HSÍ verður að fá pening frá ríkinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. maí 2026 07:02 Jón Halldórsson, formaður HSÍ. Vísir/Sigurjón Fjárhagsstaða Handknattleikssambands er grafalvarleg en sambandið skuldar tæplega 150 milljónir króna. Sambandið sér ekki fram á að hægt verði að halda afreksstarfinu gangandi nema fá aðstoð frá ríkinu.
HSÍ tapaði 22 milljónum króna á síðasta rekstrarári sem var rúmum 20 milljónum minna en árið á undan. Staðan er afar slæm en hvernig ætlar HSÍ að bregðast við stöðunni? „Það liggur ljóst fyrir og ég hef verið skýr með að það vantar peninga inn frá ríkinu. Skuldastaðan er orðin gríðarleg og við skuldum um 150 milljónir sem þurfa að greiðast á næstu tólf mánuðum. Þetta er ekki út af einhverri óráðsíu. Þetta er það sem kostar að reka samband sem nær árangri,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ, en kostnaður hefur aukist mikið á síðustu árum. „Að fara á stórmót er farið að kosta um 40 milljónir króna. Okkar lið fór alla leið í undanúrslit í janúar og við það lengist ferðin. Það þýðir aukakostnaður upp á 5-7 milljónir. Árangur kostar. Þeir styrkir sem við fáum eru aldrei afreksmiðaðir heldur bara föst tala.“ Engin svör frá ráðuneytinu Jón bendir á að HSÍ sé að fá minna úr afrekssjóði en áður. Sambandið græðir til að mynda ekki á því að karlalandsliðið græði ekki á því að hafa tryggt sér beint sæti á næsta HM. Það er minna greitt fyrir vináttulandsleiki en eðlilega þarf liðið að spila á sama tíma og önnur lið. Formaðurinn segir að samtalið sé virkt við stjórnvöld en það hafi ekki borið neinn árangur enn sem komið er. „Ef það finnst ekki lausn á þessu þá mun þetta bitna á afreksstarfinu. Við erum þegar búnir að skera niður alls staðar þar sem hægt er. Við komum unglingalandslið á mót í sumar en ef ekkert breytist þá þarf því miður væntanlega að skera niður á því sviði líka. Það mun hafa gríðarleg áhrif á íslenskan handbolta til framtíðar.“ Getur HSÍ orðið gjaldþrota? Í ljósi þess að HSÍ þarf að greiða alla þessa upphæð á næstu tólf mánuðum velta menn því upp hvort sambandið geti hreinlega orðið gjaldþrota. „Ég hef fengið þessa spurningu nokkrum sinnum. Auðvitað kemur að því að HSÍ geti ekki gert meira. Ég held að HSÍ verði ekki gjaldþrota en hvers eðlis verður starfsemin? Viljum við halda úti kraftmiklu afreksstarfi þar sem við náum langt á heimsvísu eða viljum við það ekki,“ segir Jón ákveðinn. „HSÍ er afrekssamband og við sem stöndum í stafni viljum keyra þetta sem afrekssamband og ná góðum árangri á alþjóðavettvangi. Þetta hefur áhrif á þjóðina og fólkið stendur með okkur. 150 milljónir er há upphæð en samt ekki svo há að það sé ekki hægt að bjarga þessu.“ „Ég vil líka taka það fram að í öllum okkar áætlunum snýst þetta ekki um að við séum styrkt núna og svo byrjum við að safna skuldum aftur. Það er alls ekki þannig. Við erum búnir að teikna upp rekstrarmódel sem mun bera sig. Það er erfitt að fara af stað með allar þessar skuldir á bakinu.“
HSÍ Landslið karla í handbolta Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira