Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2026 21:20 Þórólfur Júlían Dagsson er stjórnarmaður í Strandveiðifélagi Íslands. Aðsend - Vísir/Vilhelm Stjórnarmaður í Strandveiðifélagi Íslands hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna milliverðlagningar í fyrirtækjasamstæðum íslenskra útgerðarfélaga. Sakar félagið þau um kerfisbundna misnotkun.
Umboðsmaður er beðinn um að hefja athugun á meintu ófullnægjandi eftirliti stjórnvalda með milliverðlagningu sjávarútvegsfélaga og niðurlagningu embættis skattrannsóknarstjóra árið 2021. Kvörtunin til ESA varðar meinta samkeppnisbrenglun í íslenskum sjávarútvegi og ófullnægjandi eftirlit með milliverðlagningu. Þá er óskað eftir því að athugað verði hvort þetta jafngildi óleyfilegri ríkisaðstoð í skilningi EES-samningsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strandveiðifélagi Íslands en Þórólfur Júlían Dagsson, stjórnarmaður þess, sendir kvartanirnar til Umboðsmanns Alþingis og ESA. Milliverðlagning vísar til þess hvernig lögaðilar verðleggja viðskipti sín á milli og á til að mynda við um það hvernig útgerðarfyrirtæki verðleggja afla sinn þegar hann er seldur áfram til tengdrar fiskvinnslu eða sölufyrirtækis. Hvati til staðar Í kvörtuninni til Umboðsmanns Alþingis er vísað í álit Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2012 þar sem segir að það „kunni að vera hvatar hjá lóðrétt samþættum útgerðarfyrirtækjum sem valda því að þau gefa upp sem lægst verð í innri viðskiptum milli vinnslu- og útgerðarhluta fyrirtækjanna. Með því geta lóðrétt samþætt útgerðarfyrirtæki sem stunda bæði veiðar og vinnslu dregið úr gjaldtöku ríkisins og annarra opinberra aðila af rekstrinum og lækkað launakostnað sinn.“ Þórólfur segir að einungis sum fyrirtæki geti nýtt sér þetta þar sem þau þurfi að reka félag erlendis „til að færa hagnaðinn til“. Þar sem þessi erlendu félög séu jafnan skráð í öðrum ríkjum EES-svæðisins geti viðskiptin fallið undir EES-samninginn. Strandveiðifélagið geti ekki flutt hagnað sinn erlendis „Þegar stórútgerðin greiðir lægri veiðigjöld og lægri tekjuskatt en henni ber af raunverulegu aflaverðmæti, þá er mismunurinn greiddur af þjóðinni. Það er ríkisstyrkur í formi lægri skatta af sameiginlegri auðlind landsmanna,“ segir í tilkynningu Strandveiðifélagsins. „Strandveiðifélagið hefur enga möguleika á að flytja hagnað til Lúxemborgar eða Hollands. Þess vegna er það rétti aðilinn til að standa fyrir þessari kvörtun. Hér er talað fyrir þá sem starfa eftir reglunum, sjálfstæða útgerðarmenn, vinnslur án eigin kvóta, ný fyrirtæki sem reyna að hasla sér völl, og íslenska ríkið sjálft sem er hlunnfarið.“
Sjávarútvegur Strandveiðar EFTA Umboðsmaður Alþingis Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira