Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. maí 2026 08:38 Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus. Vísir/Ívar Fannar Bónus í Skipholti er nú opið klukkutíma lengur en áður, til tíu að kvöldi. Tvær Bónus verslanir eru nú opnar svo lengi en framkvæmdastjóri Bónus segir lengri opnunartíma ekki skila sér út í verðlag. Ákvörðunin sé svar við kalli viðskiptavina.
Fréttir af lengri opnunartíma hafa vakið mikla athygli á tímum verðbólgu, áhyggjufullir neytendur ræða málið meðal annars á Facebook hópnum Verðlag - eftirlit og er því velt þar hvort opnunartíminn þýði hækkanir á verðlagi. Nokkrir fagna þó lengri opnunartíma en nú eru tvær Bónus verslanir, í Skipholti og á Laugavegi opnar til 22:00. Bónus í Skipholti, sem áður var opin til 21:00 líkt og myndin gefur til kynna.Vísir/Vilhelm Erlendir ferðamenn sæki mikið í verslanirnar Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus segir í svari við fyrirspurn Vísis að ákvörðunin um lengri opnunartíma í Skipholti hafi ráðist af því hve vel hafi tekist til á Laugavegi. Viðskiptavinir hafi kallað eftir lengri opnunartíma. „En auk þeirra sækja erlendir ferðamenn mikið í verslun okkar þar sem og á Laugaveginum. Lengdur opnunartími á Laugaveginum hefur haft mjög jákvæð áhrif á verslunina og viðbrögð viðskiptavina, án þess að hafa neikvæð áhrif á vöruverð.“ Hann segir breytinguna ekki munu hafa neikvæð áhrif á verðlag í verslun. „Enda er það okkar helsta keppikefli að bjóða hagstæðasta mögulegt verð til okkar viðskiptavina í öllum okkar verslunum um allt land. Breytingar sem þessar eru gerðar til þess að koma enn betur til móts við þarfir allra okkar viðskiptavina með kostinum á að geta verslað lengur á hagstæðu verði.“
Verslun Neytendur Reykjavík Matvöruverslun Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira