Innlent

Al­var­legt bíl­slys á Breið­holts­braut:

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Talsvert af viðbragðsaðilum er á vettvangi.
Talsvert af viðbragðsaðilum er á vettvangi. Aðsend

Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyss þar sem tveir bílar höfnuðu utan vegar á Breiðholtsbraut. Talsverður fjöldi lögreglubíla er einnig á vettvangi.

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír hafi verið fluttir á slysadeild. Tveir bílar sjást á myndskeiði sem fréttastofu barst af vettvangi talsvert illa leiknir.

Báðir höfðu bílarnir hafnað utan vegar og einum hafði verið ekið utan í tré við vegkantinn.

Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×