Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar 13. maí 2026 08:32 Samgönguverkfræðingurinn Daði Baldur Ottósson hjá Eflu varpaði upp merkilegum samanburði á milli norrænna borgarsvæða á ráðstefnu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, Greiðari leið, sem haldin var á Hilton-hótelinu fyrir skemmstu. Þar bar hann saman mannfjölda, tafatíma í umferðinni, lengd sérrýmis strætisvagna og svo ferðavenjur íbúa. Í ljós kom að mældar tafir á höfuðborgarsvæðinu eru meiri hér miðað við nágrannalöndin. Við erum á pari við Árósa og höfuðborgirnar Kaupmannahöfn, Osló og Stokkhólm, sem eru mun stærri en Reykjavík. Verkfræðingurinn setti hlutina í samhengi: „Í þessum borgum hefur verið byggt meira sérrými strætó. Strætóinn gengur hraðar. Við sjáum líka að það eru færri sem ferðast á bíl og auðvitað hlýtur þetta að spila einhverja rullu í því, hversu miklar tafir eru hér á landi, á höfuðborgarsvæðin,“ sagði Daði. Samkvæmt samanburði hans eru um 72% ferða á höfuðborgarsvæðinu farnar á einkabíl, en um 5% með almenningssamgöngum. Engin önnur norrænu borganna fer yfir 60% hlutfall einkabíla, í Stafangri er hlutfallið 57/15 og í Björgvin er hlutfallið 50/16. Í Þrándheimi er hlutfallið 50/18 og í Árósum 48/14. Þetta held ég að sé punktur sem við þurfum að staldra oftar við. Samgöngumynstrið í borginni er ekki nógu gott, valkostirnir við bílinn eru ekki nógu aðlaðandi til að fólk velji þá. Það er ekki út af veðrinu – ég þekki það til dæmis af eigin raun að það er oft napurt í Stokkhólmi á veturna – heldur af því að borgin hefur að mestu verið byggð upp fyrir bílinn. Bílar eru náttúrulega frábærir. Þeir koma fólki hratt á milli staða, nema auðvitað þegar allt situr fast. En bílar eru líka dýrir, bæði í innkaupum og rekstri. Þeim fylgir svo ýmis afleidd neikvæð áhrif á nærumhverfi okkar – hverfin verða háværari og hættulegri, stórkarlaleg mannvirkin slíta byggðina í sundur og dreifa henni, sem svo letur fólk til að nota aðra ferðamáta. Afleiðingin er minni hreyfing borgarbúa og lakari heilsa. Við vitum þetta öll. Þess vegna þurfum við betri valkosti. Við þurfum almenningssamgöngur í sérrými þannig að þær festist aldrei í annarri umferð. Við þurfum áreiðanleika og aukna tíðni. Því ef þú getur verið viss um að þú sért fljótari að taka vagninn til vinnu en á bílnum, þá kemur góð húfa og úlpa manni ansi langt ef það er kalt úti. Þarna kemur Borgarlínan til sögunnar. Fjölbreytt og vaxandi borg kallar á fjölbreytta ferðamáta. Á liðnum áratug hafa verið byggðir upp fleiri tugir kílómetrar af hjólastígum í Reykjavík. Það hefur skilað sér í meira en tvöföldun þeirra sem hjóla allt árið um kring og staðfestir að fólk vill hafa raunverulegt val um ólíka ferðamáta fyrir ólík erindi og mismunandi árstíma. En þá þurfum við líka að skipuleggja og byggja borgina út frá þeim markmiðum. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er svar við þessari áskorun, með uppbyggingu innviða fyrir alla ferðamáta. Við í Samfylkingunni leggjum höfuðáherslu á koma sáttmálanum í framkvæmd. Því í honum felst framtíðarsýn um greiðari, öruggari og betri samgöngur fyrir alla borgarbúa. Fulla ferð áfram! Höfundur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar laugardaginn 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birkir Ingibjartsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun