„Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Árni Sæberg skrifar 18. maí 2026 11:46 Bíll ökumannsins hafnaði á trjám við aðrein á Reykjanesbraut þar sem hún mætir Breiðholtsbraut. Ökumaðurinn sem lögregla eltist við á ofsahraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi er piltur undir tvítugu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna málsins frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að þrír hafi verið fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi borist tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan tíu, en þá hafi bifreið verið ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum og eftir Reykjanesbraut áleiðis að Hafnarfirði. Myndskeið af vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan: Þar hafi eftirför embættisins hafist, en fyrrnefndri bifreið hafi verið ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en hafi eftirförinni lokið þegar „ökufanturinn“ ók aftan á aðra bifreið. Við áreksturinn hafi báðar bifreiðarnar hafnað utan vegar. Tveir hafi verið í bifreiðinni, sem ekið var á og báðir hafi verið fluttir á slysadeild, en ekki sé talið að meiðsli þeirra séu alvarleg. Lögreglan á eftir bílnum á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi. „Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn.“
Lögreglumál Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira