KA - Valur 0-1 | Vals­menn stöðvuðu sigur­göngu KA

Árni Gísli Magnússon skrifar
Besta Deild Karla Valur - FH 2026-6

Valur vann góðan útisigur á KA í áttundu umferð Bestu deildar karla þegar liðin mættust á Greifavellinum fyrr í kvöld. Albin Skoglund skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks.

Eftir leikinn eru Valsmenn í fimmta sæti með 15 stig en KA í sjöunda sæti með tíu stig.

Lítið var um færi til að byrja með og voru heimamenn meira með boltann og sköpuðu sér ágætis stöður á meðan gestirnir reyndi að sækja hratt.

Eftir rúman hálftíma leik fengu Sveinn Margeir Hauksson og Oliver Heiðarsson báðir gott færi en tókst ekki að nýta það.

Valsmenn tóku forystuna á 41. mínútu, smá gegn gangi leiksins er hægt að segja, en Tryggvi Hrafn Haraldsson lyfti boltanum þá skemmtilega yfir Steinþór í marki KA og í stöngina og þaðan hrökk boltinn til Albin Skoglund sem setti boltann auðveldlega í markið af örstuttu færi.

Rétt fyrir hálfleikslok voru KA menn óheppnir að jafna ekki. Daniel Dejan Djuric þræddi boltann inn fyrir á Oliver Heiðarsson sem gerði allt vel en skotið endaði í fjærstönginni.

Valsmenn leiddu með einu marki í hálfleik.

Leikurinn jafnaðist meira út í síðari hálfleik og fóru Valsmenn að halda betur í boltann en áfram sköpuðu KA menn sér hættulegri færi og bönkuðu nokkuð duglega á dyrnar hjá Val.

Bæði lið vildu fá víti og höfðu líklega eitthvað til síns máls en dómari leiksins var ekki sammála.

Það fór svo að leiknum leik með torsóttum 1-0 sigri Vals og geta KA menn nagað sig í handabökin að hafa ekki náð að minnsta kosti stigi.

Atvik leiksins

Þetta var ekki leikur margra stórra atvika þannig gefum marki leiksins þennan lið. Tryggvi Haraldsson lyfti boltanum skemmtilega yfir Steinþór Má Auðunsson í marki KA og þaðan hrökk boltinn til Albin Skoglund sem gat ekki annað en skorað af stuttu færi

Stjörnur og skúrkar

Tryggvi Haraldsson var alltaf viðloðandi þegar Valsarar voru að skapa eitthvað.

Jakob Franz Pálsson átti góða innkomu af bekknum strax á tíundu mínútu og skilaði hreinu laki ásamt Hólmari Erni Eyjólfssyni sem var með honum í hjarta varnarinnar.

Jeppe Pedersen var flottur á miðjunni hjá KA, sérstaklega í fyrri hálfleik.

Markús Máni Pétursson og Hans Viktor Guðmundsson áttu góðan leik í vörn heimamanna.

Dómarinn

Gunnar Oddur Hafliðason átti fínan leik á flautunni. Bæði lið gerðu hátt kall eftir víti og hefði líklega verið hægt að dæma hvoru liði eitt víti og hægt kannski að setja út á þá ákvörðun hans að dæma ekkert.

Stemning og umgjörð

Umgjörðin góð að venju en stemningin var afskaplega takmörkuð og heyrðist ekki mikið úr stúkunni.

„Þetta eru fallegustu sigrarnir“

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var kátur eftir 1-0 útisigur gegn KA og stoltur af sínu liði fyrir að hafa siglt sigrinum heim þrátt fyrir að spilamennskan hafi ekki verið frábær.

„Já bara baráttusigur. Við vorum ekki mjög öflugir með boltann hérna í dag, það er alveg á hreinu, það kom okkur bara í vesen, við misstum hann alltaf í burtu og lélegir á boltanum en þetta eru samt fallegustu sigrarnir; 1-0 úti, spila ekki vel en við börðumst eins og ljón fyrir sigrinum. Við vörðumst allir sem einn og í föstum leikatriðum og þeir náttúrulega þrýstu mikið á okkur og náðum að halda hreinu og standa þetta af okkur þannig við fögnum þessu, það þarf karakter í þetta og strákarnir voru geggjaðir hérna í dag í því.“

KA hélt meira í boltann á meðan Valsarar áttu erfitt með það og reyndu að sækja hratt upp völlinn þess í stað.

„Við vorum bara soddan klaufar með boltann, við gáfum þeim hann alltof einfalt, bara slakir með boltann. Mér fannst við hálf svona flatir, eins og það vantaði smá orku í okkur með boltann sérstaklega og hreyfingu og annað en kveiktum á okkur varnarlega.“

„Við erum bara gríðarlega spenntir. Sitjum á ágætis stað í töflunni og risaleikir framundan og við urðum að vinna í dag til þess að gera það að alvöru leikjum þannig við erum búnir að vinna fyrir því að næsti leikir verða stórir“, sagði Hermann aðspurður um næstu leiki sem eru geng KR og Víkingi.

Orri Sigurður Ómarsson fór af velli snemma leiks vegna meiðsla og Albin Skoglund sömuleiðis í síðari hálfleik.

„Ég veit það ekki alveg hvernig Orri og Albin eru, ég held það hafi ekki verið alvarlegt hjá Albin allavega en við skoðum það um helgina en vonandi eru svona einn og tveir og týnast inn.“

„Þurfum að vera með meira bit fram á við“

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var eðlilega vonsvikinn eftir 1-0 tap gegn Val á heimavelli í leik sem KA liðið var heilt yfir sterkari aðilinn.

Fannst þér þetta ósanngjörn úrslit?

„Já mér fannst það, mér fannst við bara hafa góð tök á leiknum, svolítill heppnisstimpill yfir þessu marki hvernig hann fer í stöngina og dettur fyrir eina manninn þarna fyrir framan markið. Á sama tíma erum við með 20 skot og skjótum í einhvern veginn í stöngina út og hittir ekki okkar mann, það er oft stutt á milli í þessu, en mér fannst við gera nokkuð vel. Við erum sterkari aðilinn en það vantar aðeins bit fram á við, við erum ekki að skapa nóg af færum miðað við hvað við erum að komast á síðast þriðjung, það er eitthvað sem við verðum að laga.“

KA hélt boltanum betur en Valsliðið sem átti í erfiðleikum með að ná almennilegum takti í sitt spil.

„Við vorum bara undirbúnir undir þetta, þeir eru búnir að vera svolítið að gera þetta, þeir eru ekki oft meira með boltann heldur en hitt liðið og hefði viljað þora að spila meira fram á við þegar við vinnum boltann í fyrri hálfleik, þora að vera stærri, því það var svo sannarlega möguleiki hvernig leikurinn þróaðist að við gátum meitt þá meira og skorað. Það er ekki eins og það hafi verið himinn og haf milli liðanna, þetta bara datt þeirra megin eitthvað skot sem fer í stöng og dettur eitthvert. Ég held að bæði lið hefð getað fengið víti í þessum leik en besta frammistaðan á heimavelli hingað til finnst mér en sárt að tapa en ef þetta eru liðin sem við erum að fara vonandi að keppa við þá sjáum við að við erum á góðum stað.“

KA er í sjöunda sæti með 10 stig en það er stutt í næstu lið bæði fyrir ofan og neðan þá í töflunni.

„Þessi deild er bara þannig að það þýðir ekkert að spá í því eftir svona fáa leiki. Þetta snýst bara um að við ætlum að verða betri í því sem við erum að gera og við erum mjög sterkir varnarlega og fáum eitt mark á okkur í dag. Við erum búnir að fá á okkur örugglega næstminnst mörk í deildinni eins og staðan er núna þannig það er flott en sóknarlega þurfum við að vera beittari, þurfum að koma okkur í fleiri afgerandi stöðu og hafa smá svona ró fyrir framan markið. Boltinn dettur tvisvar hérna fyrir Valdimar (Loga Sævarsson) sem við reynum að negla og hittum varla boltann. Það eru sénsarnir en við þurfum að taka þá betur og það er auðveldara að vinna með það heldur að vinna ef varnarleikurinn er hræðilegur.“

„Við vitum það, við vitum að við munum vaxa inn í mót, við vitum hver staðan er. Ég er ánægður með holninguna á liðinu en við þurfum að vera með meira bit fram á við og það er bara það sem við ætlum að vinna í“, sagði Hallgrímur að endingu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira