Fleiri með krabbamein eða minni streita? Auður Kjartansdóttir skrifar 11. maí 2026 14:12 Næstu helgi kjósum við um það hvers konar borg Reykjavík ætlar að vera. Víða um borgina er nú gengið á græn svæði í nafni þéttingar og framkvæmda. Stundum hverfa tré og gróður fyrir fleiri bílastæðum, stundum fyrir nýjum byggingum eða breiðari umferðargötum. Þetta eru ákvarðanir sem virðast litlar á teikniborðinu en hafa raunveruleg áhrif á lífsgæði fólks. Nýlegt dæmi er gróðrarstöðin Mörk þar sem rætt er um bílastæði þar sem nú er gróður og skjól. Gróðrarstöðin Mörk er ekki aðeins ræktunarstaður heldur mikilvægt grænt svæði með fjölbreyttum og víða fágætum trjá- og plöntutegundum sem hafa í áratugi auðgað borgarumhverfið og tengt fólk við náttúruna í hjarta borgarinnar. En spurningin er einföld: Myndu foreldrar leggja jafn afslappað í þessi bílastæði ef þeim væri sagt að með því að fjarlægja græna svæðið væri verið að auka líkur á loftmengun og svifryki frá aðliggjandi umferðargötum, mengun sem rannsóknir tengja við aukna tíðni krabbameina, hjarta- og lungnasjúkdóma? Nýleg rannsókn á trjágróðri í Reykjavík sýnir að tré borgarinnar fjarlægja árlega nærri 20 tonn af loftbornum mengunarefnum. Rannsóknin bendir einnig á að tengsl eru milligrænna svæða og bættrar lýðheilsu, minni streitu og betri loftgæða. Rannsóknir sýna að borgartré draga úr svifryki og loftmengun og geta þannig bjargað mannslífum. Aukin trjáþekja í nærumhverfi fólks tengist færri ótímabærum dauðsföllum og betri geðheilsu. Þegar við fjarlægjum græn svæði erum við því ekki bara að taka niður tré. Við erum að veikja náttúrulega vörn borgarinnar gegn loftmengun og við erum að gera borgina verri fyrir fólk og lífverur. Það er athyglisvert að á sama tíma og margar borgir Evrópu stefna að 30% trjáþekju í þéttbýli er Reykjavík aðeins með um 8,7% trjáþekju samkvæmt nýlegu mati.Trjáþekjan er líklega enn minni í dag eftir umfangsmikla fækkun trjáa í Öskjuhlíð og um 10 hektara skerðingu á grænum svæðum við Elliðaárdal. Græn svæði eiga ekki að vera afgangsstærð í skipulagi. Þau eru hluti af lýðheilsu, loftslagsaðgerðum og framtíðarsýn borgarinnar. Við hvetjum kjörna fulltrúa til að standa vörð um græn svæði borgarinnar og horfa á þau sem hluta af grunninnviðum samfélagsins, rétt eins og skóla, samgöngur og heilbrigðisþjónustu. Í sífellt þéttari borg verður enn mikilvægara að tryggja fólki aðgang að náttúru í sínu nærumhverfi. Börn þurfa skjólgóð svæði til leikja og hreyfingar og borgarbúar þurfa að geta andað að sér hreinna lofti. Við eigum að vera að ræða hvernig aukum við aðgegni að grænumsvæðum ekki hvernig við breytumþeim í bílastæði eða girðum fyrir þau. Borg sem missir tengslin við náttúruna verður fátækari borg. Höfundur er framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Heimildir Shearer, A.Z. & Slater, D. (2025). Characteristics and benefits of Reykjavik’s urban forest, Iceland. Arboricultural Journal. Ulmer, J.M. o.fl. (2016). Multiple health benefits of urban tree canopy: The mounting evidence for a Green Prescription. Health and Place 42. Rojas-Rueda, D. o.fl. (2019). Green spaces and mortality: a systematic review and meta-analysis of cohort studies. Lancet Planetary Health. Astell-Burt, T. & Feng, X. (2019). Association of urban green space with mental health and general health among adults in Australia. JAMA Network Open. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar