Styrkjum hafnfirskt hugvit Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar 12. maí 2026 12:02 Hafnarfirði á blómstra fjölbreytt og lífleg byggð, þar sem raunveruleg tækifæri eru til staðar fyrir uppbyggingu og atvinnustarfsemi í heimabyggð með tryggum rekstrargrundvelli smærri fyrirtækja svo Hafnfirðingar á öllum aldri fái tækifæri til að starfa í sinni heimabyggð. Til þess þarf sveitarfélagið að styðja markvisst við sprotafyrirtæki, frumkvöðla og þjónustustarfsemi. Hafnarfjarðarbær getur tryggt rekstrargrundvöll smærri fyrirtækja með ýmsum hætti. Sveitarfélagið getur til að mynda stutt þann rekstur sem það vill sjá dafna í bænum á ýmsan hátt. Hægt er að draga úr álagningu fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði sem hýsir starfsemi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja og gera sveitarfélagið þannig að ákjósanlegum vettvangi fyrir ýmsa frumkvöðla- og þjónustustarfsemi. Fjölbreyttara og þar með öflugra atvinnulíf í Hafnarfirði auðgar mannlífið í bænum okkar og gerir jafnframt fleirum kleift að stunda atvinnu í sínum heimabæ. Það gerir bæinn ekki bara sterkari, heldur dregur það úr umferðarþunga með því að draga úr ferðatíma fólks til og frá vinnu. Styrkjum hafnfirskt hugvit og styðjum við rekstur minni frumkvöðlafyrirtækja í Hafnarfirði. Styrkjum ferðaþjónustu í Hafnarfirði Á hverjum degi keyra þúsundir ferðamanna framhjá Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur. Við þurfum að skapa okkur ferðamálastefnu sem snýr að því að fá ferðamenn til þess að staldra við í Hafnarfirði, enda gæti koma þeirra og dvöl hér skilað sveitarfélaginu umtalsverðum fjármunum. Það er þó ekki nóg að hugsa hvað við viljum fá frá ferðamönnunum heldur þurfum við jafnframt að hugsa um hvað við viljum færa þeim í staðinn. Sveitarfélagið þarf að móta sér stefnu sem snýr að því að fjölga ferðamönnum án þess þó að ganga á rétt íbúa til húsnæðis og aðgengis. Ferðaþjónustunni getur bætt líf bæjarbúa og styrkt rekstrargrundvöll veitingahúsa, kaffihúsa, verslana og ýmissa afþreyingarfyrirtækja. Hafnarfjörður hefur allt til alls - hér er eitt fallegasta bæjarstæði á höfuðborgarsvæðinu og þó víðar væri leitað, návígi við fallegar gönguleiðir í óspilltri náttúru, góðar sundlaugar og söfn og aðgengi verslunar og þjónustu með besta móti. Hér eru því veruleg sóknarfæri. Hafnarfjörður er áfangastaður með ríka sögu, kraftmikla og fjölbreytta menningu og iðandi mannlíf sem er áhugavert fyrir gesti að skoða, kynna sér og njóta. Eflum styrkleika Hafnarfjarðar og bjóðum fleiri gesti velkomin í bæinn okkar! Það gerum við með stuðningi bæjaryfirvalda við ferðaþjónustufyrirtæki sem stuðla að sjálfbærri ferðamennsku og með skýra ferðamálastefnu að leiðarljósi þar sem fer saman góð upplifun og sjálfbærni. Höfundur er oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar