Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið á­fram í toppmálum

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Óskar Borgþórsson skoraði annað mark Víkinga í kvöld.
Óskar Borgþórsson skoraði annað mark Víkinga í kvöld. vísir/Diego

Víkingur heldur áfram sigurgöngu sinni á toppi Bestu deildar karla eftir afar sannfærandi 1-3 sigur gegn Stjörnunni á Samsungvellinum í kvöld. Víkingar eru því enn taplausir eftir níu umferðir með átta sigra og eitt jafntefli, á meðan Stjarnan situr áfram í neðri hluta deildarinnar eftir enn eitt tapið. Síðasti sigur Stjörnunnar í deild kom 17. apríl.

Það voru gestirnir úr Fossvoginum sem voru sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn. Víkingar stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik og uppskáru mark á 28. mínútu þegar Valdimar Þór sótti vítaspyrnu fyrir gestina. Gylfi Þór Sigurðsson fór á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi til að koma Víkingum yfir.

Víkingar héldu áfram að sækja eftir að hafa komist yfir og voru mun beittari fram á við heldur en heimamenn. Það skilaði sér svo aftur á 38. mínútu þegar Óskar Borgþórsson tvöfaldaði forystuna eftir vel útfærða sókn gestanna. Valdimar Þór Ingimundarson lagði markið upp með skemmtilegum tilþrifum þar sem hann kom boltanum á Óskar með hælsendingu, Óskar þakkaði fyrir sig með að setja boltann í netið.

Stjörnumenn voru í talsverðum vandræðum þegar kom að hálfleik, tveimur mörkum undir gegn mjög spræku og góðu Víkingsliði.

Heimamenn komu þó betur inn í síðari hálfleik. Stjörnumenn tóku horn sem Víkingur skallaði burt en þá mætti Damil Serena á ferðinni og negldi boltanum í gegnum pakkann fyrir framan markið og minnkaði muninn, gaf heimamönnum líflínu.

Stjörnumenn tóku smá við sér eftir mark Damil en það entist þó ekki lengi þar sem Valdimar Þór kom gestunum í 1-3 á 65. mínútu og slökkti að mestu vonir heimamanna. Markið kom eftir enn eina góða sókn Víkinga sem voru einfaldlega skrefi á undan Stjörnunni nánast allan leikinn.

Eftir þriðja markið róaðist leikurinn nokkuð hvað færi varðar, þó greinilegt væri að pirringur væri til staðar, sérstaklega hjá heimamönnum. Víkingar héldu þó fullri stjórn og sigldu stigunum þremur heim í Fossvoginn.

Lokatölur í Garðabænum 1-3 sigur toppliðsins sem heldur áfram sigurgöngu sinni, á meðan pressan eykst enn frekar á Jökul Elísabetarson og hans menn eftir gríðarlega erfiða byrjun á tímabilinu.

Atvik leiksins

Þriðja mark Víkinga drap leikinn endanlega. Stjörnumenn náður að minnka muninn snemma í seinni hálfleik, gáfu sér og stuðningsmönnum Stjörnunnar smá orku. Víkingar svöruðu hins vegar fljótt þegar Valdimar Þór Ingimundarson kom þeim aftur tveimur mörkum yfir á 65. mínútu og eftir það var sigur gestanna í raun aldrei í hættu.

Einnig verð ég að nefna stoðsendingu Valdimars á Óskar Borgþórsson þar sem hann tók við boltanum inn í teig Stjörnunnar og kemur boltanum síðan á Óskar með hælsendingu. Mjög vel og skemmtilega gert.

Stjörnur og skúrkar

Valdimar Þór Ingimundarson var frábær í kvöld. Sótti vítaspyrnuna sem kom þeim yfir, lagði upp annð mark Víkinga sem Óskar Borgþórsson skoraði og skoraði síðan sjálfur þriðja mark gestanna sem kláraði leikinn.

Gylfi Þór Sigurðsson einnig sterkur á miðjunni og skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni sem kom Víkingum yfir

Hjá Stjörnunni var erfitt kvöld heilt yfir. Heimamenn voru of oft skrefinu á eftir Víkingum, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem gestirnir stjórnuðu alfarið ferðinni. Stjörnumenn sýndu þó smá karakter með því að minnka munninn en það var því miður fyrir þá ekki nóg.

Dómarinn

Jóhann Ingi Jónsson og hans teymi áttu heilt yfir góðann leik og hélt ágætri stjórn á leiknum þó svo að þurft hafa lyft gula spjaldinu nokkrum sinnum þegar leið á síðari hálfleik. Stærsta ákvörðunin var vítaspyrnan sem Víkingar fengu í fyrri hálfleik. Við Fyrstu sýn virtist snertingin ekki mikil þegar Valdimar féll í teignum, en líklega réttur dómur. Annars vori engin stór eða afgerandi vafaatriði.

Stemning og umgjörð

Alls mættu 937 áhorfendur á Samsungvöllinn í Garðabænum og stemningin var mjög góð, sérstaklega í fyrir- og byrjun leiks. Stuðningsmenn beggja liða sameinuðust í söngvum og klappi fyrir Ingvari Jónssyni og hans fjölskyldu.

Það heyrðist vissulega meira í stuðningsmönnum Víkings en stuðningsmenn heimamanna stóðu sig samt sem áður með príði þrátt fyrir vond úrslit.

Umgerðin í kringum leikinn var flott og kvöldið bar þess merki að þetta væri stærri leikur en bara venjulegur deildarleikur.

Jökull Elísabetarson og hans menn eru í erfiðum málum.Vísir/Ernir Eyjólfsson

Viðtöl

Jökull: Víkingar heilt yfir sterkari

„Erfiður leikur. Mér fannst þeir heilt yfir sterkari í þessum leik,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tapið gegn Víkingi í Garðabænum í kvöld.

„Seinni hálfleikurinn var betri hjá okkur og fyrsta korterið þar fannst mér mjög gott. Mér fannst við eiga þann kafla leiksins en svo jafnaðist þetta aftur út. Ef maður tekur 90 mínútur í heildina þá fannst mér þeir sterkari og líklega eiga sigurinn skilið,“ sagði Jökull enn fremur.

Stjarnan minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik og virtist á tímabili mögulega geta unnið sig aftur inn í leikinn.

„Það hefði verið gott að ná að herja aðeins meira eftir að við minnkuðum muninn, en þeir eru líka bara mjög sterkt lið. Þegar maður spilar við svona lið þá ná þeir alltaf sínum köflum aftur,“ sagði hann.

Aðspurður um stöðu sína hjá félaginu sagði Jökull að hann fyndi enn fyrir trausti.

„Já, ég upplifi traust enn þá. Mér er svo sem alveg sama um spár, þetta snýst meira um hvað við ætlum okkur sem lið og félag. Við erum ekki nálægt því akkúrat núna en ég hef mikla trú á að þetta lið snúi þessu við,“ sagði Jökull að lokum.

Sölvi Geir Ottesen heldur áfram að gera góða hluti með Víkinga.Vísir/Pawel

Sölvi: Vorum með mjög góð tök á leiknum

„Ég er virkilega sáttur með þetta. Mér fannst við hafa mjög góð tök á leiknum nánast allan tímann,“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson eftir sannfærandi 1-3 sigur Víkings gegn Stjörnunni í kvöld.

„Við héldum þeim frá mest allri hættu og þeir áttu í raun eitt skot á markið og það fór því miður inn. Mér fannst við mjög flottir í fyrri hálfleik og stjórnuðum leiknum vel,“ sagði Sölvi.

Víkingar fengu þó á sig mark snemma í seinni hálfleik sem hleypti smá spennu í leikinn um stund.

„Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki alveg eins og ég hefði viljað sjá hjá okkur. Það er alltaf ákveðin hætta þegar maður fer með 2-0 forystu inn í hálfleik, þó við höfum talað um að koma kraftmiklir inn aftur. Mér fannst hins vegar við bregðast vel við og þriðja markið skipti gríðarlega miklu máli,“ sagði hann.

Víkingar hafa verið afar öflugir sóknarlega í sumar og Sölvi hrósaði liðsheildinni sérstaklega.

„Við erum með gríðarleg gæði fram á við og margir að koma að mörkunum. Það sem mér finnst skemmtilegast er hvað menn eru óeigingjarnir. Maður sér það til dæmis í færinu hjá Valda þar sem hann getur klárað sjálfur en velur að senda boltann. Menn eru tilbúnir að gera allt fyrir liðið og það skilar sér inn,“ sagði Sölvi að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira