Afreksíþróttafólkið heim í hérað Andri Már Óskarsson og Hulda Dóra Eysteinsdóttir skrifa 11. maí 2026 13:31 Stefna og aðgerðir þegar kemur að stuðningi við afreksíþróttafólk í sveitarfélaginu okkar þarfnast okkar athygli. Það má öllum vera ljóst að við getum gert töluvert betur til að styðja við íþróttafólkið okkar sem hefur skarað fram úr á sínu sviði, það ætlum við á D- listanum í Rangárþingi eystra að gera. Það er alltof algengt að börn og ungmenni sem vilja ná langt í íþróttum þurfi að sækja æfingar í önnur sveitarfélög til að fá viðeigandi þjálfun og umhverfi til að vaxa og dafna í sinni íþrótt. Foreldrar standa frammi fyrir því að þurfa að keyra börn langar vegalengdir, til dæmis á Selfoss, með tilheyrandi kostnaði og jafnvel tekjutapi. Þetta er ekki sjálfbært til lengri tíma og getur orðið til þess að börn og ungmenni hætti að stunda sínar íþróttir. Það er óviðunandi staða. Við á D-listanum viljum halda áfram að byggja upp íþróttamannvirki og skapa þar með umhverfi til þess að börn og ungmenni geti sinnt sinni íþrótt og náð árangri innan sveitarfélagsins. Mikil tækifæri eru t.d. fólgin í því að byggja upp betri aðstöðu í kringum frjálsar íþróttir og knattspyrnu. Það mætti m.a. gera með því að: efla afreksstarf innan félaganna efla Íþrótta- og afrekssjóð sveitarfélagsins með auknu fjármagni til styrkja setja markvissa afreksstefnu og halda betur utan um þá sem skara fram úr Rangárþing eystra hefur alla burði til að standa þétt við bakið á íþróttafólki sem nær langt, það höfum við gert áður en við verðum að gera betur. Við eigum að vinna statt og stöðugt að því að ýta undir þessa hæfileika hjá börnum og ungmennum og hvetja fleiri til þátttöku. Með því að efla afreksstarf innan sveitarfélagsins erum við bæði að vinna að bættri lýðheilsu barna og ungmenna sem og efla forvarnarstarf sveitarfélagsins. Markmiðið ætti að vera skýrt: að börn og ungmenni í sveitarfélaginu þurfi ekki að fara annað til að ná árangri – heldur geti þau vaxið, æft og náð langt hér heima í Rangárþingi eystra. Andri Már Óskarsson sem skipar 3. sæti og Hulda Dóra Eysteinsdóttir sem skipar 4. sæti hjá D-listanum og öðrum lýðræðissinnum í Rangárþingi eystra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar