Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar 14. maí 2026 09:42 Fyrstu árin í lífi barns fáum við aldrei aftur. Foreldrar þekkja börnin sín best og vita hvað hentar sinni fjölskyldu. Þrátt fyrir það upplifa margir foreldrar að valmöguleikar þeirra séu takmarkaðir þegar kemur að umönnun og uppeldi á fyrstu árum barnsins. Ein leið til að auka þetta svigrúm væri að innleiða heimgreiðslur fyrir foreldra ungra barna í Mosfellsbæ. Hugmyndin felur í sér að foreldrar sem eru lengur heima með börnin sín eftir fæðingarorlof, geti fengið fjárhagslegan stuðning. Slíkur stuðningur gæti verið hluti af því sem Mosfellsbær ver nú þegar í leikskóladvöl barns. Það getur létt á leikskólakerfinu og verið hagkvæmur kostur sem styður við barnafjölskyldur. Í umræðunni um leikskólamál hefur verið rætt um snemmbæra innkomu barna í leikskóla og lögfestingu leikskólans. Lögfesting leikskólans er langtímamarkmið, þar sem undirliggjandi tilgangur er að fá foreldra sem fyrst út á vinnumarkaðinn til að fá enn meiri skatttekjur í ríkissjóð. Heimgreiðslur eru raunhæf og skjót leið til að auka valfrelsi foreldra og bregðast við þörfum fjölskyldna nú þegar. Reynsla sveitarfélaga sem hafa prófað sveigjanlegri nálganir bendir til þess að eftirspurn eftir fjölbreyttum lausnum sé raunveruleg og að foreldrar kjósi ekki allir sömu leið. Í 1. gr. Barnalaga segir að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Með heimgreiðslum geta foreldrar sem telja það best fyrir sín börn að vera lengur heima, sett hagsmuni barna sinna í forgang án þess að fórna fjárhagslegu öryggi. Ég hef sjálf kosið að vera heima með dætur mínar þrjár á fyrstu mikilvægu árum þeirra. Þar sem heimgreiðslur eru ekki í boði þurfa foreldrar sem velja þessa leið að hugsa út fyrir kassann, t.d. að annað foreldrið vinni meira eða foreldrar skiptist á vinnu og umönnun. Heimgreiðslur myndu styðja við fjölskyldusamveru, og sterkar fjölskyldur eru grunnurinn að sterku samfélagi. Fyrstu ár barns eru lykilár í tengslamyndun. Félagsþroski barna mótast fyrst og fremst í nánum og traustum samskiptum, ekki eingöngu innan veggja leikskóla. Heimgreiðslur geta aukið svigrúm foreldra til að tryggja náin tengsl á fyrstu mótunarárum barnsins. Heima hefur 5 ára dóttir mín m.a. lært skrift, lestur og stærðfræði með miklum áhuga. Það hefur verið mjög gefandi að taka virkan þátt í náminu hennar. Ég vil leggja mitt að mörkum til að efla samstarf heimila og skóla og auka aðkomu foreldra að skólastarfi. Sumir foreldrar hafa lýst áhyggjum af efni sem börn fá kynningu á og telja mikilvægt að meira samráð og gagnsæi sé til staðar. Ég man eftir því þegar elsta dóttir mín var 2-3 ára á leikskóla, og hún fékk heim bókina Orð eru ævintýri, útgefinni af Menntamálastofnun fyrir leikskólabörn. Í bókinni voru m.a. teikningar af nöktum börnum þar sem stóð „stelpa“, „strákur“ og „stálpi“. Þarna er verið að kynna efni fyrir ungum börnum sem ekki allir foreldrar telja eiga heima í leikskóla. Þetta tengist stærra atriði um valfrelsi foreldra og traust í uppeldi, og því hvort foreldrar hafi næga aðkomu að því hvernig fyrstu ár barnsins eru mótuð. Fjölgun raunhæfra valkosta í Mosfellsbæ styður við fjölbreyttar fjölskyldur og styrkir samfélagið í heild. Höfundur er lögfræðingur og móðir og skipa 4. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun