Strandveiðar
1 2 3 … 3 ›
Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, á í hörðum deilum í kommentakerfinu um strandveiðar. Hún segir við minnihlutann að sakast að strandveiðifrumvarpið hafi ekki fengið afgreiðslu fyrir þinglok en Fiskistofa hefur stöðvað strandveiðar í sumar. Innlent 16.7.2025 23:31
Strandveiðar bannaðar á morgun Strandveiðum er að óbreyttu lokið í ár. Fiskistofa mun stöðva strandveiðar á morgun þar sem ekki verður bætt við aflaheimildir strandveiðibáta í sumar. Innlent 16.7.2025 18:26
Strandveiðar eru ekki sóun Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS finnur að því að atvinnuvegaráðherra sé nú að skoða hvort einhverjar leiðir séu færar til að tryggja 48 daga til strandveiða. Ráðherra er varaður við umleitan sinni. Skoðun 16.7.2025 15:30
Aukið við sóun með einhverjum ráðum Eitt þeirra mála sem ekki tókst að afgreiða fyrir þinglok var frumvarp atvinnuvegaráðherra um að tryggja 48 strandveiðidaga á ári. Í umfjöllun Morgunblaðsins þann 15. júlí lýsir atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, því yfir að það sé miður að frumvarpið hafi ekki fengið hljómgrunn í þinglokaviðræðum. Jafnframt segir hún að nú sé verið að skoða hvort einhverjar leiðir séu færar til að verða við því. Skoðun 16.7.2025 08:00
Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Formaður atvinnuveganefndar segist eiga von á því að þriðja umræða um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra klárist í dag, og atkvæði verði greidd um málið. Hann vonar að stjórnarandstaðan sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita aftur ákvæði sem takmarkar ræðutíma þingmanna. Innlent 12.7.2025 13:17
Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Það eru örfá ár síðan að strandveiðarnar voru kynntar sem táknrænt loforð stjórnvalda um atvinnufrelsi fyrir smábátaeigendur, byggðafesta fyrir sjávarþorpin og sjálfbær nýting á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, - fisknum í sjónum. Skoðun 10.7.2025 09:01
Ráðherra gengur fram án laga Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hefur gengið fram með aðgerðum sem fara gegn grunnstoðum fiskveiðistjórnunar á Íslandi. Með því að úthluta 1.000 tonnum í viðbótar strandveiðiheimildir – án þess að lagagrundvöllur liggi fyrir – er verið að búa til hættulegt fordæmi. Slík stjórnsýsla er hvorki fagleg, lögmæt né forsvaranleg. Skoðun 5.7.2025 21:01
Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Atvinnuvegaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Breytingin heimilar auknar aflaheimildir til strandveiða sem nemur 1.032 tonnum á fiskveiðiárinu 2024-2025. Við aukninguna eykst heildarafli á strandveiðum úr 10.000 tonnum í 11.032 tonn. Innlent 4.7.2025 16:30
Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Magnús Þór Hafsteinsson hafði hund sinn með sér þegar strandveiðibátur hans sökk. Magnús var úrskurðaður látinn en hundurinn hefur ekki fundist. Formaður Dýrfinnu, samtaka sem hafa uppi á týndum gæludýrum, segir mögulegt að hundurinn sé enn á lífi og hafi rekið á land á Kópanesi. Innlent 3.7.2025 21:35
Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Björgunarbátur á strandveiðibátnum sem sökk úti fyrir Patreksfirði á mánudag blés ekki út. Von er á flakinu til Reykjavíkur um helgina. Auk skipstjórans hundur hans um borð og hefur ekki fundist. Innlent 3.7.2025 15:09
„Ég á ekki von á því að það vefjist fyrir ráðherranum“ Búið er að landa rúmum 83 prósentum af þorskvóta strandveiðitímabilsins þegar tímabilið er hálfnað og tveir mánuðir eftir af fjórum. Formaður Landssambands smábátaeigenda hefur ekki áhyggjur af því að veiðarnar verði stöðvaðar í næstu viku þótt ekki náist að afgreiða strandveiðifrumvarp ríkisstjórnarinnar áður en potturinn klárast. Innlent 2.7.2025 11:18
Magnús Þór lést við strandveiðar Strandveiðimaðurinn sem lést þegar bátur hans sökk út af Patreksfirði í gær hét Magnús Þór Hafsteinsson og var 61 árs. Hann var fyrrverandi þingmaður og gerði út á bátnum Orminum langa AK-64 frá Patreksfirði. Innlent 1.7.2025 14:11
Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út á sjötta tímanum í dag vegna strandveiðibáts sem lenti í vandræðum með stýri bátsins. Bátinn rak stjórnlaust í átt að landi en hann hefur nú verið dreginn til Patreksfjarðar. Innlent 30.6.2025 19:55
Strandveiðisjómaður lést Strandveiðisjómaður lést í dag eftir að bátur hans sökk úti af Patreksfirði. Innlent 30.6.2025 17:06
„Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Formaður atvinnuveganefndar frábiður sér allar sögusagnir um sýndarsamning við nýjan meirihlutaeiganda útgerðarinnar Sleppu ehf. Hann segir vistaskipti í framkvæmdastjórn og breytingar á prókúruhöfum eiga eftir að ganga í gegn. Innlent 7.6.2025 09:00
Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Dæmi eru um að strandveiðisjómenn séu aftur komnir með kvóta í hendurnar sem þeir höfðu selt dýrum dómum til útgerða. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins óttast að hlutirnir þróist þannig að strandveiðipotturinn stækki enn frekar. Innlent 5.6.2025 23:15
Þaggaði niður í þingmönnum sem sögðu Kristrúnu snúa út úr Forsætisráðherra segist hafa áhyggjur af framleiðni og vinnu þingsins og í hvað það eyðir tíma. Þetta sagði hún í svari við fyrirspurn þingmanns Miðflokksins í óundirbúnum fyrirspurnum um samheldni ríkisstjórnarinnar. Uppúr sauð og þurfti forseti Alþingis að þagga niður í þingmönnum. Innlent 5.6.2025 12:59
Hoppað yfir girðingarnar Strandveiðar hafa skipað mikilvægan sess í íslenskum sjávarútvegi undanfarin ár, bæði sem vettvangur fyrir nýliðun og sem leið til að halda uppi lífi í smærri byggðum landsins. Það er því ekkert nýtt að strandveiðarnar njóta stuðnings í samfélaginu – og með réttu. Hins vegar eru nýlegar breytingar á framkvæmd strandveiðikerfisins og fyrirhugaðar lagabreytingar alvarlegt áhyggjuefni. Skoðun 5.6.2025 07:31
Strandveiðimenn huga að samstöðufundi við Austurvöll Strandveiðisjómenn liggja nú margir undir feldi og íhuga hvort boða eigi til samstöðu- og stuðningsfundar með ríkisstjórninni á Austurvelli á föstudaginn. Umræður standa yfir um strandveiðifrumvarp ríkisstjórnarinnar sem á að tryggja 48 daga veiðitímabil í sumar, en strandveiðimenn óttast að stjórnarandstaðan ætli að tefja afgreiðslu málsins um of. Innlent 4.6.2025 19:02
Pólitískur gúmmítékki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur berst nú fyrir því að tryggja strandveiðimönnum 48 daga veiði í sumar, án þess að fylgja vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunnar. Fara á langt yfir þau 10.000 tonn af þorski sem eru í pottinum í þeim eina tilgangi að halda olnbogabarni ríkisstjórnarinnar, Flokki Fólksins, á mottunni. Skoðun 4.6.2025 14:00
Forstjórinn stígur fram Það vakti athygli meðal félagsmanna í LS hversu frumvarp Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra kveikti sjálfbærnibálið hjá Hafrannsóknastofnun. Skoðun 3.6.2025 08:32
Bendir ríkisstjórn á „byrjendanámskeið í verkefnastjórnun“ Fjöldi mála bíður nú þegar lokaspretturinn er hafinn á Alþingi. Fundað verður daglega í vikunni og alls eru sjö þingfundir eftir samkvæmt starfsáætlun. Þingflokksformaður Viðreisnar reiknar með að þinglokum seinki um nokkra daga en þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórn um vanvirðingu við þingið og þingsköp. Innlent 2.6.2025 21:17
Kvótaverð, veiðigjald, fjárfesting og arðsemi í sjávarútvegi Sumt í framgöngu fulltrúa SFS í umræðunni um veiðigjaldafrumvarpið er ekki alveg í anda þeirrar hófstilltu og málefnalegu umræðu sem þeir auglýsa eftir. Dæmi um þetta er nýleg grein á Vísi, sem er líka á heimasíðu SFS, Daði Már týnir sjálfum sér. Skoðun 2.6.2025 14:32
Til hamingju með sjómannadaginn Á hátíðardegi sjómanna er tilefni að líta til baka og fara yfir það sem tekist hefur vel. Einnig er ástæða til að fara yfir helstu áskoranir sem blasa við í sjávarútvegi. Skoðun 31.5.2025 08:02
Trollveiðar og veiðiráðgjöf Fyrir stuttu fór ég í bíó og sá Haf (Ocean), nýjustu mynd Sir David Attenborough. Mynd sem Attenborough sjálfur telur eina sína mikilvægustu á ferlinum og mynd þar sem hann segir að hafið og lífríki þess sé mikilvægasti hluti jarðarinnar. Skoðun 30.5.2025 17:03
Gríðarlegir hagsmunir í húfi Orðspor íslensks sjávarútvegs er meðal mikilvægustu verðmæta greinarinnar. Á alþjóðlegum mörkuðum njóta íslenskar fiskafurðir mikils álits, ekki aðeins vegna gæða heldur einnig vegna þess að þær eru afurðir sjálfbærra og ábyrgra veiða. Skoðun 30.5.2025 16:37
„Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir í viðtali við Bítið á Bylgjunni að nýtt strandveiðifrumvarp sem Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, lagði fram á Alþingi í gær muni búa til ný vandamál: fleiri báta á strandveiðum og óseðjandi kerfi. Innlent 30.5.2025 13:02
Ætla ekki að minnka leyfilegan dagsafla Sigurjón Þórðarson segir að ríkisstjórnin ætli ekki að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð á strandveiðum. Slíkar hugmyndir hafi verið viðraðar í ráðuneytinu en ríkisstjórnin hafi verið sammála um að gera það alls ekki. Innlent 29.5.2025 17:36
„Arfavitlaus lausn“ að minnka aflann í hverri veiðiferð Formaður Strandveiðifélags Íslands segir að það væri „algjör hörmung“ að minnka leyfilegan heildarafla í hverri veiðiferð á strandveiðum. Hann fagnar bráðabirgðafrumvarpi atvinnuvegaráðherra sem ætlað er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar, en furðar sig á sumum hugmyndum sem viðraðar eru í greinargerð frumvarpsins. Innlent 29.5.2025 17:13
Segir ráðgjöf Hafró kippt úr sambandi og „gúmmítékki“ sendur á næstu ríkisstjórn Þingmaður Miðflokksins segir frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á lögum um strandveiðar til bráðabirgða vera með ólíkindum. Nái málið óbreytt fram að ganga verði ráðagjöf Hafrannsóknarstofnunar kippt úr sambandi með hætti sem ekki hafi áður sést. Þessu segist ráðherra ósammála og ítrekar að um ákvæði til bráðabirgða sé að ræða, annað frumvarp um strandveiðar sé væntanlegt í haust. Innlent 29.5.2025 13:55