Körfubolti

Doncic flytur fé­lag til Rómar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Luka Doncic ætlar að færa liðið úr bænum Cremona til höfuðborgar Ítalíu. 
Luka Doncic ætlar að færa liðið úr bænum Cremona til höfuðborgar Ítalíu.  Allen J. Schaben / Los Angeles Times via Getty Images

Luka Doncic hefur fest kaup á eignarhlut í ítalska körfuboltafélaginu Cremona. Liðið spilar í úrvalsdeildinni og mun nú færa sig um set til Rómar.

Slóveninn er leikmaður Los Angeles Lakers í NBA deildinni en spilaði áður í evrópska boltanum.

„Mig hefur dreymt um að eiga lið í Evrópu og við ætlum að afreka stórkostlega hluti,“ sagði Doncic við Corriere della Sera.

„Körfuboltinn kemur aftur til Rómar,“ skrifaði Doncic í færslu á Instagram. Vert er þó að nefna að Virtus Roma spilar í höfuðborginni, en vissulega í þriðju efstu deild.

Doncic fer í þetta verkefni með Donnie Nelson, fyrrum yfirmanni sínum hjá Dallas Mavericks. Nelson hefur lengi verið áhugamaður um evrópska körfuboltann og bar ábyrgð á nýliðavali Mavericks þegar Dirk Nowitzki kom til félagsins.

„Við viljum endurlífga höfuðborgina. Engin ákvörðun verður tekin án Doncic,“ sagði Nelson.

Samkvæmt La Gazzetta dello Sport er búið að finna nýjan þjálfara liðsins, Sasha Djordjevic sem er fyrrum landsliðsþjálfari Serbíu og hefur áður þjálfað Milan og Virtus Bologna í ítölsku deildinni.

Talið er að eftir flutninginn til Rómar muni Cremona breyta um nafn og verða hluti af nýju NBA-Evrópudeildinni sem á að hefja göngu sína haustið 2027.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×