Myglaður málflutningur Viðreisnar Regína Ásvaldsdóttir skrifar 11. maí 2026 09:12 Viðreisn hefur farið mikinn í kosningabaráttunni og kennt Samfylkingunni um allt sem aflaga hefur farið. Nýjasta útspilið er umfjöllun um myglu í skólum og leikskólum. Staðreyndin er hinsvegar sú að myglan hefur ekki farið eftir flokkspólitískum línum á Íslandi. Ein af skýringunum á því að mygla hefur greinst í miklum mæli í skólahúsnæði á Íslandi er skortur á viðhaldi en það voru teknar pólitískar ákvarðanir um niðurskurð í viðhaldsverkefnum eftir efnahagshrunið árið 2008. Þá stýrðu til dæmis Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn borginni og frá 2010 -2014 voru það Besti flokkurinn og Samfylking og var sá fyrrnefndi með borgarstjórann. Þetta voru mjög krítísk ár þegar kom að rekstri sveitarfélaga. Sammælst var um að verja velferðina og þá meðal annars á kostnað verklegra framkvæmda. Það sama átti við í flestum öðrum sveitarfélögum. Ég hef heldur ekki séð eina einustu tillögu frá Viðreisn í þau sjö ár sem flokkurinn hefur verið í meirihluta sem fjallar sérstaklega um að verja meiri fjármunum í viðhaldsverkefni. Mygla er ekki sérreykvísk Fréttastofa Ríkisútvarpsins gerði könnun á myglu í skólum árið 2023. Í ljós kom að það var mygla í leik- og grunnskólum í yfir helmingi sveitarfélaga landsins. Á höfuðborgarsvæðinu var mygla í 64 grunn- og leikskólum, þar af 34 í Reykjavík og 15 í Kópavogi. Sem sagt hlutfallslega jafn mikið um myglu, miðað við íbúafjölda í öllum sveitarfélögunum. Talið var að kostnaður hafi þá numið um 20 milljörðum á landinu öllu. Síðan hefur enn bæst í og kostnaður hækkað verulega. Engu skiptir hvort bæjum hafi verið stjórnað af Viðreisn, Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki eða Samfylkingu, það hafa allir setið í sömu súpunni. Til að bregðast við þessu er ekki nóg að bara „snúa hlutum við“, það þarf raunverulegt plan og forgangsröðun. Við í Samfylkingunni viljum gefa verulega í endurbætur á húsnæði leik- og grunnskóla. Á næsta kjörtímabili munum við til að mynda, fáum við til þess traust, hækka framlag til endurbóta og uppbyggingu leikskóla um 10 milljarða á kjörtímabilinu úr 20 milljörðum í 30 milljarða. Við viljum setja pólitíska stjórn yfir framkvæmdahluta umhverfis- og skipulagssviðs og hafa þannig betri tök á að fylgja eftir stefnumótun og áherslumálum þegar kemur að fjárfestingum og viðhaldi. Við erum ábyrgur flokkur og erum stolt af borginni okkar og viljum gera enn betur á næsta kjörtímabili. Setjum X við Samfylkinguna í kosningunum 16. maí. Höfundur skipar 7. sætið á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Regína Ásvaldsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar