Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar 13. maí 2026 13:02 Sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 2026 mótast nú í auknum mæli af deilum um vindorkuver, Holtavörðuheiðarlínu 1 og aukin afskipti ríkisins af orkumálum í héraðinu. Á framboðsfundi í Logalandi þ. 14. maí s.l. kom fram óvenju sterk samstaða allra framboða gegn frekari uppbyggingu vindorkuvera í Borgarbyggð og Skorradal, þar sem lögð var áhersla á að standa með landeigendum og bændum gegn því sem kallað er ofríki Landsnets og stjórnvalda. Sérstaklega hefur verið gagnrýnt að ný lagasetning og skipulagsbreytingar færi sífellt meira vald frá sveitarfélögum og heimamönnum yfir til ríkisvaldsins, á sama tíma og áætlanir um stórfellda uppbyggingu flutningskerfis raforku og vindmyllugarða aukast. Gagnrýnendur segja að hér sé komin þróun sem minni sífellt meira á evrópska orkustefnu í anda EES og ESB, þar sem megináhersla sé lögð á samtengingu raforkukerfa, stóraukna orkuframleiðslu og miðstýringu, fremur en vernd íslenskrar náttúru, eignarréttar og sjálfsákvörðunarréttar sveitarfélaga. Deilt hefur verið hart um fyrirhugaða Holtavörðuheiðarlínu 1, sem mun liggja um fjölda jarða í Borgarfirði með allt að 95 metra helgunarsvæði og möstrum hönnuðum fyrir 400 kV línu. Bent hefur verið á að slíkar framkvæmdir geti valdið gríðarlegu raski á landi og búsetuskilyrðum, auk þess sem landeigendur telja sig margir standa berskjaldaða gagnvart nýjum eignarnámsheimildum ríkisins. Í umræðunni hefur einnig verið vísað til þess að innleiðing sífellt fleiri reglna í gegnum EES-samninginn og væntanleg tenging Íslands enn frekar við evrópskan orkumarkað stuðli að aukinni „vindmylluvæðingu“ landsins. Andstæðingar þeirrar þróunar segja að þrýstingur um orkuskipti og útflutningsvædda raforkuframleiðslu sé í reynd að umbreyta íslensku landslagi og færa ákvörðunarvald fjær heimamönnum. Þá hefur verið kallað eftir því að stjórnmálaflokkar, sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, skýri afstöðu sína fyrir kosningar og svari því hvort þeir hyggist standa við yfirlýsta stefnu um vernd eignarréttar og rétt landeigenda þegar á reynir. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Júlíus Valsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Sjá meira
Sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 2026 mótast nú í auknum mæli af deilum um vindorkuver, Holtavörðuheiðarlínu 1 og aukin afskipti ríkisins af orkumálum í héraðinu. Á framboðsfundi í Logalandi þ. 14. maí s.l. kom fram óvenju sterk samstaða allra framboða gegn frekari uppbyggingu vindorkuvera í Borgarbyggð og Skorradal, þar sem lögð var áhersla á að standa með landeigendum og bændum gegn því sem kallað er ofríki Landsnets og stjórnvalda. Sérstaklega hefur verið gagnrýnt að ný lagasetning og skipulagsbreytingar færi sífellt meira vald frá sveitarfélögum og heimamönnum yfir til ríkisvaldsins, á sama tíma og áætlanir um stórfellda uppbyggingu flutningskerfis raforku og vindmyllugarða aukast. Gagnrýnendur segja að hér sé komin þróun sem minni sífellt meira á evrópska orkustefnu í anda EES og ESB, þar sem megináhersla sé lögð á samtengingu raforkukerfa, stóraukna orkuframleiðslu og miðstýringu, fremur en vernd íslenskrar náttúru, eignarréttar og sjálfsákvörðunarréttar sveitarfélaga. Deilt hefur verið hart um fyrirhugaða Holtavörðuheiðarlínu 1, sem mun liggja um fjölda jarða í Borgarfirði með allt að 95 metra helgunarsvæði og möstrum hönnuðum fyrir 400 kV línu. Bent hefur verið á að slíkar framkvæmdir geti valdið gríðarlegu raski á landi og búsetuskilyrðum, auk þess sem landeigendur telja sig margir standa berskjaldaða gagnvart nýjum eignarnámsheimildum ríkisins. Í umræðunni hefur einnig verið vísað til þess að innleiðing sífellt fleiri reglna í gegnum EES-samninginn og væntanleg tenging Íslands enn frekar við evrópskan orkumarkað stuðli að aukinni „vindmylluvæðingu“ landsins. Andstæðingar þeirrar þróunar segja að þrýstingur um orkuskipti og útflutningsvædda raforkuframleiðslu sé í reynd að umbreyta íslensku landslagi og færa ákvörðunarvald fjær heimamönnum. Þá hefur verið kallað eftir því að stjórnmálaflokkar, sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn, skýri afstöðu sína fyrir kosningar og svari því hvort þeir hyggist standa við yfirlýsta stefnu um vernd eignarréttar og rétt landeigenda þegar á reynir. Höfundur er læknir og fullveldissinni.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar