbúar fá sterkari tengingu við stjórnsýsluna og upplifa sig sem virkan hluta af samfélaginu og samtalinu sem mótar það. Þátttaka gæti aukið ábyrgðarkennd, samstöðu og trú á eigin áhrif, sem er lykilatriði í heilbrigðu og blómlegu samfélagi. Þegar fólk finnur að það hefur rödd og að hlustað er á hana, skapast betri grundvöllur fyrir jákvæða þróun og sameiginlega framtíðarsýn. Treystum íbúum fyrir eigin hagsmunum Sameinað framboð Austurlistans og Viðreisnar mun leggja áherslu á að efla heimastjórnirnar á komandi kjörtímabili. Við höfum trú á íbúum Múlaþings og viljum sýna það í verki með því að færa valdið nær þeim sem verða fyrir áhrifum af ákvörðunum sveitarfélagsins. Við munum kappkosta að einfalda regluverk og sýna meiri ábyrgð í rekstri. Þannig leggjum við grunn að uppbyggingu til framtíðar. Við ætlum að jafna tækifærin og bjóða upp á meira fyrir Múlaþing. Höfundur er á lista L-listans í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar