Stefnum hátt Ragnar Sverrisson skrifar 10. maí 2026 21:00 Nú er runninn upp sá tími að við Akureyringar verðum að stíga á stokk og strengja þess heit að vinna næstu árin skipulega að því að efla bæinn okkar og stækka svo um munar. Þá duga engin vettlingatök, hik og ótti við breytingar. Ekki er lengur í boði að horfa aðgerðarlaus á að Akureyri færist sífellt neðar á lista yfir stærstu bæi landsins. Láta síðan eins og sú óheillaþróun sé eitthvað náttúrulögmál sem ekkert sé hægt að gera við en gráta þess í stað döpur örlög. Auðvitað er þetta mikil áskorun og ekki annað í boði en að tefla nokkuð djarft hvort heldur er átt við ný atvinnutækifæri, sem geta borgað hæstu laun, nýjar fjárfestingar, skipulag, skóla- og menningarmálefni, að ekki sé talað um fegurð bæjarins og aðlaðandi umhverfi. Allt þetta er undir ef okkur bæjarbúum á að takast næstu ár og áratugi að snúa vörn í sókn og fjölga íbúum að einhverju marki og gera Akureyri að raunverulegri höfuðborg landsbyggðarinnar. Sjálfur vænti ég þess að ný bæjarstjórn láti verða sitt fyrsta verk að koma þessari þróun í gang, móta framtíðarsýn með 50 til 100 þúsund manna byggð, draga upp það helsta sem þarf að gera næstu árin til þess að sýnin verði að veruleika og tryggja fjármagn til að hefjast handa af krafti og ákveðni. Þarna erum við að tala um tugi milljarða króna sem bærinn tæki að láni og gæti síðan nýtt til að byggja upp sjálfur eða lána öðrum til að láta verkin tala í samræmi við framtíðarskipulagið sem þá ætti að liggja fyrir. Sem betur fer er bærinn okkar í það góðu áliti að fjármagn ætti að fást á Evrukjörum og þá er ekkert því til fyrirstöðu að hefjast handa á hinum ýmsu sviðum. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi en jafnframt áhugaverð fyrir unga fólkið sem nú tekur við keflinu í bæjarstjórnini okkar. Skipulagsmálin þurfa ekki eingöngu að vera til umræðu eins og undanfarin ár heldur skiptir sköpum að fylgja þeim eftir og láta verkin tala. Miðbærinn er og verður hjarta bæjarins og þar horfir margt til bóta. Hvernig stendur til dæmis á því að Skátagilið í miðjum bænum er í átakanlegri niðurníðslu? Þar eru sjálfsprottnar njólatorfur, órækt í grasinu og svo hættulegur malarstígur með gömlu og snúnu vatnsröri sem á að gegna hlutverki handriðs. Þarna gæti verið sannkallaður yndisreitur með fallegum stígum og jafnvel tröppum, vel skipulagður garður sem liðast upp brekkuna vestur að Brekkugötu með blómum, vel hirtum trjám og listaverkum. Svo er hægur vandi að útbúa svæði neðst í brekkunni þar sem notalegt væri að setjast niður, spjalla saman og fylgjast með gangandi fólki á götunni fyrir neðan eða stunda þar söng og hljóðfæraslátt af ýmsu tagi. Eftir stendur spurningin: Eftir hverju er beðið að gera eitthvað jákvætt þarna? Þessu til viðbótar þarf á næstu árum að endurnýja gamla íþróttasvæðið fyrir norðan Hólabrautina. Það er ekkert smáverkefni að breyta því í góðri samvinnu við bæjarbúa. Þegar hönnun svæðisins liggur fyrir hefjast svo framkvæmdir og þá verður búið að tengja gamla miðbæinn og Glerártorgið. Úr verður ein glæsileg heild þar sem mannlíf, viðskipti og hverskonar atvinnustarfsemi blómstra í ört stækkandi bæ. Ef ekki verður farið strax í þetta verkefni er mikil hætta á að gamla íþróttasvæðið grotni niður og verði okkur til vansæmdar. Því verður auðvitað forðað með stefnufastri vinnu væntanlegrar bæjarstjórnar sem veit að hik er sama og tap í þessum efnum eins og svo mörgu sem horfir til framfara í samfélaginu okkar góða. Þannig væri hægt að halda áfram að telja upp nauðsynlega uppbyggingu sem auðvitað kostar sitt en hér verður látið staðar numið. Aðalatriðið er að setja markið hátt, vinna markvisst og afla fjár til að koma hlutunum í framkvæmd. Annars gerist fátt og við gleymum okkur í sjálfumgleði og drögumst enn frekar aftur úr öðrum bæjum þessa lands. Enginn vill bera ábyrgð á slíkri niðurlægingu en þá dugar heldur ekki að sitja hér, horfa í gaupnir sér og láta nægja að dást að því sem vel hefur tekist í bænum sem er auðvitað margt og merkilegt. Staðreyndin er sú að við erum að dragast aftur úr og þess vegna verðum við að rísa upp með nýrri bæjarstjórn og hefja öfluga framfarasókn sem leiðir til þess að bærinn stækkar umtalsvert næstu árin og allt mann- og menningarlíf verður með miklum blóma. Höfundur skipar 22. Sæti S-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar