Fjárfesting sem sparar milljarða Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar 11. maí 2026 08:02 Það er staðreynd að börn á aldrinum 10-12 ára falla á milli kerfa. Á þessum aldri eru þau komin upp á miðstig grunnskólans og eru orðin of gömul fyrir frístundaheimilin en ekki orðin raunverulegur markhópur félagsmiðstöðvanna. Afleiðingin er sú að enginn innan kerfisins ber skýra ábyrgð á þessum hópi. Það sést skýrt í niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar að þegar börn færast upp á miðstig grunnskóla versnar líðan hjá hluta hópsins, einelti eykst og félagsleg tengsl veikjast. Að sama skapi kemur það ótvírætt fram í alþjóðlegum rannsóknum að snemmtæk íhlutun á þessum aldri skilar mestri samfélagslegri arðsemi. Þrátt fyrir það hefur þjónusta borgarinnar við þennan hóp ekki þróast í takt við þörfina. Stór hópur barna getur ekki tekið þátt Þjónustan byggir að stórum hluta á því að börn mæti sjálf. Þá er aðgengi oft háð staðsetningu og tíma. Starfið er ekki alltaf í beinu framhaldi af skóladeginum, sem gerir þátttöku óraunhæfa fyrir stóran hóp barna. Það þýðir oft að þau sem þurfa mest á þjónustunni að halda eru líklegust til að detta út úr henni. Þetta er kerfislæg skekkja sem verður til þess að við missum af tækifærinu til að grípa inn í á þeim tímapunkti sem skiptir mestu máli, þegar vandinn er enn viðráðanlegur og lausnin ódýrari. Í stað þess að mæta börnum þar sem þau eru bíður kerfið eftir því að vandinn stækki en þá er hann orðinn margfalt dýrari. Í Reykjavík eru um 13–15 þúsund börn á aldrinum 10–12 ára. Ef borgin myndi fjárfesta markvisst í auknu félagsmiðstöðvastarfi fyrir þennan hóp, með meiri mönnun, lengri opnunartíma og markvissari nálgun má áætla að kostnaðurinn sé um 80–120 þúsund krónur á hvert barn á ári. Það þýðir heildarfjárfestingu upp á um 1–1,5 milljarð króna árlega miðað við rekstrarkostnað frístundastarfs sveitarfélaga. Borgin þarf ekki „að leysa allan vandann“ Ef við bætum við nauðsynlegri styrkingu fyrir 13–16 ára og byggjum upp raunverulega þjónustu fyrir 16–18 ára innan hverfa, erum við að tala um 1,5–2 milljarða króna á ári. Samkvæmt norrænum og alþjóðlegum hagfræðilegum greiningum getur það kostað samfélagið 50–100 milljónir króna þegar einstaklingur fellur varanlega út af vinnumarkaði. Þegar tekið er tillit til aukins kostnaðar í heilbrigðis- og félagsþjónustu getur heildarkostnaður farið upp í 150–200 milljónir króna á ævinni. Þetta þýðir að Reykjavík þarf ekki að „leysa allan vandann“ til að fjárfestingin borgi sig. Ef markviss uppbygging þjónustu kemur í veg fyrir að 15–20 ungmenni á ári fari í alvarlegan vanda eða detti út úr námi og virkni, þá er sparnaðurinn þegar orðinn 1–3 milljarðar króna til lengri tíma litið. Það er innan við 0,2% af hverjum árgangi. Höfum við efni á að sleppa þessu? Með öðrum orðum: ef aðgerðirnar virka fyrir örlítið brot hópsins, þá borga þær sig. Það er kjarni í málsins. Gögnin segja okkur hvar vandinn byrjar. Þau segja okkur hvaða hópur er viðkvæmastur. Og þau segja okkur að snemmtæk íhlutun virkar. Tölurnar sýna okkur að því fyrr sem gripið er inn í, því lægri verður kostnaðurinn síðar. Við stöndum frammi fyrir vali. Við getum haldið áfram að bregðast við þegar vandinn er orðinn dýr, með auknum kostnaði í skólakerfi, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu. Eða við getum fjárfest fyrr þar sem áhrifin eru mest og kostnaðurinn lægstur. Reykjavík hefur efni á að gera þetta. Spurningin er hvort við höfum efni á að sleppa því. Höfundur skipar 6. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar