Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Agnar Már Másson skrifar 27. maí 2026 22:26 Sigríður Andersen er þingflokksformaður Miðflokksins. Vilhelm Þingmenn hafa verið boðaðir á aukaþingfund klukkan 10.30 á morgun, fimmtudag. Þar halda þeir væntanlega áfram að ræða um atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þingmenn Miðflokksins eru einir eftir á mælendaskrá.
Bergþór Ólason, þriðji varaforseti þingsins, tilkynnti í kvöld þær breytingar á starfsáætlun Alþingis að í stað nefndardags á morgun yrði þingfundur haldinn sem ætti að óbreyttu að hefjast klukkan 10.30 á morgun. Nefndir gætu eftir sem áður fundað frá kl. 8.30 þar til þingfundur hefst. Þess í stað verði nefndardagur á laugardag, 30. maí. Bergþór sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin af forseta Alþingis og forsætisnefnd þingsins, en nefndin átti óvæntan fund kl. 21 í kvöld samkvæmt vef þingsins. Miðflokksmenn standa einir eftir í ræðustól þingsins þar sem hinir stjórnarandstöðuflokkarnir tveir, Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn, hafa báðir lokið máli sínu í seinni umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um atkvæðagreiðslu um að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hefðu annars þurft að samþykkja málið í kvöld Þrír mánuðir þurfa að líða frá því að málið er afgreitt úr þinginu þar til þjóðaratkvæðagreiðsla getur farið fram en enginn þingfundur er á dagskrá næstu tvo daga. Því hefði þurft að samþykkja þingsályktunartillöguna í kvöld ef landsmenn áttu að fá að ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst líkt og utanríkisráðherra hefur lagt til. En þar sem annar þingfundur er á morgun gefst tækifæri til að samþykkja tillöguna þá. Þingfundur stendur engu að síður enn yfir en einvörðungu Miðflokksmenn eru því á mælendaskrá og má vænta þess, ef umræðunni lýkur ekki í kvöld, að þeir karpi einir síns liðs á morgun einnig.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Evrópusambandið Miðflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira