Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Lovísa Arnardóttir skrifar 20. maí 2026 07:42 Stór netárás var gerð í Háskóla Íslands og í háskóla víða um heim í mánuðinum. Vísir/Vilhelm Frá því að ný netgátt fyrir netglæpi var opnuð um miðjan apríl hafa borist til hennar um 250 ábendingar um netbrot og um 31 mál borist til rannsóknar.
Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa 25 þeirra verið í rannsókn hjá þeirra embætti. Dómsmálaráðherra opnaði fyrir um mánuði síðan nýja netgátt, stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu. Í svari til fréttastofu um fjölda tilkynninga kemur jafnframt fram að ábendingar um netbrot á þessum tíma séu 250 talsins. Á sama tímabili hafi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist tíu netbrotamál sem ekki komust í gegnum gáttina. „Þau mál varða allajafna hærri upphæðir en þau sem berast í gegnum gáttina, þótt það sé ekki algilt,“ segir í svari lögreglunnar. Grafi undan trausti Í tilkynningu á island.is í apríl um netgáttina kom fram að með gáttinni væri almenningi, fyrirtækjum og stofnunum gert kleift að tilkynna netglæpi á einfaldan, öruggan og aðgengilegan hátt. Einnig væri hægt að nálgast upplýsingar um fræðslu á vef gáttarinnar. „Netglæpir hafa vaxið hratt á undanförnum árum. Þessir glæpir valda ekki aðeins fjárhagslegu tjóni heldur grafa einnig undan trausti – sem er ein af grunnstoðum samfélagsins. Þessir glæpir eru ekki lengur einangraðir. Þeir eru hluti af skipulagðri brotastarfsemi sem teygir anga sína þvert á landamæri og nýtir sér tæknina til að fremja fjársvik, blekkingar og árásir á einstaklinga, fyrirtæki og innviði,“ sagði dómsmálaráðherra um gáttina í aðsendri grein á Vísi um viku eftir opnun hennar. Stuttu eftir að tilkynnt var um opnun gáttarinnar var til dæmis greint frá því að eigendur léna hefðu fengið svikapósta og að gögnum nemenda háskóla á Íslandi og víða um heim hefði verið stolið.
Lögreglumál Netglæpir Netöryggi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Háskólar Tengdar fréttir Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland ISNIC varar rétthafa . is léna við tölvupóstum sem hafa borist undanfarna daga þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland fyrir íslensk lén. 29. apríl 2026 15:03 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira
Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland ISNIC varar rétthafa . is léna við tölvupóstum sem hafa borist undanfarna daga þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland fyrir íslensk lén. 29. apríl 2026 15:03