Framtíð bæjarins byggist á röddum íbúanna Sigmar Karlsson skrifar 12. maí 2026 10:41 Aðalskipulag Hveragerðisbæjar er ein mikilvægasta stefnumótandi áætlun sveitarfélagsins hverju sinni. Þar eru meðal annars lagðar línur um landnotkun, byggðaþróun og heildarsýn til framtíðar. Þar sem allt landsvæði sveitarfélagsins er skipulagsskylt er aðalskipulag lykilverkfæri til að móta bæjarbrag og tryggja að uppbygging samræmist bæði sérkennum staðarins og vilja íbúa. Nýverið samþykkti bæjarstjórn aðalskipulag sem gildir til ársins 2037. Fulltrúar D-listans greiddu atkvæði gegn tillögunni, enda telja þeir að skipulagið endurspegli ekki sérstöðu bæjarins né vilja íbúa um framtíðaruppbyggingu. D-listinn mun endurskoða skipulagið og leggja áherslu á lágreista byggð. Sú endurskoðun verður gerð með virkri þátttöku íbúa, þar sem við munum raunverulega hlusta. Breytingar á Breiðumörk Fyrirhugaðar breytingar á Breiðumörk þarf að endurskoða. Þrengingar á götunni munu draga úr umferðarflæði og hafa neikvæð áhrif á aðgengi íbúa. Umferðaröryggi þarf ávallt að vera í forgrunni, sérstaklega í ljósi aukinnar uppbyggingar í dalnum sem gæti leitt til meiri umferðar um íbúðargötur. Í þessu samhengi er mikilvægt að koma Vesturmörk í framkvæmd en hún verður mikilvæg tengigata í vesturhluta bæjarins. Áform um fækkun bílastæða og aukna áherslu á hjólastíga eru einnig atriði sem mikilvægt er að meta heildstætt. Slíkar breytingar þurfa að byggja á raunhæfri greiningu á þörfum og óskum íbúa og daglegri notkun samgöngukerfisins. Tilfærsla á þjóðveginum Skipulagið gerir ráð fyrir íbúabyggð á milli núverandi og fyrirhugaðs þjóðvegar. Slík staðsetning vekur eðlilegar spurningar um gæði byggðar og búsetuskilyrði. Jafnframt er gert ráð fyrir hærri byggingum en almennt tíðkast í bænum, þar sem þriggja hæða hús hafa hingað til verið undantekning. D-listinn mun sinna ábyrgri hagsmunagæslu gagnvart Vegagerðinni og munum við kanna hvort Vegagerðin geti, í samvinnu við Hveragerðisbæ, endurskoðað legu vegarins og fært hann sunnar en nú er gert ráð fyrir. Í ljósi þess að framkvæmdum við færslu þjóðvegarins hefur verið frestað teljum við á D-listanum mikilvægt að næsta stóra uppbyggingarsvæði bæjarins verði Sólborgarsvæðið, austan Varmár. Sá kostur hefur verið kannaður áður við góðar undirtektir og liggja þegar fyrir drög að skipulagi, sem vissulega er komið til ára sinna og þarfnast endurskoðunar. Okkur finnst mikilvægt að öll uppbygging taki mið af þeirri lágreistu byggð og samræmdu ásýnd sem hefur einkennt Hveragerðisbæ og notið stuðnings íbúa. Skortur á atvinnulóðum Eitt af lykilatriðum í stefnu D-listans er að efla atvinnulíf meðal annars með því að tryggja nægt framboð atvinnulóða. Í fyrirliggjandi skipulagi er hins vegar verulegur skortur á slíkum lóðum. Það getur hamlað fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu og dregið úr tækifærum til framtíðar. Til að styrkja stoðir samfélagsins þarf markvissa stefnu um að laða að fyrirtæki og stofnanir með fjölbreytta starfsemi. Tökum samtalið Aðalskipulag á að vera sameiginleg afurð íbúa og stjórnvalda. Því er mikilvægt að skapa breiða sátt um framtíðarsýn bæjarins. D-listinn leggur áherslu á opið samtal við íbúa um skipulagsmál og aðra þætti sem móta þróun sveitarfélagsins. Markmiðið er skýrt; að standa vörð um sérkenni Hveragerðisbæjar og þróa bæinn áfram með yfirveguðum og ábyrgum hætti, þar sem bæjarbragur og lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi - af ábyrgð fyrir betri lífsgæði. Höfundur er deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði og skipar 3. sæti hjá D-listanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar