Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Agnar Már Másson skrifar 18. maí 2026 15:53 Þó svo að númerið sé íslenskt og röddin í símanum tali íslensku gæti verið um erlendan netsvikara að ræða. Framfarir í gervigreind hafa orðið til þess að hægt er að herma eftir íslenskum röddum með mikilli nákvæmni. Getty Lögregla varar við því að erlendir netsvikarar noti talgervil, sem breytir íslenskum texta í tal, til að blekkja fólk í gegnum síma og svíkja af því fé.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því í tilkynningu að í lengri tíma hafi fjársvik verið í gangi sem séu þess eðlis að hringt sé í fólk og á línunni sé aðili sem gefi sig út fyrir að vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í. Í framhaldinu sé viðkomandi leiddur í gegnum ferli við uppsetningu búnaðar í tölvu sinni sem geri brotamönnum kleift að komast yfir fjármuni hans. „Nú hefur sú breyting orðið á þessum svikum að bæði er hringt úr íslenskum símanúmerum og notaður er talgervill í samskiptunum,“ skrifar lögreglan. Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi og íslenska er töluð við þann sem reynt er að svíkja. Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu, segir í tilkynningunni. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota. Tækniframfarir undanfarinna ára, meðal annars þær er varða gervigreind, hafa orðið til þess að hægt er að herma eftir íslenskum framburði með mikilli nákvæmni.
Lögreglumál Gervigreind Íslensk tunga Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira