Að hlusta er ekki kosningabrella – það er lýðræðisleg skylda Huld Hafliðadóttir skrifar 12. maí 2026 09:51 Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga er mikið rætt um framtíðarsýn, framkvæmdir, forgangsröðun og stefnumál. Frambjóðendur kynna hugmyndir sínar, hitta fólk, svara spurningum og leggja sig fram um að skilja hvað brennur á íbúum. Þá er hlustað, tekið samtal og reynt að lesa salinn. En það sem skiptir kannski mestu máli er ekki aðeins hvað gerist fyrir kosningar. Það sem raunverulega reynir á er hvað gerist eftir kosningar. Þegar fólk er kosið til setu í sveitarstjórn fær það ekki tóman tékka til að fara sínu fram næstu fjögur árin. Það fær umboð. Og umboð er ekki eign kjörinna fulltrúa. Það er traust sem kjósendur veita tímabundið - og það þarf að rækta, endurnýja og standa undir. Sveitarstjórnarfólk er kosið til að starfa í þágu íbúa. Ekki í eigin þágu, ekki í þágu kerfisins sjálfs og ekki eingöngu í þágu þeirra sem tala hæst eða sitja næst valdinu. Það er kosið til að hlusta á samfélagið í allri sinni breidd: foreldra, eldri borgara, ungt fólk, starfsfólk, atvinnulíf, félagasamtök, innflytjendur, fólk með ólíkar skoðanir og fólk sem hefur kannski ekki alltaf rödd í opinberri umræðu. Það er auðvelt að hlusta í kosningabaráttu. Það er erfiðara að halda áfram að hlusta þegar ákvarðanirnar verða flóknar, þegar fjárhagsáætlanir þrengja að, þegar gagnrýni kemur fram eða þegar íbúar eru ósammála stefnu meirihlutans. En einmitt þá skiptir hlustunin mestu máli. Að hlusta þýðir ekki að allir fái alltaf sínu framgengt. Það þýðir ekki að sveitarstjórn eigi að láta stjórnast af hverri athugasemd eða hverjum Facebook-þræði. En það þýðir að fólk upplifi að á það sé hlustað, að sjónarmið þess skipti máli og að ákvarðanir séu ekki teknar ofan frá, án samtals, útskýringa eða raunverulegs skilnings á áhrifunum sem þær hafa á daglegt líf íbúa. Það er nefninlega heilmikill munur á því að kynna ákvörðun og að eiga samtal áður en ákvörðun er tekin. Sveitarfélög eru ekki fyrirtæki þar sem stjórnendur taka ákvarðanir fyrir viðskiptavini. Þau eru lýðræðisleg samfélög þar sem íbúar eru ekki aðeins notendur þjónustu, heldur eigendur, þátttakendur og umbjóðendur. Þeir sem sitja í sveitarstjórn starfa í umboði þessa fólks. Þess vegna þarf sveitarstjórnarfólk að kunna að taka púlsinn, ekki aðeins rétt fyrir kosningar, heldur reglulega. Góð stjórnsýsla snýst ekki aðeins um að fylgja lögum og reglum. Hún snýst líka um traust, virðingu og tengsl. Um að fólk upplifi að ákvarðanir séu teknar með samfélaginu, ekki yfir það. Í aðdraganda kosninga er því rétt að spyrja frambjóðendur ekki aðeins: Hvað ætlið þið að gera? Heldur líka: Hvernig ætlið þið að hlusta? Hvernig ætlið þið að tryggja að samtalið við íbúa haldi áfram eftir kosningar? Og hvernig ætlið þið að bregðast við þegar fólk er ósammála ykkur? Lýðræði er ekki einstakur atburður sem á sér stað á kjördag. Lýðræði er samband og í því felst ábyrgð. Það þarf að rækta með samtali, auðmýkt og stöðugri tengingu við fólkið sem valdið kemur frá. Kjósendur eru ekki aðeins fólk sem þarf að sannfæra fyrir kosningar. Þeir eru fólkið sem kjörnir fulltrúar vinna fyrir eftir kosningar. Höfundur er íbúi í Norðurþingi og kjósandi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar